Morgunblaðið - 10.07.2012, Qupperneq 12
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Fólk á fertugsaldri, fólk á
Reykjanesi og einstaklingar eru
stærstur hópur þeirra sem sótt
hafa um greiðsluaðlögun. Það má
lesa út úr gögnum frá embætti
umboðsmanns skuldara.
4.099 manns hafa sótt um
greiðsluaðlögun síðan úrræðið
var kynnt til sögunnar árið 2010.
32,7% þeirra sem sótt hafa um
eru á aldrinum 30-39 ára.
Minnsti hópurinn sem gögnin ná
til er fólk sem er eldra en 60 ára
en 9,5% fólks á þeim aldri hafa
sótt um greiðsluaðlögun vegna
greiðsluvanda.
Þegar fjölskyldumynstur er
skoðað sést að hjón með börn
eru 29% þeirra sem sótt hafa um
greiðsluaðlögun. Stærstur hluti
þeirra, sem sótt hafa um, eru
hins vegar einstaklingar eða
38%.
Flestar umsóknir hafa komið
frá Reykjavík en stærsta hlutfall
umsókna kemur frá Reykjanesi.
27% greiða ekki neitt
Eftir að umboðsmaður skuld-
ara hefur tekið ákvörðun um það
hvort umsókn fær samþykki eða
synjun fer það á borð umsjón-
armanns sem er milligöngumaður
á milli skuldara og kröfuhafa.
Hann leggur til greiðsluskilmála
skuldara við kröfuhafa. Ef þeir
eru samþykktir eru gerðir frjáls-
ir samningar á milli kröfuhafa og
skuldara um greiðslutilhögun í
1-3 ár að jafnaði.
Greiðslugeta fólks sem fer í
greiðsluaðlögum er mismunandi
og fer eftir ráðstöfunartekjum.
Því eru samningarnir mismun-
andi.
Rúm 27% fólks, sem sótt hefur
um greiðsluaðlögun, geta ekki
borgað neitt upp í kröfur sínar á
samningstíma. Það þýðir að eftir
að viðkomandi einstaklingur eða
fjölskylda er búin að borga fyrir
nauðsynjavörur er ekkert auk-
reitis til þess að greiða til ann-
arra skuldbindinga.
Um 12% þeirra, sem sótt hafa
um greiðsluaðlögun, geta greitt
meira en 200 þúsund krónur á
mánuði upp í skuldbindingar sín-
ar á samningstíma.
70-75% samningskrafna
niðurfelld
„Greiðsluaðlögunarsamningur
getur t.d. falið í sér frystingar á
afborgunum og eftirgjöf á skuld-
um. Að meðaltali eru um 70-75%
samningsskulda felldar niður að
samningstíma loknum,“ segir
Svanborg Sigmarsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi umboðsmanns skuld-
ara.
Að sögn Svanborgar er gerður
greinarmunur á samningskröfum
og veðkröfum. Samningskröfur
eru þær skuldir sem ekki eru
með veði í fasteign. Greiðsluað-
lögun nær bæði til veðkrafna og
samningskrafna. Þar sem veð-
skuldir eru tryggðar með veði, er
ekki samið um eftirgjöf af veð-
kröfum en hægt er að semja um
lægri greiðslur af veðkröfum til
skamms tíma. Hins vegar er hluti
þeirra krafna, sem eru yfir 100%
af markaðsvirði fasteignar í lok
samningstímans, felldur niður.
Oft í sama hlutfalli og niðurfell-
ing samningskrafnanna.
,,Við gerð greiðsluaðlög-
unarsamninga er samið um
hversu hátt hlutfall er gefið eftir
af skuldum. Greiðslugeta fólks
yfir greiðsluaðlögunartímabilið
er skoðuð og ef greiðslugeta er
mikil er minni eftirgjöf. Ef
greiðslugeta er lítil er meiri eft-
irgjöf. Þó að samið sé um eft-
irgjöfina fyrir fram kemur ekki
til hennar fyrr en í lok samnings-
tímabils. Því er það þannig að ef
skuldari stendur ekki við sínar
skuldbindingar á samnings-
tímabili getur skuldari verið
krafinn um alla upphæðina með
vöxtum,“ segir Svanborg.
Að sögn Svanborgar eru flestar
opinberar skuldir auk lána frá
Lánasjóði íslenskra lánsmanna
utan greiðsluaðlögunarsamninga.
Þó er oft samið um greiðsluskil-
mála á slíkum skuldum og
greiðslum dreift yfir langt tíma-
bil.
Mestur vandi á Reykjanesi
Í gögnum frá umboðsmanni má
sjá að ef tekið er mið af umsókn-
um um greiðsluaðlögun eftir
landsvæðum er skuldavandinn
mestur á Reykjanesi. Þaðan hafa
komið umsóknir frá 2,8% íbúa.
Það er helmingi hærra hlutfall
umsókna en komið hefur frá Suð-
urlandi þaðan sem næstflestir
hafa sótt um, eða 1,4% íbúa.
Lægsta hlutfall íbúa hefur sótt
um á Vestfjörðum og Austurlandi
eða um 0,5% íbúa.
Margir eiga eftir að fá úrlausn mála
Hæst hlutfall greiðsluaðlögunarumsókna kemur frá Reykjanesi Flestir í greiðsluaðlögun á
fertugsaldri Einstaklingar stærsti hópur umsækjenda Hæsta hlutfall umsókna frá Reykjanesi
Eigna- og skuldastaða umsækjenda um greiðsluaðlögun
Eignir- kröfur
í milljónum kr.
Jákvæð staða 5,50%
0 - 9,9 m. kr 37,10%
-10 -19,9 m. kr 30,50%
-20-29,9 m. kr 14,40%
-30 - 39,9 m. kr 6,30%
-40- 49,9 m. kr 2,60%
-50+ m. kr. 3,60%
Hlutfall
samþykktra
umsókna
Eignir
í milljónum
0 - 9,9 m. kr 37,20%
10-19,9 m. kr 31,70%
20-29,9 m. kr 19,20%
30-39,9 m. kr 6,90%
40+ m. kr 5,00%
Hlutfall
samþykktra
umsókna
Skuldir
í milljónum
0 - 9,9 m. kr 19,70%
10 - 19,9 m. kr 16,10%
20 - 29,9 m. kr 20,50%
30 - 30,9 m. kr 17,00%
40 - 49,9 m. kr 10,70%
50 - 59,9 m. kr 7,00%
60+ m. kr 8,90%
Hlutfall
samþykktra
umsókna
Greiðslugeta
pr. mánuð í þús. kr
-10 þús kr. 27,30%
10-50 Þús. kr 16,80%
50-100 þús. kr. 20,40%
100-200 þús. kr. 23,50%
200+ þús. kr. 12,00%
Hlutfall
samþykktra
umsókna
Fjölskyldugerð umsækjenda
Einstaklingar
38%
Einstætt foreldri
23%
Barnlaus hjón
10%
Hjón með börn
29%
Búseta umsækjenda
Hlutfall umsækjenda af öllum íbúum viðkomandi svæðis
3,0%
2,5%
2,0%
1,5%
1,0%
0,5%
0%
Re
yk
jav
ík
Hö
fuð
b.s
v.
Ve
stu
rla
nd
Ve
stfi
rð
ir
No
rð
ur
lan
d
Au
stu
rla
nd
Su
ðu
rla
nd
Re
yk
jan
es
1,3% 1,2%
1,0%
0,5% 0,5%0,6%
1,4%
2,8%
Heimild: Embætti umboðsmanns skuldara
Aldur umsækjenda
Hlutfall umsækjenda af aldurshóp
20%
18%
16%
14%
12%
10%
8%
6%
4%
2%
0%
– 2
4 á
ra
25
-29
ára
1,9%
Heimild: Embætti umboðsmanns skuldara
30
-34
ára
35
-39
ára
40
-4
4 á
ra
45
-4
9 á
ra
50
-54
ára
55
-59
ára
60
-6
4 á
ra
65
ára
+
9,9%
15,8%
16,9%
13,6% 13,3%
11,5%
7,6%
4,7% 4,8%
Morgunblaðið/Kristinn
Reykjanesbær Flestar umsóknirnar um greiðsluaðlögun koma frá
Reykjavík en hæsta hlutfall umsóknanna kemur frá Reykjanesi.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2012
LINNETSSTÍG 2 | SÍMI: 565-4854
Mánudag - Föstudag 11:00 - 18:00 | Laugardagur 11:00 - 14:00
w w w . s i g g a o g t i m o . i s
Handsmíðað í Hafnarfirði síðan 1993