Kjarninn - 10.07.2014, Blaðsíða 4
03/06 leiðari
B
andaríska verslanakeðjan Costco ku hafa raun-
verulegan áhuga á að hasla sér völl á Íslandi.
Fréttir af áhuga smásölurisans fóru sem eldur
um sinu í fjölmiðlum landsins þegar af honum
fréttist, enda renna margir hýru auga til auk-
innar samkeppni á smásölumarkaðnum hér á landi og meira
frelsis í viðskiptum.
Costco vill nefnilega ekki bara selja okkur grillaða
kjúklinga, barbecue-sósur í tveggja lítra flöskum eða golfsett,
heldur sömuleiðis áfengi, lyf, eldsneyti og ferskt innflutt
kjöt frá Bandaríkjunum. Fyrirætlanir, eða öllu heldur
langanir, fyrirtækisins urðu til þess að margir beinlínis
hváðu. Þeim fannst skiljanlega algjörlega óhugsandi, með
tilliti til sögunnar, að þjóðin sem byggir þetta litla kreppta
land myndi nokkru sinni láta hvarfla að sér að slaka á
reglufarganinu. En til þess að áform bandarísku verslana-
keðjunnar geti gengið eftir þarf að ráðast í umtalsverðar og
ekki veðja á
breytingar
Ægir Þór Eysteinsson hvetur neytendur til að stilla væntingum
sínum í hóf og búa sig frekar undir vonbrigði.
leiðari
Ægir Þór
eysteinsson
kjarninn 10. júlí 2014