Helgafell - 01.05.1953, Blaðsíða 3
HELGAFELL
Maí 1953
Afmæliskveðja
tn
Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara
20. maí 1953
Kæri vinur!
Það er okkur mikil ánægja að mega senda þér kveðju og árnaðaróskir
með þessu tímaritshefti, sem við höfum leyft okkur að helga þér sextugum.
Frá barnsaldri hefur þú unnið hörðum höndum og heilum vilja, stefnt
sleitulaust að hinu hæsta í listgrein þinni og hvorki vikizt undan örðugleik-
um né látið skilningsleysi og andblástur sveigja þig til afsláttar frá þyngstu
kröfum. Fyrir því getur þú í dag notið þeirrar hamingja að horfa til baka yfir
óvenjulega svipmikinn og persónulegan listíeril.
Sem betur fer gerast þeir nú æ fleiri, er meta lífsstarf þitt að verðleikum,
og því mun nú mörgum sú ósk efst í huga, að þjóðinni auðnist að búa svo
að listaverkum þínum, að þau geti orðið almenningseign í enn ríkara mæli
en verið hefur. Aðeins við náið og persónulegt trúnaðarsamband getur listin
orðið manninum sá aflvaki og andleg heilsulind, sem ekkert annað fær bætt
honum upp. Þess vegna er engin þjóð svo auðug, að hún hafi efni á því til
lengdar að leyna fólkið því bezta og verðmætasta í list sinni.
Kæri Ásmundur Sveinsson! Hinir mörgu aðdáendur þínir þurfa engu að
spá um þann dóm, er komandi kynslóðir munu leggja á verk þín. En þó að
við, vinir þínir og kunningjar, þykjumst kunna nokkur skil á list þinni, þá
verður þú okkur engu síður minnisstæður fyrir manndóm þinn og mannkostL
óbilandi viljafestu, hlédrægni og hógværð. Því viljum við nú einnig þakka
þér góð og skemmtileg kynni um leið og við óskum þess, að þú megir lengi
njóta heill hugvits og handa.
Ragnar Jónsson Tómas Guðmundsson