Kjarninn - 04.09.2014, Blaðsíða 36
01/01 SpES
01/01 spes kjarninn 4. september 2014
SpES Heimsmetabók Guinness viðurkennir ekki elstu konu í heimi, sem kveðst 127 ára
fæðingarvottorðið
glataðist fyrir 40 árum
Þ
egar Leandra Becerra
Lumbreras fæddist í litlu
þorpi í Mexíkó hinn 31. ágúst
árið 1887 var enn rúmlega
ár í að Kobbi Kviðrista
hrelldi Lundúnabúa með hrottafengnum
glæpum sínum. Á þeim tíma hafði heldur
engin heyrt um útvarp, körfubolta eða
flugvélina.
Ættingjar Leöndru fullyrða að gamla
konan sé 127 ára gömul og þar með elsta
manneskja sem nokkurn tímann hefur
lifað á jörðinni. Heimsmetabók Guinness
neitar hins vegar að viðurkenna langlífi
Leöndru, þar sem fæðingarvottorð hennar
glataðist fyrir fjörutíu árum og því er
engin leið að fá aldur hennar staðfestan.
Ættingjar gömlu konunnar,
sem lifði tvær heimsstyrjaldir,
mexíkósku byltinguna, kalda stríðið og
internetöldina, segja hana ótrúlega erna
og hún geti rifjað upp nákvæmar sögur úr
löngu lífshlaupi sínu.
Leandra, sem vann áður sem sauma-
kona, býr í borginni Zapopan í Mexíkó,
en hún lifði öll fimm börnin sín. Hún á
tuttugu barnabörn, 73 barnabarnabörn og
55 barnabarnabarnabörn.