Morgunblaðið - 10.07.2012, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2012
Ég ætla nú bara að hafa það gott með fjölskyldunni á afmæl-inu. Að vísu var ég reyndar búin að steingleyma því að égætti afmæli en mamma mín minnti mig á það,“ segir Þórunn
Ása Þórisdóttir, þjónustufulltrúi hjá Póstdreifingu, en hún fagnar
þrítugsafmæli sínu með grillveislu í dag. Vinahópnum verður svo
síðar boðið í fögnuð sem ber yfirskriftina „Skinkan útrunnin“ en
hann verður auglýstur síðar. Þórunn Ása er trúlofuð Birki Snæ Ein-
arssyni og saman eiga þau drenginn Einar Karel sem er þriggja ára.
Þrátt fyrir að hafa gleymt eigin afmælisdegi segist hún vera mik-
ið afmælisbarn og njóta þess mjög að eyða deginum í faðmi fjöl-
skyldu og vina. „Það er kannski vegna þess að þetta er talan þrjátíu
sem ég gleymdi því. Maður er kannski búinn að loka á afmælið and-
lega.“ Þórunn Ása heldur mikið upp á náttúru og útivist en eft-
irminnilegustu afmælisdagarnir eru einkum þeir sem haldnir eru í
sumarbústað fjölskyldunnar á Laugarvatni. „Það er alltaf voðalega
gaman að halda upp á afmælið þar. Venjulega er það þannig að þeg-
ar ég held upp á afmælið þá eru svo margir í sumarfríi að þetta er
yndislegur staður til að halda upp á daginn.“
Fyrst og fremst segist hún ætla að njóta sumarsins með syni sín-
um en að auki stefnir vinahópurinn á að ganga Fimmvörðuháls í
ágúst. „Ekkert okkar hefur gengið hann áður og það eru margir í
vinahópnum sem eru ekki miklir göngumenn en einn okkar er í
slökkviliðinu svo hann ætti að koma að góðum notum.“ khj@mbl.is
Þórunn Ása Þórisdóttir er 30 ára í dag
Fjölskylda Þórunn Ása Þórisdóttir afmælisbarn ásamt unnusta sín-
um, Birki Snæ Einarssyni, og drengnum þeirra, Einari Karel.
Var búin að stein-
gleyma afmælinu
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Hanna Álfheiður
Gunnarsdóttir,
Björg Þórunn
Gunnarsdóttir,
Gabríela Ómars-
dóttir og Emilía
Ómarsdóttir
héldu tombólu
fyrir utan Hag-
kaup í Garðabæ.
Þær söfnuðu
5.998 kr. sem
þær færðu Rauða
krossinum.
Hlutavelta
Kópavogur Hildur Eldey fæddist 17.
október kl. 13.58. Hún vó 3.480 g og
var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru
Dagný Atladóttir og Guðjón Sigur-
sveinsson.
Nýir borgarar
E
ysteinn fæddist í Æg-
isgarði á Hjalteyri,
lauk stúdentsprófi frá
MT 1973 og verk-
fræðiprófi frá HÍ
1979.
Eysteinn var deildarverkfræð-
ingur hjá Íslenskum aðalverktökum
á Keflavíkurflugvelli 1979-2000,
verkfræðingur hjá bandaríska sjó-
hernum á Keflavíkurflugvelli 2000-
2006 og hefur verið bæjarverkfræð-
ingur Garðabæjar frá 2006.
Eysteinn sat í framkvæmdastjórn
Verkfræðingafélags Íslands, í stjórn
lífeyrissjóðs verkfræðinga og var
stjórnarformaður um skeið.
Eysteinn og fjölskylda hans hafa
verið dyggir stuðningsmenn Stjörn-
unnar í Garðabæ um árabil. Sjálfur
æfði hann og keppti með Stjörnunni
í knattspyrnu frá barnæsku, í öllum
aldursflokkum og með meist-
araflokki í nokkur ár. Hann sat í
stjórn knattspyrnudeildar félagsins
um árabil og var formaður unglinga-
Eysteinn Haraldsson, bæjarverkfræðingur Garðabæjar, 60 ára
Ný gatnamót Hjá Arnarnesvegi og Reykjanesbraut. Frá vinstri: Guðmundur Ólafsson, hjá Suðurverk hf; Björn Sig-
urðsson, hjá Skrauta ehf; Dofri Eysteinsson, hjá Suðurverk; Hreinn Haraldsson vegamálastjóri; Kristján L. Möller
samgönguráðherra; Gunnar Birgisson, fyrrv. bæjarstjóri í Kópavogi, og Eysteinn Haraldsson.
Sturlungaöld í aðsigi?
Fjölskyldan Frá vinstri: Kristinn Jón; Bjarki Páll; Eysteinn; Axel Þór; Eydís
Lilja og Finnborg Laufey.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður
sem hefur hafið göngu sína
í Morgunblaðinu. Þar er
meðal annars sagt frá merkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum, barnsfæðingum
eða öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
12-36 mánaða binditími
Engin útborgun
Ábyrgðar- og kaskótrygging
Bifreiðagjöld
20.000 km á ári
Sumar- og vetrardekk
Þjónustuskoðanir og smáviðhald
Leigð´ann
Eigð´ann
Nýlegir bílar
Allir í toppástandi
Fara í gegnum gæðaskoðun AVIS
Þriggja daga reynsluakstur
www.avisbilar.is
S. 5914000
... og krækja sér í bíl á frábæru verði!
til þess að fara inn á avisbilar.is
11ástæður