Morgunblaðið - 10.07.2012, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2012
Morgunblaðinu hefur borist eftirfar-
andi athugasemd frá umhverfisráðu-
neytinu:
Vegna fréttar á forsíðu Morgun-
blaðsins 9. júlí 2012 um innleiðingu
viðskiptakerfis fyrir losun gróður-
húsalofttegunda vill umhverfisráðu-
neytið taka eftirfarandi fram:
Viðskiptakerfi ESB með losunar-
heimildir (ETS-kerfið) var tekið inn í
EES-samninginn í október 2007.
Mjög lítill hluti losunar á Íslandi féll
þá undir viðskiptakerfið. Á árinu
2009 lá fyrir að miklar breytingar
yrðu á viðskiptakerfinu annars veg-
ar frá og með árinu 2012 þegar flug-
rekstur félli undir það og hinsvegar
frá og með árinu 2013 þegar stóriðja
yrði hluti þess. Allt frá þeim tíma
hafa ráðuneytið og Umhverfisstofn-
un, sem fer með framkvæmd máls-
ins, átt náið og gott samráð við Sam-
tök atvinnulífsins um málið. Hafa
samtökin frá upphafi lagt mikla
áherslu á að viðskiptakerfið tæki til
íslenskrar atvinnustarfsemi og að
málinu yrði hraðað eins og kostur
væri, þannig að framkvæmdin gæti
orðið sem best frá upphafi árs 2013.
Vegna töluverðrar óvissu af hálfu
ESB um framkvæmd tilskipunarinn-
ar reyndist ekki mögulegt að hefja
vinnu við frumvarp um loftslagsmál
fyrr en síðla hausts 2011. Frumvarp-
ið var unnið í samráði við Samtök at-
vinnulífsins og aðra hagsmunaðila,
en vissulega setti tímaskortur sam-
ráðinu nokkur takmörk. Fundað var
með fulltrúa SA áður en drög að
frumvarpi voru send út þann 3. febr-
úar sl. og aftur með fulltrúum SA og
stóriðjufyrirtækja eftir að sameig-
inleg umsögn Samtaka atvinnulífs-
ins, Samtaka iðnaðarins, Samtaka
álframleiðenda og Samtaka fiski-
mjölsframleiðenda hafði borist um
frumvarpsdrögin 20. febrúar sl.
Eins og fram kemur í athuga-
semdum með frumvarpi til laga um
loftslagsmál var farið yfir athuga-
semdir þessara aðila, svo og ann-
arra sem sendu athugasemdir við
drögin, og leiddu margar þeirra til
breytinga á frumvarpinu.
Þá er rétt að ítreka að álitsgerð
Bjargar Thorarensen og Stefáns
Más Stefánssonar, lagaprófessora
við Háskóla Íslands, sem fjallað hef-
ur verið um í Morgunblaðinu að
undanförnu, snýr að mögulegri inn-
leiðingu reglugerðar (ESB) nr.
1193/2011. Lögum um loftslagsmál
nr. 70/2012, sem samþykkt voru á
Alþingi hinn 19. júní 2012, var ekki
ætlað að innleiða reglugerð (ESB)
nr. 1193/2011 í íslenskan rétt. Um-
rædd reglugerð sem álit þeirra
Bjargar og Stefáns snýr að mun
koma til kasta Alþingis þegar fyrir
liggur hver niðurstaðan í samning-
um ESB og EES EFTA ríkjanna
verður.
Náið samstarf
ráðuneytis og SA
Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala
Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja
eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5, 105 Rvk
533 4200
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
Kanaríflakkarar 2012
Síðasta Kanaríhátíð í Árnesi,
Gnúpverjahreppi 13.-15. júlí
Föstudagskvöld: Hljómsveit Ingvars Hólmgeirssonar
Valdi Hún og Anna skemmta.
Laugardagur: Kl. 16.00 fjöldasöngur með Sigga Hannesar á
tjaldsvæðinu, að hætti Kanaríflakkara (ef veður leyfir).
Hátíðarhlaðborð Gauta kl. 19.00.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi kl. 23.00.
Lukkumiðar, flottir vinningar: Kanaríeyjaferðir, gistingar, matur,
golf, snjósleðaferð á Snæfellsjökul o.fl.
Mætum öll og kveðjum Árnes,
Kanaríflakkarar.
GLUGGAR OG GLERLAUSNIR
idex.is - sími: 412 1700
- merkt framleiðsla
• tré- eða ál/trégluggar
og hurðir
• hámarks gæði og ending
• límtré úr kjarnaviði af norður
skandinavískri furu
• betri ending
— minna viðhald
• lægri kostnaður þegar fram
líða stundir
• Idex álgluggar eru íslensk
framleiðsla
• hágæða álprófílakerfi
frá Schüco
• Schüco tryggir lausnir
og gæði
• Þekking og þjónusta
• Áralöng reynsla
Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga
Byggðu til framtíðar
með gluggum frá Idex
Bæjarlind 6, sími 554 7030 | Eddufelli 2, sími 557 1730 | www.rita.is | Ríta tískuverslun
Útsala
50% afsláttur
Aðhaldsföt
Sundbolir
Tankini
Bikini
Náttföt
Undirföt
Sloppar
Frú Sigurlaug
Mjóddin s. 774-7377
- nýr auglýsingamiðill
Mikill erill var
hjá Landhelgis-
gæslunni í gær.
Þrjú útköll komu
hvert á eftir
öðru. Á níunda
tímanum í gær-
kvöldi barst
Landhelgisgæsl-
unni þriðja út-
kallið eftir þyrlu
gæslunnar, TF-Líf, vegna sinuelds
sem breiðst hafði út nærri Borg-
arnesi. TF-Líf er eina þyrla Land-
helgisgæslunnar sem útbúin er
slökkvibúnaði og þarf að vera í
Reykjavík í um klukkustund áður
en lagt er af stað á meðan verið er
að útbúa vélina fyrir slökkvistörf.
Fyrr í gær fór þyrlan að Stein-
grímsfjarðarheiði til að sinna bíl-
slysi og var síðan kölluð að Búrfelli
til þess að sinna öðru bílslysi.
Erill hjá þyrlu Land-
helgisgæslunnar
Þrjú útköll TF-Líf.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu-
neytið sendi í gær frá sér auglýs-
ingu um stöðvun strandveiða á
svæðum A og D.
Í tilkynningu ráðuneytisins segir
að stöðvun á svæði A, sem nær frá
Eyja- og Miklaholtshreppi til Súða-
víkurhrepps, gildi frá og með deg-
inum í dag.
Veiðiheimildir þess svæðis í júlí
voru 858 tonn, eins og í júní.
Stöðvun á svæði D, sem nær frá
Sveitarfélaginu Hornafirði til
Borgarbyggðar, gildir hins vegar
frá morgundeginum. Á því svæði
voru veiðiheimildir í júlí einungis
225 tonn til samanburðar við 525
tonn í júní. ipg@mbl.is
Strandveiðistöðvun
á svæðum A og D