Kjarninn - 10.07.2014, Blaðsíða 41
Hannes í uppáhaldi hjá fjármálaráðuneytinu
Það hefur vart farið framhjá neinum að Hannes Hólm-
steinn Gissurarson fær tíu milljónir króna fyrir að
skrifa skýrslu um erlend áhrif á hrunið fyrir fjármála-
og efnahagsráðuneytið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Hannes fær viðlíka verkefni. Haustið 2007 réð Árni M.
Mathíesen, síðasti fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokks
á undan Bjarna Benediktssyni, Félagsvísindastofnun
til að gera skýrslu um skatta og velferð. Í samningn-
um var áskilið að Hannes Hólmsteinn myndi hafa
umsjón með verkinu og að fyrir það ætti að greiðast
tíu milljónir króna.
Magnaður árangur Mint Solutions
Fyrirtækið Mint Solutions náði þeim magnaða áfanga
í vikunni að afla ríflega sex milljónum Bandaríkjadala,
eða ríflega 700 milljónum króna. Fyrirtækið vinnur
að þróun lyfjaskannans MedEye og hefur náð miklum
árangri á undanförnum misserum, sem endurspeglast
í þessari velheppnuðu fjármögnun á erlendum vett-
vangi. Vefurinn Techcrunch.com greindi fyrstur frá
málinu, en að sögn Gauta Reynissonar, forstjóra Mint
Solutions, verða höfuðstöðvar félagsins færðar til
Hollands á næstunni, en starfsemin hér á landi verður
einnig efld til muna og starfsfólki fjölgað.
Af netinu
Samfélagið segir
um bruna í Skeifunni
kjarninn 10. júlí 2014
facebook twitter
Guðni STark GuðMundSSon
Ætli það komi þá ekki eitt risa hótel þarna í
staðinn, nei ég segi nú bara svona..
Sunnudagurinn 6. júlí
HelGa nielSen
en pælið í kostnaðinum.. þetta er MILLJÓNA
tjón
Sunnudagurinn 6. júlí
karl BraGa
Þetta er allt farið! Miðja skeifunnar nánast eins
og hún leggur sig.
Sunnudagurinn 6. júlí
Þórarinn HjálMarSSon @thorarinnh
Sumir af þessum djókum sem eru að koma
varðandi Skeifu brunanna eru bara ekkert
Fönní #skeifan
Mánudagurinn 7. júlí 2014
BerGlind feSTival @ergblind
when a fire starts to burn, rite #skeifan
Mánudagurinn 7. júlí 2014
Hildur HelGadóTTir @hildur_helga
Bara á Íslandi ákveður fólk að halda mannamót
þegar um stórbruna er að ræða.. #Skeifan
&VYRMRR Sunnudagurinn 6. júlí 2014
28/28 SAmfélAgið Segir