Morgunblaðið - 09.06.2012, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.06.2012, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2012 FRÉTTASKÝRING Baldur Arnarson baldura@mbl.is Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG og sjávarútvegs- og landbúnað- arráðherra, átti í árslok 2004 hlutafé að nafnvirði 1.710.625 króna í Hrað- frystistöð Þórshafnar, eða sem svar- ar 0,35% af hlutafé í félaginu, sem var afskráð í Kauphöllinni 2005. Bróðir hans, Ragnar Már, átti bréf í félaginu fyrir 1.450.554 kr., alls 0,3% hlutafjár, og faðir þeirra, Sigfús Jóhannsson, bréf fyrir 1.133.320 kr., eða 0,23% hlutafjár. Saman áttu feðgarnir því bréf fyrir 4,29 milljónir kr. að nafnvirði hinn 31. desember 2004 og var sameiginlegur hlutur þeirra 0,88%. Markaðsverðið 15,8 milljónir Fram kemur á vef Kauphallarinn- ar að gengi bréfanna var 3,68 hinn 23. febrúar 2005 og var markaðsverð bréfa feðganna því um 15,8 milljónir skömmu áður en Steingrímur greindi frá því að hann hefði selt bréfin í apríl sama ár. Jafngildir það 26,247 milljónum króna í dag, samkvæmt framreikn- ingi Seðlabanka Íslands, og er hlutur Steingríms þar af 10,45 milljónir. Má geta þess að félagið skilaði 121 milljón króna í hagnað árið 2004. Athygli vekur að á þeim tíma sem Steingrímur og náin skyldmenni áttu hlut í félaginu var hann eindreg- inn andstæðingur auðlindagjalds. Þessi afstaða kom skýrt fram í bók Steingríms, Róið á ný mið: Sóknar- færi íslensks sjávarútvegs, sem kom út árið 1996. Á blaðsíðu 74 er að finna undirkaflann Sértæk skattlagning. Segir þar meðal annars: „Hin grund- vallarspurningin er hvort sann- gjarnt sé að leggja sértækan skatt á sjávarútveginn. Rökin eru að það sé eðlilegt að útgerðarfyrirtækin greiði fyrir aðgang sinn að sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar,“ skrifaði Steingrímur og skal svo gripið niður á blaðsíðu 75 í bókinni: „Óréttlætanleg aðgerð“ „Auðlindaskattur á sjávarútveg- inn einan yrði sértæk skattlagning og því óæskileg og í raun óréttlæt- anleg aðgerð út frá öllum viður- kenndum skattapólitískum viðmið- unum … Rétt er að minna á í þessu sambandi að íslenskur sjávar- útvegur keppir án nokkurra ríkis- styrkja eða niðurgreiðslna við þræl- styrktan atvinnuveg í nágranna- löndunum. Er ekki frekar ástæða til þess að hrósa sjávarútveginum fyrir að standast þessa erfiðu samkeppni, sem hann hefur verið og er í, gagn- vart t.d. fiskvinnslu Evrópusam- bandsríkjanna, heldur en skatt- leggja hann sérstaklega. Þó mörg sjávarútvegsfyrirtæki séu stór á okkar mælikvarða eru þau agnarsmá úti í hinum stóra heimi,“ skrifar Steingrímur sem lýkur umræddum undirkafla með þessum orðum: „Hugmyndir sem heyrst hafa um að hægt sé að taka marga milljarða eða jafnvel milljarða tuga, svokall- aðan fiskveiðiarð, út úr sjávarútveg- inum, eru algerlega óraunhæfar.“ Minntist ekki á gjöldin Tíu árum síðar, árið 2006, gaf Steingrímur J. út bókina Við öll: ís- lenskt velferðarsamfélag á tímamót- um. Steingrímur fjallar þar mikið um umhverfismál og er að finna undirkaflann Vistvænn útvegur það sem koma skal. Er þar fjallað um ís- lenska útgerð út frá sjónarmiði um- hverfisverndar og lætur Steingrím- ur ógert að ræða um veiðigjöldin. Verður ekki betur séð við hraða yfirferð yfir Við öll að þar sé hvergi minnst á slíka skattlagningu. Hann víkur hins vegar að bókinni Róið á ný mið í formálanum með þessum orðum: „Sjálfur er ég býsna stoltur yfir því hve vel þau megin- sjónarmið sem ég setti fram með bókinni hafa staðist tímans tönn.“ Þurftu lesendur Við öll því að geta í eyðurnar þegar afstaða formanns- ins til veiðigjalda var annars vegar. Veiðigjöldin voru Steingrími hins vegar ofarlega í huga þegar hann tók til máls fundi um veiðigjald á Akur- eyri árið 1997, árið eftir að Róið á ný mið kom út. Sagði Steingrímur þá m.a.: „Loks er það atriði sem kannski hefði átt að byrja á, þ.e. að ég tel margar miklu betri leiðir til að leysa þau vandamál sem stuðningsmenn veiðileyfagjalds telja sig ætla að leysa með veiðileyfagjaldi. Því þá að fara út í þessi ósköp. Það er hægt að skattleggja hagnað fyrir- tækja með almennum aðferðum,“ sagði Steingrímur m.a., að því er fram kemur í frásögn sjávar- útvegsblaðsins Ægi af fundinum á sínum tíma. Átti milljónir í útgerðarfélagi  Formaður VG átti hlutabréf í Hraðfrystistöð Þórshafnar  Faðir hans og bróðir einnig hluthafar  Var eindregið gegn veiðigjaldi þann tíma sem hann átti bréfin  Skipti um skoðun eftir söluna Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Höfnin í Þórshöfn Fjölskylda Steingríms J. Sigfússonar sjávarútvegsráðherra hefur lengi haft tengsl við sjósókn. Fjölskylda Steingríms J. Sigfús- sonar var í áraraðir tengd Hrað- frystistöð Þórshafnar. Faðir hans, Sigfús Jóhannsson, átti lengi lítinn hlut í fyrirtækinu, að sögn Ragnars Más Sigfússonar, bróður Steingríms. Þá átti Jó- hannes Sigfússon bróðir þeirra einnig hlut í félaginu en hann sat jafnframt í stjórn þess. Sjálfur keypti Ragnar Már fyrst hlut í félaginu upp úr 1970 og minnir hann að Steingrímur hafi keypt sinn hlut í kringum 1990. Fram kom í tilkynningu frá Steingrími í apríl 2005 að hann hefði þá selt hlut sinn í Hraðfrystistöðinni og lauk þar með aðkomu hans að félaginu. Ragnar Már segir þá feðga aldrei hafa haft mikinn atkvæðisrétt í félaginu í gegn- um hlutabréfaeign sína. Fjár- festingin hafi verið óveruleg. „Maður keypti í félaginu til að hafa eitthvað um málin að segja. Auðvitað græddi maður aldrei neitt á þessu. Við áttum aldrei neitt sem skipti máli þannig að við réðum einhverju um stefnu eða eitthvað slíkt. Jóhannes bróður okkar átti um hríð mun meira en við,“ segir Ragnar Már og rifjar upp að þeir bræður hafi allir verið um hríð til sjós á Þórshöfn og Stein- grímur á gamla Font- inum, togara Hrað- frystistöðvarinnar. Ekki náðist í Stein- grím. Fjölskyldan keypti hluti ÚTGERÐ Á ÞÓRSHÖFN Steingrímur J. Sigfússon Vaskir gluggaþvottamenn voru að störfum við Alþing- ishúsið í gær. Gluggarnir eru þvegnir reglulega og að þessu sinni var framhliðin tekin fyrir. Fáeinum eggjum og skyrdós var kastað í húsið þegar fundað var um kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar á Austurvelli á fimmtudag og var sá sóðaskapur að sjálfsögðu fjar- lægður í leiðinni. Sem kunnugt er þurfti oft að hreinsa mikið af eggjaslettum og öðrum óhroða af húsinu eftir mótmælafundi á Austurvelli í kjölfar bankahrunsins haustið 2008. Einnig voru þá brotnar rúður í húsinu. Morgunblaðið/Ómar Þingið sýnir sína bestu hlið Vorhreingerning í sólinni á Austurvelli í gær Morgunblaðið/Ómar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.