Kjarninn - 17.07.2014, Blaðsíða 78
03/03 kjafTæði
byrjaður með sitt reglulega áfengisfrumvarps-hrútaþukl þar
sem þeir bísperrast yfir eigin frjálslyndi en leyfa því svo að
hverfa ofan í pappírstætarann hjá afturhaldskommunum og
gömlu stúkumönnunum – sem hljóta nú samt flestir að fara
að drepast fljótlega.
Þannig að við skulum láta þessa útlendu nirfla éta köku
– og rukka fyrir það 1.290 krónur sneiðina – því andskotinn,
við eigum það skilið. Við fæddumst hérna, urðuðum og
brenndum ruslið okkar hérna, spændum upp jarðveginn okk-
ar hérna, virkjuðum okkar eigin ár, geldum okkar eigin grísi
og okkur hefur nánast tekist að halda okkur
ómenguðum af flóttamönnum og hælisleitend-
um. Okkur hefur gengið vel að móta landið
í eigin mynd. Fram! Temdu fossins gamm,
framfara öld.
Að öðru.
Gunnari Braga hefur sannarlega vaxið fiskur
um hrygg síðan hann trúðaðist fyrst bjarteygur
fram á sjónarsviðið með ást sína á Benidorm,
Herbalife og Bill Shankly í farteskinu. Það er
líkt og burstaklippti bensínstöðvarprinsinn
frá Sauðárkróki hafi reist áburðarverksmiðju í
hjartanu á mér því ég er farinn að bera smá hlý-
hug til þessa vandræðalega – stundum málhalta
– ráðherra. Hann, þvert á kaldhæðni og væntingar, hafði þor
í að fordæma morðárásir Ísraela á Vesturbakkanum síðustu
daga. Það er meira en margur ráðherra hefur gert í gegnum
tíðina. Kannski er þetta svona hlutfallsleg ást – en hvað getur
maður beðið um meira?
„Þar er búið að
raða upp hrím-
uðum áfengis-
lausum bjórlíkis-
flöskum sem
grandalausir
útlendingarnir
hesthúsa fyrir
morðfjár...“