Kjarninn - 31.07.2014, Blaðsíða 24
05/06 alþjóðamál
innan vébanda sambandsins. Snemma árs 2012 réðst Evrópu-
sambandið í umfangsmikla rannsókn á starfsháttum Gazprom
í Evrópu. Til stóð að niðurstaða hennar yrði birt síðast liðið vor
en það hefur frestast vegna ástandsins í Úkraínu.
Niðurstöðu rannsóknarinnar er hins vegar beðið með
mikilli eftirvæntingu. Edward Lucas, ritstjóri alþjóðamála
hjá „The Economist“, sagði á ráðstefnunni „Poland Today“ í
lok maí að hann teldi þá sekt sem Gazprom myndi fá vegna
niðurstöðu rannsóknarinnar verða „miklu, miklu hærri en
Microsoft“. Þar vísaði hann í sekt sem tölvurisinn Microsoft
var skikkaður til að greiða, 561 milljón evra, um 87 milljarða
íslenskra króna, fyrir að hafa ekki kynnt tölvunotendum
í ríkjum sambandsins um aðra netvafra en þeirra eigin
Internet Explorer.
Lucas, sem er sérfræðingur í málefnum Rússlands og
hefur fylgst náið með Gazprom-málinu, á líka von á því að
Gazprom muni fá gríðarlega mikla neikvæða fjölmiðla-
umfjöllun í kjölfar birtingar niðurstöðu rannsóknarinnar.
yukos-Málið
Yukos var stærsta olíufélag Rússlands þegar það
var tekið niður. Helsti eigandi þess var Mikhail
Khodorkovsky, sem var handtekinn árið 2003 og
sat í fangelsi þar til í janúar síðastliðnum. Khodor-
kovsky og viðskiptafélagar hans höfðu komist yfir
eignir fyrirtækisins í vægast sagt vafasömu einka-
væðingarferli orkuauðlinda Rússlands á forsetatíma
Boris Jeltsin.
Ketill Sigurjónsson, sem starfar við ráðgjöf og
viðskiptaþróun á sviði orkumála, hefur fjallað
ítarlega um málið á Orkubloggi sínu. Þar segir hann
meðal annars: „Skaðabótamálið er sótt af félagi
sem nefnist GML, gegn rússneskum stjórnvöldum.
GML er að stærstum hluta í eigu eins af fyrrum
framkvæmdastjórum Yukos, en sá er milljarða-
mæringurinn Lenid Nevzlin. Nevzlin náði að forða
sér frá Rússlandi þegar helstu stjórnendur Yukos
voru handteknir árið 2003 og hefur síðan verið eftir-
lýstur af Rússum. Það var reyndar réttað yfir Nevzlin
í Rússlandi árið 2006 (að honum fjar stöddum) og
hann þar dæmdur í pent ævilangt fangelsi, m.a.
fyrir morð. Sjálfur segir Nevzlin að réttarhöldin hafi
verið farsi og að undirlagi Pútíns.
GML er í raun eignarhaldsfélag, sem yfirtók eignir
eldra eignarhaldsfélags, Group Menatep, sem átt
hafði meirihlutann í Yukos. Stærsti eigandinn í
Group Menatep var að sjálfsögðu Khodorkovsky. En
hann náði að framselja þann eignarhlut sinn (og þar
með ráðandi hlut sinn í Yukos) til Nevzlin áður en
dómurinn féll yfir Khodorkovsky sjálfum. Tilgangur-
inn með þeirri ráðstöfun var að tryggja að rússnesk
stjórnvöld kæmust ekki yfir eignina. En eins og
kunnugt er breytti sú ráðstöfun engu, því Yukos var
keyrt í þrot á grundvelli risavaxinna krafna um meint
skattsvik, sem námu tugum milljörðum USD. Þar
með urðu hlutabréfin í Yukos verðlaus og skipti að
sjálfsögðu engu í því sambandi hvort Khodor kovsky
eða Nevzlin var hinn endanlegi eigandi þeirra“.