Kjarninn - 26.06.2014, Blaðsíða 25
19/23 efnahagsmáL
u
tanríkisráðuneytið deilir ekki mati alþjóðlegra
stéttarfélaga sem telja að TISA-samkomulagið
muni auka hagnað alþjóðlegra stórfyrirtækja
á kostnað réttinda þeirra og hagsæld þeirra
sem verra hafa það. Markmiðið með þátttöku
Íslands í TISA-viðræðunum er að gera íslensk fyrirtæki sem
stunda þjónustuviðskipti „betur samkeppnishæf á heimsvísu
og draga úr viðskiptahindrunum“. Þetta er meðal þess sem
kemur fram í svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn
Kjarnans um TISA-viðræðurnar.
Ráðuneytið svarar því ekki beint hvort Ísland sé að gefa
frá sér rétt til aðgerða með því að taka þátt í TISA-samkomu-
laginu, en alþjóðleg stéttarfélög hafa gagnrýnt að það muni
koma í veg fyrir að ríkisstjórnir geti gripið til aðgerða á
þjóðréttarlegum grunni á þeim sviðum sem samkomulagið
mun ná yfir. Í svari ráðuneytisins við þeirri spurningu segir:
„Ísland, í gegnum þátttöku sína í TISA viðræðunum, hefur
tækifæri til þess að hafa áhrif á niðurstöðu samningsins.
Mikilvægt er að í samningum sé tekið tillit til hagsmuna
íslenskra fyrirtækja og tryggja sem best aðgengi íslenskra
þjónustuveitenda á erlendum mörkuðum. Sem aðilar að
GATS og öðrum fríverslunarsamningum höfum við gengist
við svipuðum skuldbindingum.“
Utanríkisráðuneytið svarar því heldur ekki beint hversu
margir embættismenn komi að TISA-viðræðunum: „Eins
og venja er með samningsviðræður af þessu tagi er enginn
einn með málið, heldur er þetta samstarfsverkefni utanríkis-
ráðuneytisins, fagráðuneyta og undirstofnana þeirra auk
fastanefndar Íslands í Genf. Þannig eru margar hendur sem
koma að þessu verkefni, samhliða öðrum.“
Ætla að opinbera endanlegan samning
Kjarninn og valdir fjölmiðlar víða um heim birtu í síðustu
viku, í samstarfi við Wikileaks, skjöl úr yfirstandandi
TISA-viðræðum um aukið frelsi fjármálaþjónustu á alþjóða-
mörkuðum. Skjölin eru dagsett 14. apríl 2014 og höfðu þá
aldrei birst opinberlega áður. Í þeim kom fram skýr vilji
efnahagsmáL
Þórður Snær Júlíusson
L@thordursnaer