Helgafell - 01.05.1945, Side 18

Helgafell - 01.05.1945, Side 18
14 HELGAFELL handa í alvöru. Og þá hefði þjóðin eignazt lýsingu á landi sínu, jafnfagra og gagnsæja sem Grasaferðina eða ævintýri Jónasar. Ef honum hefði orðið lengra lífs auðið. En hann dó svo ungur. Því fór sem fór. VI. í öndverðu tengdi Jónas miklar vonir við íslandslýsingu sína. Hún horfði við honum líkt og líðandi brekka með fyrirheitum um fagurt útsýni. En örlögin höfðu bundið honum þyngri bagga en hann hugði, og brekkan reyndist torsótt fja.ll, þegar að var komið. Sumarið 1843, ritar hann Steenstrup, að sér miði hægt, enda verði hann að róta í dómadagskynstrum af efni. En í bréfi til Páls Melsted síðar á sama ári kveður hann svo að orði um þetta: ,,Það vantar ekki mikið á, að ég hafi reist mér hurðarás um öxl, því verkið er bæði mikið sjálft og undirbúning- urinn því meiri. Lakast af öllu er, að félagið getur ekki boðið mér neitt viðunandi hónórar, því mér er ómögulegt að vinna peningalaus. Sæi ég því nokkurn kost á, eða réttara sagt, sæi ég nokkurn annan færan um að taka við því starfi, seldi ég mér það af höndum.“ Jónas bar ábyrgð á því, að Hafnardeild Bókmenntafélagsins hafði ráð- izt í útgáfu íslandslýsingarinnar, og þrátt fyrir allt greiddi hún honum laun af litlum efnum. Má því gera sér í hugarlund, að honum hafi fundizt fast að sér sorfið, er hann vildi hlaupast frá fyrirætlunum sínum og samning- um, en það vildi hann, að minnsta kosti hálft í hvoru. Hugleiddi hann fyrst að fá sér prestsembæti, en síðar, er flytja skyldi latínuskólann frá Bessa- stöðum til Reykjavíkur, fýsti hann mjög að gerast kennari þar. ..Ég vildi heldur geta orðið kennari við góðan skóla á íslandi en allt annað,“ segir hann í bréfi Konráðs vorið 1844. Til þessa kom þó ekki. Skólayfirvöld- unum þótti betur fyrir séð á annan hátt en þann að gera Jónas Hallgríms- son að náttúrufræðikennara hér. Hann varð því, nauðugur viljugur, að halda áfram enn um sinn. Vorið 1845, rúmum mánuði áður en Jónas dó, ritaði hann deildinni og kvaðst þá ætla sér eitt ár enn til þess að ljúka íslandslýsingunni að sínum hluta. Heldur virðist þó vafasamt, að þessi áætlun hefði staðizt. Hitt er líklegra, að deildarstjórnin hafi verið farin að ýta á eftir. En Jónas var í vorhuga og leið með bezta móti, svo að hann hefur hugsað sér að taka á sig rögg og losna úr þessari prísund, enda hefur hann þá sennilega séð fram úr undirbúningsstörfunum. Ég hygg, að Jónasi hafi orðið það mikil vonbrigði, hve torvelt honum reyndist að rita lýsingu landsins. í öndverðu hugsaði hann til þess með skáld- legum fögnuði, en þegar til kom, var það lítið annað en erfitt og hversdags- legt verk, sem ól á óánægju hans með sjálfan sig, þunglyndi hans og þján- ing. Hitt er augljóst mál, að Islandslýsingin hlýtur að hafa orkað fast á hugar-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.