Morgunblaðið - 10.07.2012, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2012
STUTTAR FRÉTTIR
● Allt benti til þess í gær að olíuvinnsla
Noregs stöðvaðist á miðnætti þegar
verkbann samtaka olíuframleiðenda
átti að skella á. Tilraunir sáttasemjara
til að finna lausn á kjaradeilunni hafa
engum árangri skilað.
„Eins og staðan er núna, bendir allt
til að verkbann taki gildi á miðnætti,“
sagði Haakon Smith-Isaksen, orku-
málaráðherra Noregs, í samtali við AFP.
„Afleiðingar verkbanns verða þær að öll
olíuvinnsla landsins og útflutningur olíu
stöðvast.“
Verkbann á miðnætti?
Ágætis þátttaka var í ríkisbréfaút-
boði Lánamála ríkisins síðastliðinn
föstudag á óverðtryggðu flokkunum
RIKB14 og RIKB22. Jafnframt var
um skiptiútboð að ræða þar sem eig-
endum ríkisbréfaflokksins RIKB12,
bauðst að kaupa bréf í flokkunum
tveimur og greiða fyrir með bréfum
sínum í RIKB12.
Í Morgunkorni Íslandsbanka í
gær kemur fram að
áhugi fjárfesta var ívið meiri á
RIKB22-flokknum en RIKB14.
Þannig bárust alls 17 gild tilboð í
RIKB22 að fjárhæð 4,35 ma.kr. að
nafnverði. Ákváðu Lánamál að taka
2 tilboðum sem hljóðuðu upp á 2,2
ma.kr. á ávöxtunarkröfunni 7,06%. Í
RIKB14 bárust alls 7 gild tilboð að
fjárhæð 2,0 ma.kr. að nafnverði og
var þeim tekið fyrir 1,9 ma.kr. á
4,45% ávöxtunarkröfu.
Erlendir aðilar voru langatkvæða-
mestir meðal þeirra sem gátu tekið
þátt í skiptiútboðinu. Í lok maí áttu
þeir bréf í RIKB12-flokknum fyrir
um 51 ma.kr. en heildarstærð hans
að verðbréfalánum meðtöldum var
þá rúmir 70 ma.kr. Greining Íslands-
banka telur ólíklegt að þeir hafi verið
atkvæðamiklir í útboðinu á lengri
flokknum m.v. áhuga þeirra á
flokknum hingað til, en í lok maí nam
eignarhlutdeild þeirra í RIKB22 rétt
rúmu 1%. Hingað til hafa lífeyris-
sjóðir sýnt RIKB22-flokknum mest-
an áhuga, enda um langan flokk að
ræða, og í lok maí áttu þeir um 65%
útistandandi bréfa í flokknum.
Greining Íslandsbanka telur að
þriðji ársfjórðungur hafi farið vel af
stað hjá Lánamálum. Alls nam út-
gáfan í útboðinu á föstudag 4,1
mö.kr. en áætluð útgáfa á fjórðungn-
um er á bilinu 5-20 ma.kr. Útgáfan í
útboðinu gæti þó farið upp í 4,5
ma.kr. þar sem aðalmiðlurum gefst
kostur á að kaupa 10% af nafnverði
þess sem selt var í útboðinu allt til kl.
14.00 í dag.
Heildarútgáfa ríkisbréfa í almenn-
um útboðum á að verða að lágmarki
40 ma.kr. á árinu, og eftir útboðið á
föstudaginn hafa verið seld ný rík-
isbréf fyrir 30 ma.kr. það sem af er
ári. Útgáfa ríkisbréfa í tengslum við
gjaldeyrisútboð nemur 22 mö.kr. og
nemur því heildarútgáfan á árinu 52
mö.kr., eða hátt í 70% af ársáætl-
uninni sem hljóðar upp á 75 ma.kr.
Morgunblaðið/Ómar
Seðlabankinn Heildarútgáfa ríkisbréfa í tengslum við gjaldeyrisútboð
nemur nú 52 milljörðum króna, hátt í 70% af ársáætlun Seðlabankans.
Ágætis þátttaka
í ríkisbréfaútboði
Tilboðum fyrir 4,1 milljarð tekið
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Fjárfestar hafa áhyggjur af efna-
hagslífi heimsins. Þeir spyrja sig í
kjölfarið til hvaða aðgerða verður
gripið varðandi peningamálastefnu
ríkja. Helstu hlutabréfavísitölur
lækkuðu í gær. Í gærmorgun hafði
evran ekki verið lægri í tvö ár en
hækkaði síðan vegna fréttar Reu-
ters um að það þyrfti ekki ríkis-
ábyrgð til að endurfjármagna bank-
ana á evrusvæðinu eftir að
sameiginlegu bankaeftirlit hefur
verið komið á fót, segir í frétt Fin-
ancial Times.
Stefnt er að því að 25 stærstu
bankarnir á evrusvæðinu fari eftir
sameiginlegu regluverki, sem nýtt
bankaeftirlit hefur gætur á. Smærri
bankar myndu heyra undir reglur
eigin landa. Þetta eftirlit á að heyra
undir Seðlabanka Evrópu. Þýska-
land lagði á það ríka áherslu að
þessu eftirliti yrði komið á áður en
landið samþykkti frekari lánveiting-
ar til björgunaraðgerða á evrusvæð-
inu.
Lántökukostnaður Spánar og
Ítalíu, sem glíma við mikinn efna-
hagsvanda, hefur aftur aukist en
hann lækkaði í kjölfar yfirlýsingar
um björgunaraðgerðir frá leiðtogum
Evrópusambandinu í lok síðasta
mánaðar. Vextir á tíu ára spænsk
ríkisskuldabréf eru komnir yfir 7%
en eru 6,1% á ítölskum. Talið er að
Spánn standi ekki undir vöxtum sem
eru yfir 7% til lengri tíma, segir í
frétt BBC.
Seðlabanki Frakklands spáir því
að efnahagslíf landsins hafi dregist
saman um 0,1% á öðrum ársfjórð-
ungi þessa árs. Ef þetta verður nið-
urstaðan er þetta í fyrsta skipti síð-
an vorið 2009 sem samdráttur
verður í Frakklandi. Hagtölur sýna
að samdráttur er í mörgum löndum
Evrópu. Þetta á við efnahagslíf
Bretlands, Grikklands, Ítalíu, Portú-
gals og Spánar, segir í frétt AFP
Útflutningur Þýskalands jókst
meira en búist var við í maí, sem
vekur einhverja von í brjósti varð-
andi evrusvæðið sem glímir við mik-
inn vanda, en svæðið treystir mjög á
Þýskaland. Útflutningurinn jókst
um 3,9% á meðan innflutningur
jókst um 6,3%. Þetta er meira en bú-
ist var við, að því er segir í frétt Fin-
ancial Times.
Sameiginlegt eftirlit með
bönkum sent til bjargar
Evran hækkaði vegna fréttar um sameiginlegt eftirlit með 25 stærstu bönkunum
Áhyggjur Fjárfestar hafa áhyggjur af efnahagslífi heimsins. Lántökukostn-
aður Spánar hefur aukist. Á myndinni rýnir maður í gengisþróun í Ástralíu.
AFP
Vodafone á Ís-
landi hefur ráðið
Fyrirtækjaráð-
gjöf Íslands-
banka til að vinna
að undirbúningi
skráningar
Vodafone í kaup-
höllina Nasdaq
OMX Iceland. Í
tilkynningu kem-
ur fram að stefnt
er að skráningu fyrir árslok.
„Í tengslum við fyrirhugaða
skráningu er gert ráð fyrir að fram
fari almennt hlutafjárútboð þar sem
fjárfestum og almenningi gefst
kostur á að skrá sig fyrir hlutum í
félaginu. Markmiðið með skráning-
unni er að tryggja almenna og góða
dreifingu á eignarhaldi félagsins,“
segir í tilkynningunni.
Samhliða hefur verið samið um að
Íslandsbanki annist sölu á þeim
bréfum Framtakssjóðs Íslands (FSÍ)
sem seld verða í útboðinu, en sjóð-
urinn er aðaleigandi Vodafone í
dag.
Vodafone
á markað
á árinu
Vodafone Stefnir á
markað á árinu.
Íslandsbanki ann-
ast undirbúninginn
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á
höfuðborgarsvæðinu 29. júní til og
með 5. júlí var 92. Þar af voru 72
samningar um eignir í fjölbýli og 17
samningar um sérbýli. Heild-
arveltan var 2.745 milljónir króna
og meðalupphæð á samning 29,8
milljónir króna.
Á sama tíma var 10 kaupsamn-
ingum þinglýst á Suðurnesjum. Þar
af voru 4 samningar um eignir í
fjölbýli, 5 samningar um sérbýli og
1 samningur um annars konar eign-
ir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan
var 202 milljónir króna og með-
alupphæð á samning 20,2 milljónir.
92 kaupsamn-
ingar gerðir
!"# $% " &'( )* '$*
+,-.-/
+-0.,/
+,1.23
,+.+3/
,4.-3,
+0.,+-
+5+.+5
+.340
+-,.23
+1/.2/
+,0.,0
+-0./1
+,1.05
,+.,,-
,+.4,2
+0.,/,
+5+.1
+.3+,/
+-5.45
+1/.-+
,+-.-4+/
+,0.1-
+--.,5
+,3.,
,+.,-+
,+.403
+0.5,1
+5+.0/
+.3+/2
+-5.3
+10.51
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939
Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 22:00
Opið um helgar frá 18:00 - 23:00
frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com
Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar
ÞRÍR FRAKKAR
Café & Restaurant
Pönnusteiktur skötuselur
með humri og humarsósu