Kjarninn - 21.08.2014, Blaðsíða 16
04/04 ÞjóðmáL
ólíðandi. Þar má nefna fyrirtæki á borð við Össur, Marel, CCP
og Creditinfo.
Í júlí réðu stjórnvöld fjóra sérfræðinga í sérstaka fram-
kvæmdastjórn um losun fjármagnshafta. Sá sem stýrir þeirri
stjórn er Glenn Victor Kim, fjármálaráðgjafi sem hefur mikla
reynslu á alþjóðlegum fjármálamarkaði. Auk þess voru
alþjóðlegir ráðgjafar ráðnir til að aðstoða hópinn. Á meðal
þeirra er Lee Buchheit, sem stýrði samninganefnd Íslands í
Icesave-deilunni. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis-
ráðherra sagðist í kjölfarið vonast til þess að aflétting hafta
myndi hefjast á þessu ári.
Stýrinefnd er yfir framkvæmdastjórninni. Í henni sitja
meðal annarra Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og
Már Guðmundsson seðlabankastjóri, sem flestir viðmælend-
ur virðast sammála um að hafi talað fyrir samningaleið í
slagnum við kröfuhafa frekar en gjaldþrotaleið. Endurskipan
Bjarna á Má í stól seðlabankastjóra fyrr í þessum mánuði og
skipan hans á framkvæmdastjórninni er að margra mati vísir
að því að Bjarni sé sömu skoðunar. Innan Framsóknarflokks-
ins, og sérstaklega á meðal helstu ráðgjafa leiðtoga flokksins,
hefur hins vegar verið miklu meiri stuðningur við gjald-
þrotaleiðina. Haftamálið, sem er stærsta einstaka áskorun
íslenskra stjórnmála í dag, gæti því látið hrikta vel í stoðum
ríkisstjórnarsamstarfsins þegar á reynir.