Kjarninn - 31.07.2014, Blaðsíða 6
03/03 lEiðaRi
En fyrst yfirlýsingin er virk, og íslenskur almenningur
þar með settur í viðbragðsstöðu ef allt fer á versta veg, þá
skýtur það skökku við að launaskriðið sé langsamlega mest
í fjármálageiranum. Það er óskiljanlegt raunar, því engar
forsendur eru til þess. Mikið eigið fé í fjármálakerfinu og
„góður“ árangur byggir á séríslenskum aðstæðum eftir alls-
herjarhrun viðskiptabankakerfis þjóðarinnar.
Annað sem er mikið umhugsunarefni er að um 25 til 30
prósent af öllum hagnaði fyrirtækja á Íslandi er hjá endur-
reistu bönkunum þremur, að því er Frosti Sigurjónsson,
formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis og þing-
maður Framsóknarflokksins, greindi frá í pistli á vefsíðu
sinni 9. mars. Þar vitnaði hann til þess sem
George Soros, fjárfestirinn þekkti, hefur
gagnrýnt harðlega í Bretlandi, en þar er fjár-
málageirinn með um 35 prósent hagnaðar
í hagkerfinu. Þetta finnst Soros alltof hátt
hlutfall og að betra væri að láta hagnaðinn
verða til í verðmætaskapandi starfsemi
frekar en í fjármálaþjónustu við atvinnulífið.
Frosti er einn fárra þingmanna sem hefur lagt sig fram
í því að vekja fólk til umhugsunar um hlutverk fjármála-
geirans í hagkerfinu og hvort það geti verið að þurfi að
breyta því verulega, með það að markmiði að draga úr vægi
fjármálageirans, beinlínis minnka umfang hans og auka
umfang framleiðslu, iðnaðar og nýsköpunar ýmis konar.
Launaþróunin í fjármálageiranum, við þær séríslensku
aðstæður sem hér eru, ætti ekki að vera á skjön við þróun
launa í öðrum geirum hvað varðar launahækkanir. Það eru
engar málefnalegar ástæður fyrir slíku. Fjármálageirinn er
í þjónustuhlutverki við atvinnulífið og mikilvægt að muna
að hann skapar ekki ný verðmæti sem eru grundvöllur
hagvaxtar og framgangs. Blekkingarheimurinn sem fjár-
málageirinn hefur skapað, í krafti þess að hann er of stór til
að falla án þess að vandamálin lendi í fanginu á almenningi,
verður að fá að reka sig á raunveruleikavegginn.
„Íslenskir bankar,
þeir endurreistu,
hafa stigið hænu-
skref inn á alþjóð-
lega lánamarkaði.“