Helgafell - 01.05.1945, Blaðsíða 52
48
HELGAFELL
farið milli Islands og Ameríku rúmlega
3900 íslenzkar krónur að vetri til, en
liðugar 2900 krónur um sumarmánuð-
ina, (áður 2200 krónur). Hver farþegi
má hafa meðferðis allt að 30 kg. far-
angur án aukagjalds. Ef nauðsyn kref-
ur, er annar farangur tekinn, gegn sér-
stöku farmgjaldi.
Nú eru þessi gjöld að vísu miklu
hærri en þau, sem gefið er í skyn að
ríkjandi verði eftir stríð, og liggur mis-
munurinn aðallega í því, að nú er
flogið miklu minni flugvélum en þeim,
sem koma skulu, eins og áður er sagt.
Bezt er þó að reikna með háum gjöld-
um fyrst í stað, því að hvorttveggja er,
að staðreyndirnar stangast stundum á
við bjarta framtíðardr.auma, og svo
hitt, að fargjöld frá millistöð eins og
Islandi verða hlutfallslega nokkru
hærri en fargjöld milli endastöðva, eins
og London og New York. Til sam-
anburðar má geta þess, að áður en
farþegaflutningar með skipum lögðust
niður, vegna skipatjóns, kostaði far-
seðillinn frá Reykjavík til New York
1000 krónur, og tók ferðin 3—4 vikur.
Fæðispeningar námu svipaðri upphæð.
Tímasparnaður og verðmunur á fari
ætti því að vega hvort á móti öðru,
þegar raunverulegur ferðakostnaður er
gerður upp. Hitt fer svo eftir skapferli
hvers eins, hvort hann kýs að fara
hratt eða hægt yfir.
FLUGFERÐIR ÍSLENDING A
TIL EVRÓPULANDA
Nú víkur sögunni til Evrópu — en
þangað má gera ráð fyrir að marga
fýsi að fara, undir eins og þangað
gefur, eigi síður en vestur um haf. Fyrst
um sinn verður að gera ráð fyrir, að
enn meiri hugur sé á að fá vitneskju
um fargjöldin, og skal nú reynt að
leysa úr þeim vanda. Samkvæmt þeim
fargjöldum vestur um haf, sem að
framan voru talin, kostar flugmílan um
kr. 1,40 að sumrinu, en kr. 1,90 að
vetrinum (áður kr. 1,10). En sam-
kvæmt sérleyfisbeiðni, sem lögð hefur
verið fyrir flugmálaráð Bandaríkjanna,
er ameríska flugfélagið Transcontin-
ental & Western Airways reiðubúið til
að hefja þegar í stað flugferðir milli
New York og London fyrir liðlega I 700
kr. farið, eða tæpa 55 aura míluna. Og
loks er talað um flugferðir innan meg-
inlands Ameríku, sem kosta eigi 25
aura fyrir míluna. Mismunurinn á far-
gjöldum þessum liggur í ýmsum or-
sökum, en mest þó í því, að miðað er
við misstórar flugvélar. Því stærri sem
flugvélin er, því lægri verður rekstrar-
kostnaður á hvern farþega.
Fyrst um sinn er varlegast að reikna
með því, að fargjöld verði eigi lægri á
flugmílu en kr. 1.00, eða 60 aura á km.
eftir árstíðum og aðstæðum. Til saman-
burðar má geta þess, að Flugfélag Is-
lands tekur 200 krónur fyrir farið til
Akureyrar, en þangað er 250 km. flug-
leið (80 aura kílómetrinn). Eftir því
mundi farseðill til Prestwick kosta 850
krónur. Skipsfar til brezkrar hafnar
hefur kostað 520 krónur, að fæði með-
töldu, á stríðsárunum, en ferðin tekið
7—8 daga.
I samræmi við það, sem hér hefur
verið sagt, má reikna fargjöld til meg-
inlands Evrópu og Norðurlanda á
þessa leið:
Reykjavík — London......kr. 1100
Reykjavík — Osló ......... — 1500
Reykjavík — París ........ — 1400
Reykjavík — Berlín.........— 1600
Reykjavík — Moskva ........— 2500
Reykjavík — Khöfn..........— 1500
Reykjavík — Stokkh.........— 1700
Þeir, sem kynnu að vilja skreppa til
höfuðborganna á Norðurlöndum í sum-
arleyfi sínu, mundu sennilega fljúga á