Morgunblaðið - 10.07.2012, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2012
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Óvíða má sjá jafn ólíka veiðimenn, og
misgamla, reyna að krækja í lax hér
á landi og í Elliðaánum. Góð veiði
hefur verið í borgaránum síðustu
daga, rúmlega tuttugu löxum landað
á dag, og nú hafa ríflega 300 veiðst
og yfir 500 farið um teljarann.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur
undanfarið staðið fyrir veiði ungra
félagsmanna, barna og unglinga,
sem renna fyrir laxa í Elliðaánum og
njóta aðstoðar reynslubolta, síðast
seinnipartinn í gær. Algengt er líka
að veiðimenn sem komnir eru á aldur
og nenna ekki lengur að brölta vega-
leysur, njóti þess að renna fyrir þann
silfraða einn dagpart í borginni.
Blaðamaður kom við í Elliðaánum
í gærmorgun og sjá mátti laxa víða,
enda veiddust fiskar jafn efst sem
neðst í ánum; í Sjávarfossi og í Höf-
uðhyl uppi við Elliðavatnsstíflu. Í
hópi veiðimanna voru systurnar
Kolka og Urður Heimisdætur sem
þeyttust með ánni með foreldrum
sínum og uppskáru vel, því sex laxar
veiddust á stöngina auk væns urriða.
Tvo fiska mátti hirða, eins og kvótinn
leyfir, en hinum var sleppt. Fengu
systurnar tvo fiska hvor, Urður báða
á Arndilly Fancy-flugu en Kolka á
hits og Green Butt-flugu númer tíu.
Voru þær himinlifandi með árang-
urinn en tóku fram að þetta hefðu þó
ekki verið maríulaxar, þær hefðu
nefnilega veitt laxa víðar.
„Ég veiddi einu sinni einn sextán
punda í Hnausastreng í Vatnsdal,
það var hrygna,“ sagði Urður.
„Það var rosalega heitt“
Þegar rætt er við veiðimenn sem
farið hafa í laxveiði á Vesturlandi og
Norðvesturlandi síðustu vikur, segja
þeir gjarnan sömu söguna: talsvert
af laxi er að ganga en hann tekur illa;
oft verulega illa. Einn þeirra er Sig-
mar B. Árnason byggingarfulltrúi
sem veitt hefur í Laxá í Leirársveit í
tvígang á síðustu vikum. „Í fyrri
ferðinni var ekkert rosaleg veiði, sex
eða sjö laxar á fjórar stangir. Það var
þó slatti af fiski þá en hann var ekki
mikið að sýna sig. Viku síðar var svo
dauði og djöfull,“ segir hann. Þá var
tveimur löxum landað á sex stangir.
„Það var rosalega heitt og laxinn
var ekki í neinu tökustuði. Þegar
hann tók þá var það svo grannt að
flugan lak úr honum. En það var
greinilega meira gengið af laxi en á
sama tíma í fyrra,“ segir hann.
Í Miðfjarðará hefur mikil ferð ver-
ið á laxinum og hann lítið stoppað
við. „Maður sér þá koma í suma hyl-
ina og svo eru þeir bara farnir,“
sagði einn veiðimaður sem var þar í
vikunni. Vesturáin var orðin æði
vatnslítil en þegar nokkrar rigning-
ardembur féllu óx svolítið í henni og
takan glæddist á öllum svæðum;
voru þá að veiðast um eða yfir tíu
laxar á vakt.
Afar rólegt mun hafa verið í Víði-
dalsá í síðustu viku, hvert holl að ná
örfáum löxum og þá einkum í Dals-
árósi. Þó var eitthvað af fiski greini-
lega komið í Fitjá en það fréttist af
einum tuttugupundara sem var land-
að þar.
Stórir fyrir austan
Jón Þór Júlíusson leigutaki
Grímsár sagði að vissulega hefði
veiðin verið erfið undanfarið og þurft
að hafa fyrir hverjum fiski en í stór-
streyminu fyrir fimm dögum hefðu
fyrstu stóru göngurnar skilað sér í
ána. Um leið byrjaði veisla hjá veiði-
mönnum sem áttu Laxfoss að
morgni og settu þeir í hvern laxinn á
fætur öðrum. „Þetta er fallegur smá-
lax og það virðist vera mikið af hon-
um að ganga,“ sagði Jón Þór.
Fyrir helgi greindum við frá stór-
löxum sem voru að veiðast í Breið-
dalsá og fleiri hefur verið landað, og
þar á meðal mögulega þeim stærsta
á landinu í sumar. Breskur veiðimað-
ur, Sam Porter, veiddi þá 100 cm ný-
genginn hæng sem vó 11 kíló, eða 22
pund. Tók laxinn appelsínugula
Kröflutúpu. Veiðin er líka komin vel
af stað á Jöklusvæðinu og þar veidd-
ist 98 cm hrygna á túpuna Kolskegg.
Systurnar fengu sitthvora tvo
Ljósmynd/Heimir Barðason
Kátar Systurnar Urður og Kolka Heimisdætur með lax sem sú síðarnefnda landaði í Hólmahlein í Elliðaánum í gær-
morgun. Þær eru vanar veiðikonur og lönduðu tveimur hvor. Mörg ungmenni hafa veitt í Elliðaánum undanfarið.
Morgunblaðið/Einar Falur
Bjartur Sjóbirtingar gleðja veiði-
menn í Vatnsdal þessa dagana.
Góður gangur í Elliðaánum og ungmennin veiða vel þessa dagana Lax sagður ganga vel í ár á
Vesturlandi en tekur illa í heitum ánum „Dauði og djöfull“ í Leirársveit 22 punda lax úr Breiðdalsá
Hraunsfjörður á Snæfellsnesi hefur á undanförnum árum notið sívax-
andi vinsælda meðal silungsveiðimanna, og enn frekar eftir að vatnið
kom á Veiðikortið. Veiðimenn sem kastað hafa þar upp á síðkastið hafa
sagt misjafnar sögur, einhverjir hafa veitt vel eða aðrir ekki fengið
neitt, eins og gengur.
„Ég hef ekki heyrt að menn hef verið í moki en sumir hafa fengið
góða veiði,“ segir Bjarni Júlíusson, formaður SVFR, en hann þekkir
Hraunsfjörð vel. „Ég skrapp um daginn og tíndi upp nokkrar bleikjur,
rétt í matinn,“ segir hann og bætir við að á dögunum hafi félagi hans
veitt þar og fengið tvær og þær voru afar vænar og veiddust á „leyni-
stað“. „Í næsta stóra straumi má síðan gera ráð fyrir góðri göngu og þá
ætti hún að ganga alveg inn í botn, þar sem vatnið er farið að hlýna
talsvert,“ segir hann. Syðst í vatninu má oft fá góða veiði á þeim tíma.
Sumir fá góða veiði
HRAUNSFJÖRÐUR NÝTUR SÍVAXANDI VINSÆLDA
Tveir sjö ára gamlir drengir fundu
sprautu með sprautunál við Fjöl-
skyldugarðinn í Laugardal í gær.
Engum varð þó meint af. Dreng-
irnir eru nemendur í Sumarskóla
Ármanns og Þróttar og skjót við-
brögð starfsmanna skólans komu í
veg fyrir að illa færi en drengirnir
voru að handleika sprautuna þegar
starfsmaður sá hvað var í gangi.
Skólastjóri sumarskólans segist
aldrei hafa orðið var við sprautu-
nálar á þessum slóðum áður en
hann hefur starfað hjá Þrótti í
nokkur ár. Hann hafi þó heyrt
sögusagnir um sprautunálar í
Laugardalnum.
Drengirnir fundu sprautuna eftir
göngutúr. Þeir tóku hana upp og
handléku báðir, en þó ekki nálina,
að sögn Sigurðar Hlíðars Rúnars-
sonar, skólastjóra Sumarskólans.
Fundu sprautu með sprautunál í Laugardal
Lagerrými
Lagerbakkar
Brettakerfi
Smávörukerfi
Árekstrarvarnir
Milligólf
Brautarholt 26-28 | 105 Reykjavík
Sími 511 1100 | www.rymi.is | www.riverslun.is
Landsins mesta úrval af laxa- og silungaflugum
Frí flugubox
Krókar fylgja öllum túpum
www.frances.is
Heimsþekktar flugur
atvinnumanna