Helgafell - 01.05.1953, Blaðsíða 138
136
HELGAFELL
verði aldrei rekin til gagns eftir sjón-
armiðum innanríkismála eða mismun-
andi stefnum stjórnmálaflokka. Margt
í utanríkismálum verður að fara leynt,
og það er því mjög bagalegt, að þau
mál skuli hér á Islandi eingöngu vera
í höndum manna, sem koma og fara
með fárra ára millibili, án þess að
nokkur varanleg stjórn sé til í land-
inu fyrir lengri tíma.
Við íslendingar höfum engan ríkis-
forseta, engan jarl eða varakonung, er
búsettur sé í landinu og vinni stöðugt
með, að aðalatriðum stjórnmálanna.
Að dómi útlendinga eigum við ekki
heldur menn, sem hafi kunnáttu eða
aðstöðu til að halda uppi risnu fyrir
ríkið, svo að til fullra nota verði fvrir
aðstöðu Islendinga út á við. Mér vit-
anlega hefur það t. d. aldrei komið fyr-
ir, að íslenzkur forsætisráðherra héldi
veizlu fyrir listamann, hvorki erlend-
an né innlendan, og minnir sú stað-
reynd í augum útlendinga á ástand
skrælingja eða negraríkja.
Glæfralegt virðist mörgum útlend-
ingum, að Imgsað skuli til þess að gera
ísland að' lýðveldi með atkvæða-
greiðslu nú eftir nokkur ár; það muni
verða til þess, að duglegasti áróðurs-
maðurinn verði forseti og að sjálfstæði
landsins verði að leiksoppi í höndum
kunnáttulausra og sainvizkulausra
kosninga- og atkvæðasmala; stórþjóð,
sem tryggt hafi sjálfstæði sitt um
margar aldir, bíð'i máske ekki varan-
legt tjón af slíku, en fvrir Island muni
það verða tortíming.
Menn skilja ekki, hvers vegna Is-
land vilji kasta frá sér tignarheitinu
konungsríki, sem það hefur einu sinni
öðlast — nafn, sem borgarar um all-
an heim bera virðingu fvrir, af göml-
um vana, þótt ekki sé af öðrum ástæð-
um............
IConungsríki þurfi svo sem ekki að
vera neitt íhaldsríki, því að allar