Morgunblaðið - 10.07.2012, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2012
Búast má við hlaupi í Múlakvísl úr
katlinum undir Mýrdalsjökli sem
hlaup hófst úr rétt fyrir miðnætti
þann 8. júlí í fyrra, fyrir rétt rúmu
ári. Sennilega yrði hlaup nú ekki
jafn stórt og hlaupið var í fyrra, að
mati Magnúsar Tuma Guðmunds-
sonar prófessors við jarðvísinda-
deild Háskóla Íslands. Hann sagði
talið að talsvert vatn hefði safnast
fyrir í katlinum.
Skjálftahrina varð í Mýrdalsjökli
á sunnudaginn var. Magnús Tumi
sagði ekki óalgengt að skjálftahrin-
ur yrðu í jöklinum. Hann taldi ekki
að hrinan á sunnudag boðaði nein
sérstök tíðindi ein og sér.
„Þetta var dálítið mikið af frekar
litlum og grunnum skjálftum,“
sagði Magnús Tumi. „Katla er nú
þannig að það koma fréttir þegar
hún lætur á sér kræla.“
Jarðskjálftamælar Veðurstof-
unnar sýndu að aukin virkni var í
Mýrdalsjökli í júní síðastliðnum,
einkum innan öskjunnar og smá-
hlaup varð í Múlakvísl. Undir Mýr-
dalsjökli mældust rúmlega 360
jarðskjálftar og þar af áttu 274
skjálftar upptök innan Kötluöskj-
unnar í júní, að sögn Veðurstof-
unnar. Jarðskjálftavirkni innan
öskjunnar jókst verulega eftir 7.
júní en þá um hádegisbilið varð
jarðskjálfti rúmlega 3 að stærð með
upptök í sunnanverðri öskjunni.
Hlaupið í Múlakvísl í fyrra óx
hratt og flæmdist víða yfir. Vatns-
flaumurinn tók af brúna yfir ána.
Um tíma voru stórir trukkar not-
aðir til að ferja fólk og bíla yfir
Múlakvísl. Ný 156 metra löng
bráðabirgðabrú var smíðuð á 96
klukkustundum. Bráðabirgðabrúin,
sem er einbreið, var opnuð umferð
þann 16. júlí í fyrra. gudni@mbl.is
Búast má við
hlaupi undan jökli
í Múlakvísl
Nýleg skjálftahrina í Mýrdalsjökli
boðar ekki tíðindi ein og sér
Ljósmynd/Reynir Ragnarsson
Mýrdalsjökull Fagurblátt vatn í sigkatli skar sig úr öskugráum jöklinum
þegar ljósmyndarinn flaug þar nýlega yfir.
Líðan 12 ára
stúlku sem hlaut
alvarlega áverka
þegar hún varð
undir dráttarvél
á fimmtudag er
eftir atvikum
samkvæmt upp-
lýsingum frá
lækni á Landspít-
alanum í gær-
kvöldi. Stúlkan
er með meðvitund en alvarlega
slösuð. Hún gekkst undir aðgerð á
fimmtudagskvöld.
Slysið átti sér stað þegar stúlkan
varð undir sláttuvél sem var í eftir-
dragi dráttarvélar á sveitabæ sem
er skammt frá Sauðárkróki.
Stúlkan sem slas-
aðist fyrir helgi
liggur enn á spítala
Spítali Stúlkan er
alvarlega slösuð.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Hún er bara með ágætum, jökla-
bráðnun er byrjuð fyrir austan inn í
Hálslón,“ segir Eggert Guðjónsson,
deildarstjóri vinnsluáætlana hjá
Landsvirkjun. Hann vísar þar til
vatnsstöðu miðlunarlóna Lands-
virkjunar en búist er við að flest
miðlunarlón fyrirtækisins verði orð-
in full um næstu mánaðamót og er
það nokkuð fyrr en í fyrra.
„Staðan í lónunum var mjög góð í
vor og þau fóru ekki mjög langt nið-
ur en nú er jöklabráðnun að byrja
og þá hækkar fljótt í þeim á nýjan
leik.“
Fylling í tveimur fösum
Vatnshæð Þórisvatns, sem er
helsta miðlunarforðabúr fimm virkj-
ana og liggur á milli Köldukvíslar
og Hraunvatna, stendur í svipaðri
hæð og í fyrra. Samkvæmt nýjustu
mælingum Landsvirkjunar stendur
vatnshæðin í 577,80 metrum yfir
sjávarmáli en rúman metra vantar
upp á svo miðlunarrýmið teljist
vera fullnýtt. Eggert segir vatns-
hæð Hálslóns, sem er miðlunarlón
fyrir Kárahnjúkavirkjun, vera í
608,36 metrum yfir sjávarmáli en
það er um tuttugu metrum hærra
en á sama tíma í fyrra.
Að sögn Eggerts tekur vanalega
um tvo til þrjá mánuði fyrir lónin að
fyllast. „Það eru tveir fasar í fyll-
ingunni. Annars vegar er um að
ræða vorleysingar sem fylla lónin
að hluta en hins vegar er það jökla-
bráðnunin sem kemur í júlí.“
Vel gengur að fylla lónin
Vatnsstaða miðlunarlóna Landsvirkjunar sögð með ágætum Útlit fyrir að
lónin fyllist um næstu mánaðamót Vatnsstaða Hálslóns í rúmum 608 metrum
Morgunblaðið/RAX
Hálslón Uppistöðulón Kárahnjúka.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Spor sem sáust í fjöru neðan við bæ-
inn Geitafell á Vatnsnesi og voru tal-
in sanna heimsókn hvítabjarnar
kunna sum hver a.m.k. að hafa verið
eftir tvo kajakræðara.
Hjónin Árni Björn Stefánsson og
Gunnhildur Stefánsdóttir áðu í vík-
inni, þar sem sporin fundust, aðfara-
nótt 27. júní og tóku þar upp kajaka
sína. Þau voru í neoprenskóm og
mörkuðu talsvert djúp spor í fjöru-
sandinn þegar þau drógu kajakana
upp.
Fréttir bárust af meintum sporum
eftir hvítabjörn í fjörunni á
Vatnsnesi í síðustu viku,
réttri viku eftir að hjónin
áðu í víkinni. Árni hafði
strax samband við lög-
regluna á Blönduósi, sl.
fimmtudag, og sagði henni
frá ferðum þeirra hjóna.
Þegar Árni sá svo mynd-
skeið í fréttatíma sjónvarps
úr fjörunni um kvöldið var
hann sannfærður um að um
væri að ræða sömu fjöruna og
þau hjónin áðu viku fyrr.
Hann þekkti ekki aðeins fót-
sporin í sandinum heldur sá
hann einnig kjölfar eftir kajak
þar sem honum hafði verið
brýnt upp.
„Við drógum upp bátana og
svona spor verða þegar mað-
ur stígur djúpt ofan í sand-
inn,“ sagði Árni. Hann hafði aftur
samband við lögregluna á Blönduósi
á föstudagsmorgun, sendi henni
myndir af víkinni og lét einnig vita af
gömlum útsel á þessum slóðum. „Við
sáum fáeina útseli og einn þeirra var
gamall og orðinn grár í framan.“
Gunnhildur, kona Árna, sagðist
telja líklegt að í víkinni við Geitafell
hefði ekki verið hvítabjörn heldur
„bara Árni Björn!“
„Við rérum yndislegan túr frá
Blönduósi og inn allan Hrútafjörð.
Við tjölduðum í fjörunni og sáum
heim að Geitafelli,“ sagði
Gunnhildur. Hún sagði að þau hefðu
virt fyrir sér útselina sem þau réru
hjá við Vatnsnesið.
Gunnhildur sagðist vitanlega hafa
velt því fyrir sér hvort ísbjörn kynni
mögulega hafa fundið mannaþef eft-
ir veru þeirra í fjörunni og því farið
þarna upp.
„Auðvitað verður maður að bera
fullkomna virðingu fyrir því ef ís-
björn er á svæðinu. En við teljum að
þetta hafi ekki verið ísbjörn. Þetta
voru spor eftir okkur,“ sagði Gunn-
hildur um sporin sem
fréttamyndirnar sýndu.
Ljósmynd/Árni B. Stefánsson
Fjaran Kajakar hjónanna Árna Björns og Gunnhildar sjást hér í fjörunni nálægt Geitafelli. Viku síðar sáust þar spor
sem talin voru vera eftir hvítabjörn. Hjónin sáu útseli við Vatnsnes, þar á meðal einn sem var orðinn gamall og grár.
Kajakræðarar mörk-
uðu spor í fjörunni
Könnuðust við meint ísbjarnarspor sem sáust í fréttum
„Við skoðuðum förin og þá lágu þau út í sjó. Svo fórum við daginn
eftir og þá voru þau horfin,“ sagði Kristján Þorbergsson, yfirlög-
regluþjónn á Blönduósi, um förin í fjörunni við Geitafell sem voru
talin vera eftir hvítabjörn. Hann sagði förin hafa legið eftir fjörunni,
ofan við fjöruborðið, og þaðan út í sjóinn.
Kristján kannaðist vel við frásögn hjónanna Árna Björns og Gunn-
hildar. Þau áðu í fjörunni í kajakferð viku áður en tilkynnt var um hvíta-
björn við Vatnsnes. Hann sagði útilokað annað en að sjórinn hefði
sléttað út för kajakræðaranna næst sjónum á vikutíma. Kristján sagði
förin öll hafa verið fremur hringlaga.
„Við gátum ekki bjargað okkur á því. Við reyndum,“ sagði Kristján
um frásögn hjónanna.
Ekki hafa borist fleiri vísbendingar um hvítabjörninn aðrar en
sporin og frásagnir ítalskra ferðamanna og stúlku á Hvammstanga
sem töldu sig hafa séð hvítabjörn í sjónum sama morguninn.
Sporin lágu út í sjóinn
LÖGREGLAN Á BLÖNDUÓSI SEGIR SJÓINN HAFA AFMÁÐ SPORIN
Hrammur á
Hótel Rangá.
Neytendastofa hefur bannað Nova
að birta fjórar fullyrðingar sem
birtast í auglýsingum fyrirtækisins.
Í auglýsingunum lofaði Nova fyr-
irtækjum minnst 20% lægri sím-
kostnaði á mánuði og sagðist selja
„vinsælustu, ódýrustu og snjöll-
ustu“ farsímana og ódýrustu og
vinsælustu 3G farsímana.
Kvörtunin til Neytendastofu
barst frá Símanum.
Neytendastofa taldi Nova sýna
fram á með fullnægjandi hætti að
félagið gæti lækkað símkostnað
fyrirtækja um 20%. Þó gerði Neyt-
endastofa athugasemdir við að ekki
kæmi fram að
um mismun á
þjónustu gæti
verið að ræða.
Samanburðurinn
væri því villandi
og ósanngjarn
gagnvart keppi-
nautum Nova.
Þá taldi Neyt-
endastofa Nova
ekki hafa sannað
fullyrðingar um að félagið byði
ódýrustu, vinsælustu og snjöllustu
farsímana. Fullyrðingarnar voru
því bannaðar.
Neytendastofa hefur bannað fjarskiptafyr-
irtækinu Nova að birta fjórar fullyrðingar
Bannað Mega ekki
birta 4 fullyrðingar.