Kjarninn - 31.07.2014, Side 22

Kjarninn - 31.07.2014, Side 22
03/06 alþjóðamál Í dómnum segir að fall Yukos hafi orðið vegna pólitískra árása rússneskra stjórnvalda. Fréttastofa Reuters vísaði í dóminn í frétt sinni um málið og sagði að þar kæmi fram að tilgangur rússneskra stjórnvalda hafi ekki verið að innheimta skattaskuldir heldur að gera Yukos gjaldþrota og komast yfir eignir fyrirtækisins. Ólíklegt er talið að Rússland muni greiða fyrrverandi hluthöfum Yukos bæturnar. Þeir munu því þurfa að sækja þær og munu þar horfa helst til eigna rússneska ríkisins á erlendum vettvangi. Eitt stærsta fyrirtæki heims Yukos-málið er þó ekki eina málið sem rússnesk stjórnvöld hafa hangandi yfir sér. Fyrirliggjandi er birting á niðurstöðu rannsóknar á starfsháttum Gazprom, stærsta fyrirtæki Rússlands og einu stærsta fyrirtæki heims, í Evrópu sem Evrópusambandið hefur staðið fyrir. Gazprom varð til þegar gamla orkumálaráðuneyti Sovét- ríkjanna var breytt í einkafyrirtæki árið 1989. Þar starfa sigur Fulltrúar GLM, sem áður hér Yukos sjást hér á blaðamanna- fundi sem haldin var eftir að dómur féll í Haag.

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.