Morgunblaðið - 10.07.2012, Side 27
ráðs Stjörnunnar um skeið. Þá hefur
Eysteinn starfað með Rotaryklúbbi
Garðabæjar og sinnt trún-
aðarstörfum fyrir klúbbinn.
Mikið að gera hjá Garðabæ
Þegar Eysteinn er spurður um
stundirnar utan vinnutímans segir
hann að þær séu nú ekki margar:
„Ég vinn mikið og hef nóg við tím-
ann að gera enda er Garðabær vax-
andi sveitarfélag á flestum sviðum.
Ég tek að sjálfsögðu fjölskylduna
fram yfir allt annað og vildi gjarnan
hafa meiri tíma fyrir hana. Síðan hef
ég starfað mikið fyrir Stjörnuna eins
og reyndar öll mín fjölskylda.
Um tónlist er það að segja að ég
hlusta á alla góða tónlist og er ekk-
ert að reyna að flokka hana niður
með tilheyrandi fræðilegum útlist-
unum. Eins les ég hvað sem er þeg-
ar ég hef tíma til þess. Ég er t.d.
núna að lesa Ævisögu Snorra
Sturlusonar, eftir Óskar Guðmunds-
son. Ég verð nú að segja að mér
finnst upphaf Sturlungaaldar vera
óhugnanlega líkt nútímanum:
Græðgin, valdabaráttan, tvískinn-
ungurinn og jafnvel grimmdin.
Kannski að þetta endi á sama veg
hjá okkur og hjá þeim fyrir 750 ár-
um.“
Fjölskylda
Eysteinn kvæntist 28.9. 1974
Finnborgu Laufeyju Jónsdóttur, f.
25.12. 1954, iðnhönnuði. Hún er
dóttir Jóns Inga Júlíussonar, f.
24.12. 1932, kjötiðnaðarmanns, og
Pálhildar Sumarrósar Guðmunds-
dóttur, f. 30.5. 1935, húsfreyju.
Börn Eysteins og Finnborgar
Laufeyjar eru Kristinn Jón, f. 6.10.
1975, tæknifræðingur á umhverfis-
og samgöngusviði Reykjavík-
urborgar, búsettur í Reykjavík en
kona hans er Inger Rós Jónsdóttir
lífeindafræðingur og eru synir
þeirra Víkingur Atli, f. 2006, og Kári
Steinn, f. 2009; Axel Þór, f. 15.12.
1979, tölvurekstrarfræðingur hjá
Microsoft á Íslandi, búsettur í Kópa-
vogi en kona hans er Hildur Gott-
skálksdóttir, ferðamálafræðingur og
viðskiptafræðingur og eru dætur
þeirra Dagný Björt, f. 2006, og Lea
Björt, f. 2009; Bjarki Páll, f. 1.4.
1986, með meistarapróf í umhverfis-
og byggingaverkfræði frá HÍ og og
starfar hjá verkfræðistofunni Eflu,
búsettur í Garðabæ en sambýlis-
kona hans er Kristín Gunnarsdóttir,
nemi í sálfræði; Eydís Lilja, f. 15.1.
1993, nemi við Verslunarskóla Ís-
lands en unnusti hennar er Davíð
Guðjónsson nemi.
Systkini Eysteins eru Kristján
Haraldsson, f. 20.10. 1947, orkubú-
stjóri Vestfjarða, búsettur á Ísafirði;
Sigurbjörn Haraldsson, f. 29.10.
1953, verktaki og húsasmíðameist-
ari, búsettur í Garðabæ; Einar Har-
aldsson, f. 26.12. 1956, húsasmíða-
meistari og framkvæmdastjóri ÍBK,
búsettur í Reykjanesbæ; Haraldur
Haraldsson, f. 23.6. 1959, húsasmið-
ur hjá Ístaki, búsettur í Garðabæ;
Hrafnhildur Haraldsdóttir, f. 2.8.
1960, ritari hjá Fálkanum, búsett í
Garðabæ; Margrét Ásdís Haralds-
dóttir, f. 27.9. 1968, kennari, búsett í
Garðabæ.
Foreldrar Eysteins voru Har-
aldur Axel Einarsson, f. 8.4. 1925, d.
15.7. 2004, húsasmíðameistri í
Garðabæ, og Eufemia Kristins-
dóttir, f. 2.1. 1930, d. 31.12. 2008,
fóstra.
Úr frændgarði Eysteins Haraldssonar
Jóakim Guðmundsson
b. í Hvammi í Fljótum
Sigurlína Sigurðardóttir
húsfr. í Hvammi
Sigmundur Jónsson
b. á Vestara-Hóli í Skagaf.
Halldóra I. Baldvinsdóttir
húsfr. á Vestara-Hóli
Guðrún S. Jónsdóttir
húsfr. í Litlagerði.
Kristján Pálsson
smiður og útg.m. í Sæborg
Margrét Ásdís Jónsdóttir
húsfr. í Sæborg
Eysteinn
Haraldsson
Haraldur Axel Einarsson
húsasmíðam. í Garðabæ
Eufemia Kristinsdóttir
húsfr. í Garðabæ
Sigurbjörg Sigmundsdóttir
húsfr. á Sigluf.
Kristinn Zófanías Jóakimsson
vkm. á Siglufirði
Kristín M. Kristjánsdóttir
húsfr. í Sæborg
Einar Jónasson
útg.m.í Sæborg á Hjalteyri
Jónas Einarsson
b. í Litlagerði
Afmælisbarnið Eysteinn Haraldsson
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2012
Jón Mýrdal, rithöfundur, fædd-ist 10. júlí 1825 að Hvammi íMýrdal. Foreldrar hans voru
Steinunn Ólafsdóttir og Jón Helga-
son.
Jón hugðist ganga til mennta en
varð frá að hverfa vegna fátæktar.
Hann fór til Reykjavíkur og nam
trésmíði. Fljótlega fluttist hann
norður í land og kynntist þar Guð-
rúnu Rannveigu Jónsdóttur. Þau
slitu samvistum eftir eitt ár og eign-
uðust dótturina Kristínu Salóme.
Guðrún Jóhannsdóttir, barnabarn
Jóns, segir í minningarorðum um
afa sinn er birtust í Morgunblaðinu
27. september 1953 að þau hafi ekki
átt skap saman, jafnframt hafi Jón
„verið tilfinningaríkur, draumlyndur
og nokkuð ölkær. Guðrún amma var
stórbrotin kona, sem áleit stað-
reyndir tryggari fótfestu en hug-
myndaflug.“
Jón Mýrdal dvaldi í Kaupmanna-
höfn um skeið, fluttist heim og ferð-
aðist víða um land og starfaði við
smíðar, m.a kirkjubyggingar. Hann
var völundur og handbragð hans bar
vott um listhneigð og vandvirkni.
Penninn var sjaldan langt undan
og mörg verkin urðu til á hefil-
bekknum. Fjöldi verka liggur eftir
hann, kvæði og skáldsögur auk
nokkurra leikrita.
Þekktasta verk hans er Manna-
munur sem kom fyrst út 1872 og hef-
ur verið endurútgefið reglulega síð-
an. Hann ritaði einnig tvær
skáldsögur á dönsku þegar hann bjó
í Kaupmannahöfn. Í dvöl sinni þar
varð hann fyrir áhrifum ævintýra-
bókmennta eins og glögglega sést í
Mannamuni. Aðalpersónurnar eru
málaðar sterkum andstæðum litum
og gegna því hlutverki að vera góðar
eða vondar. Æskuvinirnir Ólafur og
Vigfús keppast um hylli sömu stúlk-
unnar en bréfaskriftir hafa áhrif á
gang mál. Heiti bókarinnar er lýs-
andi fyrir inntak verksins. Verkið
tekur mið af rómönsuhefð, er form-
úlukennt og ber öll helstu einkenni
vinsældabókmennta. Mannamunur
hefur þó enn sinn sjarma sem líkja
má við galdur sjónvarpsþáttanna
Leiðarljóss.
Jón Mýrdal lést 1899.
Merkir Íslendingar
Jón Mýrdal
90 ára
Alfred George Wilmot
Andrés H. Guðmundsson
Oddur Helgason
85 ára
Guðný Guðjónsdóttir
Ragnheiður Júlíusdóttir
Vigfús Guðmundsson
80 ára
Bergvin Halldórsson
Guðmundur Friðvinsson
Inga Ingólfsdóttir
Jóna Erla Ásgeirsdóttir
Sigurbjörg Geirsdóttir
Vera Kristjánsdóttir
75 ára
Ásta G. Thorarensen
Helga Sveinbjörnsdóttir
Sigrún Jónsdóttir
Sveinbjörn Jóhannesson
70 ára
Gerður Karitas Guðnadóttir
Guðbrandur Orri Vigfússon
Hreinn Bernharðsson
Jón Jóhannsson
Jón Líndal Bóasson
Þorbjörg G. Sigurðardóttir
60 ára
Agnes Alfreðsdóttir
Anne Marie Markan
Hanna Soffía Jónsdóttir
Rúnar Svanholt
Védís Baldursdóttir
Þórarinn Egill Sveinsson
Þórunn B. Grétarsdóttir
50 ára
Auður A. Hafsteinsdóttir
Dagbjört Lára Ottósdóttir
Guðrún Hallgrímsdóttir
Haraldur Jakobsson
Harpa Einarsdóttir
Ingi Hrafn Traustason
Kristína Ragnarsdóttir
Kristín Ólafsdóttir
Ragna Hreinsdóttir
Sigrún M. Guðmundsdóttir
Skafti Baldur Baldursson
Sólveig Anna Gunnarsdóttir
Sunneva Pétursdóttir
Vignir Aðalgeirsson
Þuríður Björnsdóttir
40 ára
Chamlong Duangkaeo
Jaruwat Singsawat
Jóhannes Ásgeir Eiríksson
Justyna Marta Krasowska
Karl Björgvin Sveinsson
Kristján Ingi Arnarsson
Lance Pekonmaki
Ólafur Ármann Óskarsson
Sigurjón Gunnlaugsson
Steingrímur Hallgrímsson
Torfi Arnarson
Þorgerður Kjartansdóttir
30 ára
Anna Bergljót Thorarensen
Auðunn Freyr Kristjánsson
Berglind Júlíusdóttir
Bjarki Þór Jónsson
Einar Björgvinsson
Frederieke Rusch
Guðrún Sædís Harðardóttir
Helgi Már Þorsteinsson
Hrólfur Örn Böðvarsson
Jurgita Subonyte
Lilja Ósk Marteinsdóttir
Lucie Hosková
Rattiyaporn Insorn
Svava Dögg Magnúsdóttir
Unnur Ósk Unnsteinsdóttir
Vigdís Lúðvíksdóttir
30 ára Lilja Björg er fædd
og uppalin í Vestmanna-
eyjum. Hún starfar sem
lögfræðingur hjá Vinnslu-
stöðinni í Vestmannaeyjum.
Maki Gísli Geir Tómasson,
f. 1980, vélvirki hjá Vinnslu-
stöðinni.
Börn Tómas Arnar Gísla-
son, f. 2008.
Foreldrar Þóra Hjördís Eg-
ilsdóttir, f. 1953, skólaliði og
Arngrímur Magnússon, f.
1950, rafvirki hjá Hitaveitu
Suðurnesja.
Lilja Björg
Arngrímsdóttir
50 ára Olgeir Aðalsteinn
er fæddur og uppalinn í
Hafnarnesi í Hornafirði.
Hann býr á Höfn í dag.
Hann vinnur hjá Húsa-
smiðjunni.
Maki Ragna Pétursdóttir,
f. 1969, vinnur hjá Heil-
brigðisstofnuninni á Höfn.
Börn Hjördís Edda, f.
1981, Elva Björk, f. 1989,
Gunnar Örn, f. 1994.
Foreldrar Jóhannes Arn-
ljóts Sigurðsson og Edda
Jónsdóttir.
Olgeir Aðalsteinn
Jóhannesson
40 ára Helga er Garðbæ-
ingur. Hún starfar sem
leiðsögumaður hjá Atl-
antik og stefnir á ferða-
málafræði í HÍ í haust.
Maki Vilhjálmur Karl Giss-
urarson, f. 1974, flugstjóri
hjá Flugfélagi Íslands.
Börn Gissur Karl, f. 1999,
Ingibjörg Helga, f. 2003,
Hrafndís Veiga, f. 2010.
Foreldrar Tómas Agnar
Tómasson, f. 1939, og
Þórunn Árnadóttir, f. 1941,
d. 2011, ljósmóðir.
Helga Brynja
Tómasdóttir
Til hamingju með daginn
Frábær viðbót á grillið
Grillbrauð frá Reyni bakara
Kalt með ostum, grískri ídýfu,
ólífum, pylsum, hummus, tapernade
Sem forréttur meðan beðið er eftir grillinu
Hitað á grillinu með steikinni eða fiskinum
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Opnunartími: Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00