Morgunblaðið - 10.07.2012, Blaðsíða 11
Veðurblíða Í það heila var hópurinn afar heppinn með veður.
staða og síðan beðið í nokkurra daga
eftir að komast síðasta spölinn á
toppinn.
„Fyrstu þrjá dagana drógum við
á eftir okkur sleða sem vó um 60-70
kg og um 40 kg bakpoka. Þetta voru
erfiðustu dagarnir fyrir flesta þó við
hækkuðum okkur ekki nema rétt um
1000 metra. Það tók á að draga sleð-
ann og voru fyrstu dagarnir í móðu
hjá okkur flestum. En eftir þetta var
sleðanum lagt og þá fórum við alltaf
fyrst með mat og skildum eftir og
grófum í snjó það djúpt að krumminn
kæmist ekki í hann. En krumminn
var eina dýrið sem við sáum þarna.
Svo fórum við niður og hvíldum okkur
og fórum svo aftur upp og fluttum
búðirnar og svona rúllaði þetta í
gegn. Frá efstu búðum biðum við síð-
an eftir góðu veðri og vorum ein-
staklega heppin með veðrið þann dag
sem haldið var á toppinn. Það eru
miklir töfrar við þetta svæði og mað-
ur var fullur lotningar að sjá fjöllin og
jöklana sem þarna eru. Kuldinn fer
misjafnlega í menn en ég kann ágæt-
lega við kuldann og var heilsuhraust-
ur allan tímann þó að þetta hefði auð-
vitað tekið heilmikið á líkamann,“
segir Ásgeir.
Datt ekki í kvartgírinn
Ásgeir starfar sem markþjálfi og
námskeiðshaldari hjá Takmarkalaust
líf ehf. og notar mikið þá aðferð að sjá
hluti fyrir sér. Fyrir ferðina skoðaði
hann myndir af fjallinu og sá sjálfan
sig fyrir sér ganga á hryggnum sem
liggur á topp fjallsins.
„Ég passaði mikið hvað ég hugs-
aði og sagði. Í svona hóp getur keppn-
isandinn orðið nokkuð mikill og því
mikilvægt að tala aldrei sjálfan sig
niður. Margir voru líka að kvarta og
kveina yfir hinu og þessu allan tím-
ann en ég passaði mig á að detta ekki
í þann gír. Enda fær maður yfirleitt
það í hausinn sem maður óttast. Lík-
amlega reyndi þetta mest á bakið en
mér leið eiginlega betur eftir því sem
ofar dró. Mér líður í raun hvergi bet-
ur og þegar ég er kominn hátt upp í
fjöll og hef aldrei fundið fyrir há-
fjallaveiki. Kannski er það líka að
hluta til hugarfarið. Svona fjallganga
snýst um miklu meira en að setja eina
löppina fram fyrir aðra. Það þarf að
passa að eiga vatn á morgnana sem
er ekki freðið og búnaðurinn skiptir
líka miklu máli. Ég var sérstaklega
ánægður með dúnbuxurnar sem mér
áskotnuðust frá 66° Norður fyrir
ferðina. Það renndu margir í hópnum
öfundaraugum til þeirra,“ segir Ás-
geir og bætir við að mikilvægt sé að
eiga sér einnig markmið við heim-
komuna. Á fjöllum snúist lífið einfald-
lega um að komast af og þannig þurfi
fólk lítið að velta fyrir sér öðrum til-
gangi sem sótt getur á í hinu daglega
amstri.
Dulbúið göngufólk
Tindarnir sem Ásgeir hefur klif-
ið eru jafn ólíkir og þeir eru margir
og hið sama er að segja um umhverfi
þeirra. Ásgeir segir ferðina á
Carstensz pýramídann, sem er í
Indónesíu, vera sérstaklega eft-
irminnilega en þar fór hann um nokk-
urra km löng jarðgöng til að komast í
grunnbúðir dulbúinn sem námueft-
irlitsmaður.
„Af öllum fjöllunum er þetta fjall
tæknilega erfiðast og erfitt að komast
í grunnbúðir vegna ástandsins á
svæðinu. Þarna búa margir frum-
stæðustu ættbálkar veraldar og er
enn stundað mannát á þessum slóð-
um. En auk þess er ekki langt frá
grunnbúðum starfrækt stærsta gull-
og koparnáma veraldar. Það er
bandarískt fyrirtæki sem rekur nám-
una. En hún er gríðarstórt mannvirki
sem sést frá tunglinu og verður
spírallinn niður í göngin bráðlega
orðinn þrír km á dýpt. Afleiðingarnar
af þessu eru stanslausar erjur á milli
hers og lögreglu þar sem barist er um
mútufé frá fyrirtækinu.
Þegar við komum út var planið
að fljúga í grunnbúðir með þyrlu en
þá brutust út óeirðir á milli ættbálka
svo það var ekki hægt að lenda. Þá
leit út fyrir að við þyrftum frá að
hverfa en við brugðum þá á það ráð
að múta og fórum í skjóli myrkurs í
gegnum námuna dulbúin sem námu-
eftirlitsmenn. Þetta var mikið stress
og spenna að komast þarna í gegn og
að keyra í gegnum þessa námu var
eins og að vera komin í umhverfi vís-
indaskáldsögu. Þetta var þó skásti
valkosturinn en sá þriðji var að ganga
í gegnum frumskóginn í tvær til þrjár
vikur og hætta á að rekast á mann-
ætur. Í grunnbúðunum sáum við ein-
mitt minnisplatta á steini um þrjá
mannfræðinema í háskólanum í Jak-
arta sem voru drepnir þarna og étnir
árið 1987,“ segir Ásgeir.
Frumkvæði og frumleiki
Ásgeir hefur alla tíð lagt stund á
hreyfingu af einhverju tagi og klífur
reglulega fjöll innanlands. Þá stundar
hann hot yoga og þannig fundið bót
sinna meina eftir að hafa leitað til
lækna bæði hérlendis og erlendis. Á
sumrin hleypur Ásgeir líka og hjólar
og syndir sjósund.
Á ferðum sínum hefur Ásgeir
punktað niður atburði hvers dags og
segir gott að geta gluggað í slíkt síðar
meir enda gleymi menn mörgu þegar
mikið gengur á. Þessa dagana vinnur
Ásgeir að bók sem á að hjálpa fólki að
láta drauma sína ræta og setja sér
markmið út frá því að vita hvað fólk
vill fá út úr lífinu.
„Ég heyrði í útvarpinu fyrir
mörgum árum að aðeins 2% fólks
ynnu við það sem það hefði ástríðu
fyrir. Hægt er að hafa gaman af fullt
af hlutum en það er ástríðan sem gef-
ur manni tilgang. Maður hugsar oft af
hverju við mannfólkið höfum ekki
meiri kjark til að elta draumana okk-
ar. Frumkvæði, frumleiki og ímynd-
unaraflið er verðmætast en ótti
stoppar okkur of oft í dag og það er
sorglegt. Það má spyrja sig hvort
þetta hafi eitthvað með uppeldi að
gera. Hvort við ölum börnin okkar
upp þannig að það sé þægilegast fyrir
okkur eða með það í huga hvað nýtist
þeim best í framtíðinni,“ segir Ásgeir.
Ánægðir Alls voru níu manns í hópnum sem kleif Denali nú í vor.66° Norður Vel búinn til göngu.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2012
Tamningakona Kristina Sprehe á hinum glæsilega fáki sínum Martini.
Vinningshafar Hinar þýsku Helen Langehanenberg og Kristina Sprehe.
Ásgeir hélt dagbók á meðan á
leiðangrinum stóð og er hér grip-
ið niður í hluta hennar:
Það er þessi stanslausa vinna
og hugsun sem maður þarf
stanslaust að hafa að leiðarljósi
hvort sem við erum að labba eða
taka hvíldardaga. Hvað get ég
gert akkúrat núna til að búa í
haginn fyrir seinni tíma? Tryggja
að hafa alltaf nóg af ófreðnu
vatni, hugsa vel um fæturna,
klippa neglur, halda fótunum
mjúkum, nota hverja stund til að
fara yfir búnaðinn sinn og tryggja
að allt sé í standi. Í raun er þetta
svipað og þú sért að fara í stríð á
hverjum morgni.
Ef búnaðurinn þinn er ekki all-
ur í toppstandi og við höndina,
klár í slaginn, er óvíst að þú snú-
ir á lífi aftur í tjaldið þitt. Borða
og næra sig rétt og svona er
lengi hægt að halda áfram.
Að hugsa vel um sig
ÚR DAGBÓK ÁSGEIRS
Hverafold 1-3 | Grettisgötu 3 | Smáralind | 511 1710 | svanhvit@svanhvit.is | svanhvit.is
LÁTTU OKKUR SJÁ UMHEIMILISÞVOTTINN!
LÍTIL VÉL 7 KG. 1.790 KR.
STÓR VÉL 15 KG. 3.290 KR.
Efnalaug - Þvottahús
SVANHVÍT EFNALAUG
- NÚ Á ÞREMUR STÖÐUM
Hverafold 1-3, 112 Reykjavík
Grettisgötu 3, 101 Reykjavík
Smáralind, 201 Kópavogur