Kjarninn - 19.06.2014, Side 53

Kjarninn - 19.06.2014, Side 53
03/03 pistill sjónvarpsþátt um það. Þess í stað eru fjölmiðlar yfirfullir af umfjöllun um frábæra fólkið sem virðist vera algerlega laust við hversdagslegt áreiti og getur bara þess í stað eytt tíma sínum í að elda góðan og framandi hollustumat, stunda jóga, pæla í hönnun og hreyfa sig. Þetta er eins og að horfa á fólk úr öðrum heimi. Það gengur og hjólar mikið, því það er óspennandi og gamaldags að vera háður bíl. Ég myndi ekki geta gert neitt yfir daginn ef ég hefði ekki bíl. Frábæra fólkið leggur sér eingöngu til munns lífrænar og hollar matvörur, helst eitthvað sem það ræktar sjálft. Ég hef ca. 20 mínútur á dag til að versla og má helst engan tíma missa í að velja og pæla í vörum. Frábæra fólkið hefur tekið íbúðina sína í gegn oft og mörgum sinnum, því það er svo niðurdrepandi þegar umhverfið heima fyrir er ekki hvetjandi. Þar er aldrei ósaman brotinn þvottur eða grátandi börn. Þetta horfum við hin á í lífsstílsþáttunum og lesum um í blöðunum og reynum svo að aðlaga líf okkar. Organdi börn í lífsstílsþætti Ég hefði gaman af því að sjá lífsstílsþátt þar sem væri tekið hús á fimm manna fjölskyldu í brimrótinu um kvöldmatar- leytið. Leikföng og dót úti um allt á gólfinu, leirtauið meira og minna óhreint í eldhúsinu og þáttastjórnandinn yrði að koma sér fyrir á milli þvottastaflanna í sófanum. Foreldrarn- ir andvarpandi á milli organna í börnunum og unglingurinn á heimilinu myndi skella hurðum nokkrum sinnum af því að pabbi og mamma skilja hann ekki. Kannski fengi þetta ekki mikið áhorf og líklegt er að styrktaraðilar myndu halda að sér höndum. En er ekki alveg óþarft að fela það hvernig við lifum í raun og veru? „Ég hefði gaman af því að sjá lífsstíls- þátt þar sem væri tekið hús á fimm manna fjölskyldu í brimrótinu um kvöldmatarleytið. “

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.