Morgunblaðið - 10.07.2012, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍFHreyfing og útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2012
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Á
rið 2005 setti Ásgeir
Jónsson sér það mark-
mið að klífa hæsta fjall
hverrar heimsálfu. Hann
hefur nú klifið fimm fjöll
af sjö. Hið fyrsta var Elbrus hæsta
fjall Evrópu árið 2006, Kilimanjaro
hæsta fjall Afríku og Carstensz pýra-
mídana í Eyjaálfu árið 2007 og tvö fjöll
nú í ár eftir að hafa glímt við meiðsli og
þurft frá að hverfa í fjögur ár.
Beðið eftir næsta fjalli
„Ég hef aldrei verið á því að gef-
ast upp og fór aftur af stað nú í janúar.
Þá fór ég til Argentínu og kleif þar,
Aconcagua, hæsta fjall S-Ameríku og í
maí hélt ég til Alaska og kleif þar
Denali, hæsta fjall N-Ameríku. Nú á
ég eftir suðurskautið og Everest sem
ég vonast til að klífa árið 2014. Ég
myndi fara núna ef ég ætti pening en
það þarf að gefa sér tíma til að safna
styrkjum enda er grunnkostnaður við
þessi tvö fjöll um tíu milljónir. Um leið
og maður er búinn með eitt fjall getur
maður ekki beðið eftir því næsta en
stundum þegar maður er í leiðangr-
inum spyr maður sjálfan sig hvern
fjandann maður er að gera. En ham-
ingjan og þjáningin er svo samtvinnuð
að eftir því sem þjáningin verður meiri
verður hamingjan meiri. Þetta tvinnar
vel saman það sem maður gengur í
gegnum í slíkum ferðum,“ segir Ás-
geir.
Kaldasta fjall jarðar
Denali, einnig þekkt sem Mount
McKinley, er 6.196 metra hátt og er
oft talað um það sem kaldasta fjall
jarðar. Enda er það á 63. breidd-
argráðu norður og ekki óalgengt að
þar mælist 60-70 gráðu frost. Ásgeir
hélt einn í ferðina héðan frá Íslandi
en í hópnum hans voru níu manns auk
þaulreyndra leiðsögumanna. Ferðin
hófst þann 12. maí en þá var flogið inn
á Kahiltna jökulinn í 2.200 metra
hæð. Frá grunnbúðunum var síðan
gengið á milli fyrirfram ákveðinna
Ástríðan gefur
manni tilgang
Ásgeir Jónsson ætlar að klífa hæsta fjall hverrar heimsálfu. Hann hefur nú klifið
fimm fjöll af sjö. Síðast kleif hann hæsta fjall N-Ameríku, Denali. Fjallið er 6.196
metra hátt og oft talað um það sem kaldasta fjall jarðar en Ásgeir segist yfirleitt
kunna best við sig í kulda og hátt uppi í fjöllum. Hann einsetur sér að hafa
jákvætt hugarfar á fjöllum og segir það skipta miklu máli.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Á fullu Á sumrin hleypur Ásgeir og hjólar auk þess að stunda sjósund.
Á vefsíðunni ferlir.is má lesa fróðleik
ýmiskonar um Reykjanes og nálgast
upplýsingar um gönguferðir sem
farnar eru um svæðið. Ferlir
stóð upphaflega fyrir „Ferðahóp
Rannsóknardeildar Lögreglunnar Í
Reykjavík“ en öllum er frjálst að vera
með í félagsskapnum og hafa áhuga-
samir göngugarpar nú farið í rúmlega
1500 gönguferðir um Reykjanesskag-
ann.
Hópurinn vildi víkka sjóndeild-
arhringinn og kynnast betur sínu
nærtækasta umhverfi og hefur nú
kynnt sér og rannsakað gaumgæfi-
lega margvíslegar heimildir, bæði
gamlar og nýjar, skráðar og óskráðar
er tengjast svæðinu. Á síðunni má
lesa sér til um fjölda skemmtilegra
gönguferða á skaganum og glugga í
þann fróðleik sem hópurinn hefur
sankað að sér í gegnum árin.
Vefsíðan www.ferlir.is
Morgunblaðið/Ernir
Fuglaskoðun Á Reykjanesinu er mikið fuglalíf og margar gönguleiðir.
Fróðleikur og gönguferðir
Ármannshlaupið er 10 km götuhlaup
sem ræst verður hinn 11. júlí kl. 20.
Hlaupið hefur í gegnum árin verið
þekkt fyrir flata braut þar sem
margir hafa náð sínum besta tíma
og verður engin undantekning þar á
í ár. En munur á hæsta og lægsta
punkti á brautinni er aðeins 6,7
metrar.
Ræsing og endamark er nú við
Vöruhótel Eimskips við Sundahöfn.
en allar nánari upplýsingar og
kort af leiðinni má sjá á vefsíðunni
hlaup.is. Þar fer forskráning einnig
fram og er þátttökugjald 1.500
krónur í forskráningu.
Endilega …
… hlaupið Ár-
mannshlaupið
Morgunblaðið/Golli
Hlaup Hressandi útivera í góðu veðri.
Tamningamenn og glæsilegir reið-
skjótar þeirra sjást hér sýna listir
sínar í alþjóðlegri keppni í hesta-
mennsku sem haldin var í Aachen
í Vestur-Þýskalandi á dögunum.
Er um síðasta slíkt stórmót að
ræða fyrir Ólympíuleikana í Lond-
on sem hefjast þann 27. júlí næst-
komandi. Fyrsta slík keppni var
haldin í borginni árið 1924 og hef-
ur farið fram nærri óslitið síðan
ef frá eru talin árin 1940-1946
þegar seinni heimsstyrjöldin geis-
aði.
Alþjóðleg keppni
Knapar víðs vegar að keppa í
hestamennsku í Aachen
AFPKlapp Ánægður knapi þakkar reiðskjóta sínum fyrir hringinn.
Stóð Suður-amerískir gæðingar.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.