Kjarninn - 31.07.2014, Page 26
06/06 alþjóðamál
gæti fengið hæstu sekt sögunnar
Í einföldu máli snýst málið um það að Gazprom lúti ekki
þeim reglum sem settar eru um jafnræði innan innri
markaðar Evrópu. Fyrirtækið hafi þvert á móti nýtt sterka
stöðu sína, sérstaklega í gömlum Austantjaldslöndum í
Austur- og Mið-Evrópu, til að selja löndum þar orku á mjög
mismunandi verði. Viðskiptavinir í þessum löndum greiða
að jafnaði 50 prósent meira fyrir jarðgas en vestrænu
Evrópusambandsríkin. Komist Evrópusambandið að þeirri
niðurstöðu að Gazprom hafi brotið gegn samkeppnislögum
sínum mun fyrir tækið því, að mati sérfræðinga, fá hæstu
sekt sem nokkru sinni hefur verið sett á einkafyrirtæki af
sambandinu. Auk þess munu allir þeir orkukaupendur sem
hafa ofgreitt fyrir orkuna sína vegna ætlaðrar misnotkunar
Gazprom geta farið í mál við orkurisann.
Ráðamenn í Rússlandi hafa reynt mikið að semja um
málalok í málinu og vonast til þess að niðurstöður rann-
sóknarinnar verði ekki gerðar opinberar, en án árangurs.
Frestun á birtingu niðurstöðu hennar, sem var búist við í maí
2014, er einvörðungu talin vera vegna ástandsins í Úkraínu.
Þegar fyrir liggur hvernig spilast úr því, og hverjar aðgerðir
Evrópusambandsríkjanna gegn Rússlandi vegna þess ástands
verða, munu niðurstöðurnar ugglaust verða birtar.
áfrýja
Sergei Lavrov, utanríkisráð-
herra Rússlands, hefur gefið
það út að niðurstöðunni í
Yukos-málinu verði áfrýjað.
Ekki liggur fyrir hvort það
verði gerlegt.