Helgafell - 01.05.1945, Page 67

Helgafell - 01.05.1945, Page 67
BÓKMENNTIR 61 Listaskáld þurfa líka að vanda sig Guðmundur Böðvarsson: UNDIR ÓTT- UNNAR HIMNI. Hkr. 1944. 74 bls. Kr. 28—, 36—. Mörg undanfarin ár hef ég, svo að segja á hverju sumri, lagt leið mína fram Hvítár- síðu, til þess að heimsækja gamla og góða vini mína þar. Síðan er fögur sveit og bú- sældarlcg og blasir við suðri og sól. Víðast- hvar cr þar vcl byggt og myndarleg um- gcngni bæði utan húss og innan. En þó hcf ég ekki farið þarna um, svo að ég hafi ckki sérstaklega staldrað við hjá smábýli einu rétt vij götuna, til þess að dáðst að litlu, snotru húsi og óvenjulegri snyrtimcnnsku og hirðu- scmi cr þar mætir hvarvetna auga vegfarand- ans. Þctta litla býli cr Kirkjuból, um það bil í miðri sveitinni, og þar býr hið unga skáld og ötuli bóndi, Guðmundur Böðvarsson. Eg er ckki pcrsónulega kunnugur Guðmundi og hef aldrei komið í bæinn á Kirkjubóli síðan hann hóf þar búskap, en þeir scm til þekkja, segja mér, að sömu snyrtimennskunnar gæti þar innan húss eigi síður en utan og að margt megi sjá þar fagurra og haglcga gerðra muna, sem bóndinn sjálfur hefur smíðað og skorið f tré, því hann kvað vcra afburða listfeng- ur og hagur smiður. Þcgar ég fyrst heyrði kvæði eftir Guðmund Böðvarsson, lagði ég ósjálfrátt við hlustirnar, því að ég þóttist heyra þar annan tón og við- felldnari cn í kvæðum flestra ungra skálda ann- arra á þeim tímum. Hátturinn var skemmti- legur og ljóðrænn, málið þróttmikið, en þó mjúkt og féll hvorttveggja ágætlcga að efn- inu. Síðan hcf ég jafnan lesið kvæði Guðmund- ar mcð athygli og fylgzt nokkuð mcð þroska- ferli hans. Fjórar ljóðabækur hafa komið út eftir hann, á árunum 1936, 1939, 1941 og hin síðasta, Undir óttunnar himni, 1944. Við samanburð á þessum bókum kemst lesand- in 1 óhjákvæmilega að þeirri niðurstöðu, að þar gæti minni framfara en búast hefði mátt við. Að vísu verður því ekki neitað, að höf- undurinn hefur þroskazt frá því að hann gaf út fyrstu bók sína, að hann cr orðinn viða- nieira skáld og dýpri í hugsun, en þó eru í fyrstu bók hans til þau kvæði, er að engu standa að baki því, sem hánn hefur bezt ort síðar, svo sem „Kvæði Óðs um ástina", og „Ok velkti þá lengi í hafi“, svo að nefnd séu dæmi. Guðmundur yrkir um flest fyrirbrigði lífsins til sjávar og sveita, um ástir og styrjaldir og allt þar á milli, cn undirstraumurinn í ljóðum h'aris er æ hinn sami: trúin á lífið og gróand- ann í hverri mynd og hvar sem hann birtist, og samúð með öllu því, er stendur höllum fæti í baráttunni fyrir tilveru sinni. Kvæði Guðmundar eru því oft ádeilukennd og á stundum bregður hann fyrir sig hinni nöprustu kaldhæðni. En hann lýtur á mjög áberandi hátt því eðlilega lögmáli, að því nærtækari sem yrkisefnin eru honum, svo sem er hann kveð- ur um lífskjör bóndans, grósku moldarinnar eða fegurð skógarins, því innilegri og sannari eru ljóð hans, og af þeim leggur einhvern heillandi jarðarilm. — En þegar hann si-ilist lengra til yrkisefnanna og þau verða veiga- meiri, og þó einkum fjarlægari lífi sjálfs hans og umhverfi, er eins og hann nái ekki á þeim fullum tökum og töfrar innileikans hverfi úr kvæðunum. Lesendurnir þykjast þá heyra í þeim hljóma, scm skáldinu cru ekki cigin- legir, raddir, sem þeir hafa áður hcyrt, og jafn- vel búmngur kvæðanna minnir þá oft óþægi- lega á önnur öndvegisskáld okkar af hinni yngri kynslóð. Á þetta einkum við um síð- ari bækur höfundarins. Virðist honum einnig vera þetta ljóst og það hafa orðið honum til nokkurs ama. Á það bendir ótvírætt kvæð- ið „Skáld“ í næstsíðustu bók hans. „Álfar kvöldsins", sem bcrsýnilega er til orðið fyr- ir hugarangur hans af þessu efni, og sannast þar sem oftar hið fornkveðna, að „þeim var ek verst, er ek unna mest“. „Undir óttunnar himni“ er 74 blaðsíður í sama broti og hinar fyrri bækur höf., og í henni 21 kvæði. Eru þau auðvitað misjöfn að gæðum, og ég lít svo á, að þessi bók standi, fyrir margra hluta sakir, töluvert að baki fyrri bókum höfundar. Einkum koma þar glöggvar fram áhrif þau, er hann hcfur orðið fyrir frá öðrum skáldum. Nægir í því efni að benda á fyrsta kvæðið í bókinni, ,,Vor“, og þó einkum kvæðið „Jólakort frá 1910“. Er það í sjálfu sér ágætt kvæði, en það minnir svo freklega á kvæðið „Myndasaumur" eftir Olaf Bull (í þýðingu Magnúsar Ásgeirsson- ar) að höf. bar bein skylda til þess að láta þess getið, að hann hefði haft það kvæði að fyrirmynd. Er þetta því óheppilegra sem
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.