Morgunblaðið - 10.07.2012, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2012
Samfylkingarvefurinn Eyjan ger-ir því skóna að Stefán Ólafsson
prófessor svermi fyrir því að verða
formaður Samfylkingarinnar.
Stefán bloggarmikið um þess-
ar mundir og finnur
ímynduðum og
raunverulegum
andstæðingum Sam-
fylkingar allt til for-
áttu og upphefur
Jóhönnu svo minnir
á Norður-Kóreu.
Sjálfur tekur Stefán fram aðhann sé óflokksbundinn og er
ástæðulaust að trúa því ekki.
Hann er vafalítið ekki minnaóflokksbundinn en Óðinn
Jónsson og lunginn af fréttastofu
RÚV og Samfylkingarinnar, Ólafur
Harðarson, Gylfi Arnbjörnsson og
þeir hinir pótentátarnir sem aldrei
bregðast málstað Samfylkingar,
jafnvel þegar hann er sem allra
aumkunarverðastur.
Gæti flokkurinn vel við unað efþeir sem streitast af vanefnum
við að greiða fyrir flokksskírteinið
sitt fylgdu sínum foringjum jafn
undantekningarlaust og fast eftir
og af slíkri blindni og fylgispekt og
þeir sem sitja í lávarðadeild
óflokksbundinna samfylkingar-
manna.
Og flokksmennirnir gætu á hinnbóginn einnig vel við unað ef
sposlurnar féllu þeim jafn ómældar
í skaut og sumum ofantöldum
flokksleysingjum.
En það hefur aldrei verið gerðkrafa um að sannir eðalkratar
þyrftu að hafa skírteini upp á vas-
ann. Þau hefur þessi jafnaðar-
flokkur bara fyrir litlu karlana.
Hinir fá bitlinga í stað skírteina.
Stefán
Ólafsson
Ó! Flokksbundinn
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 9.7., kl. 18.00
Reykjavík 15 heiðskírt
Bolungarvík 11 heiðskírt
Akureyri 10 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 12 skýjað
Vestmannaeyjar 9 skýjað
Nuuk 15 skýjað
Þórshöfn 10 skúrir
Ósló 15 skýjað
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Stokkhólmur 23 léttskýjað
Helsinki 21 léttskýjað
Lúxemborg 18 skýjað
Brussel 18 léttskýjað
Dublin 16 skýjað
Glasgow 16 skúrir
London 17 léttskýjað
París 22 heiðskírt
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 16 skúrir
Berlín 22 léttskýjað
Vín 26 léttskýjað
Moskva 28 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 26 heiðskírt
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 32 léttskýjað
Aþena 32 heiðskírt
Winnipeg 27 heiðskírt
Montreal 21 léttskýjað
New York 26 heiðskírt
Chicago 29 léttskýjað
Orlando 31 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:29 23:38
ÍSAFJÖRÐUR 2:47 24:31
SIGLUFJÖRÐUR 2:27 24:16
DJÚPIVOGUR 2:48 23:18
Fyrstu úthlutun úr Menntunarsjóði
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
fyrir haustönn árið 2012 er lokið.
Fimmtán konur sóttu um styrk úr
sjóðnum og þar af fengu þrettán
styrk til greiðslu skólagjalda og
námsbóka fyrir samtals 1,5 milljónir
króna.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja
tekjulágar konur til náms, svo þær
geti fengið betri vinnu og um leið
bætt lífskjör sín.
„Við erum mjög ánægðar með
undirtektirnar. Í ár gátum við styrkt
þrettán konur og það er greinilegt að
þetta er mjög þungur pakki fyrir
marga,“ segir Elín Hirst, formaður
menntunarsjóðs Mæðrastyrks-
nefndar Reykjavíkur.
Greinilegt er af fjölda umsókna og
viðtökum öllum, að mikil þörf er
fyrir menntunarsjóðinn.
Mikil þörf fyrir sjóðinn
„Nú er bara næsta markmið að
afla fjár í sjóðinn svo við getum
styrkt fleiri konur fyrir vorönn 2013.
Vonandi náum við að styrkja jafn
stóran hóp,“ segir Elín, en hún skor-
ar á alla að leggja sjóðnum lið.
Þeir sem vilja leggja sitt af mörk-
um til starfs sjóðsins geta lagt beint
inn á reikning 0515-14-406906,
kennitala: 470269-1119. pfe@mbl.is
Úthlutuðu styrkjum fyrir haustönn 2012
Morgunblaðið/Kristinn
Styrkir Elín Hirst er formaður
menntunarsjóðsins.
Fimmtán konur sóttu um styrk í ár
Þungur pakki fyrir marga
„Ég fagna þessu
bara mjög. Þetta
er mikilvægur
hluti af sögu
Reykjavíkur og
tæknisögu lands-
ins og er alveg
sjálfsagt mál.
Það hefði
kannski átt að
vera búið að
þessu fyrir löngu en Orkuveitan
hefur alltaf hugsað um þessi mann-
virki nánast eins og þau væru frið-
uð svo það þarf ekki að fara að gera
þau neitt upp. Þau hafa kannski
verið friðuð í huga fólks,“ sagði
Pétur Ármannsson, arkitekt þegar
blaðamaður leitaði álits hans á frið-
un ýmissa virkjanamannvirkja í El-
liðaárdal sem mennta- og menning-
armálaráðherra friðaði nýlega.
Um er að ræða Rafstöðvarhúsið,
Elliðavatnsstíflu, Árbæjarstíflu og
þrýstivatnspípu, stöðvarstjórahús
Elliðaárvirkjunar, smiðju/fjós,
hlöðu og aðveitustöð í Elliðaárdal
ásamt þremur spennistöðvum við
Bókhlöðustíg, Vesturgötu og
Klapparstíg. Húsin eru talin hafa
mikið gildi fyrir menningar- og
byggingasögu Reykjavíkur og sýna
framfarahug þjóðarinnar í upphafi
tuttugustu aldar. ipg@mbl.is
Friðanir í
Elliðaárdal
Ráðherra friðaði
virkjanamannvirki
Pétur Ármannsson
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður