Morgunblaðið - 18.08.2012, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.08.2012, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2012                             !  " # $   % &            $   &               $   $%&               $   &      ! "         ## "   '  "          BAKSVIÐ Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Tré, lúpína og annar hárreistur gróður kemur víða í veg fyrir að þeir sem fara um göngu- og hjól- reiðastígana í Elliðaárdal sjái um- ferð sem kemur á móti. Svipaðar aðstæður eru raunar víðar á höf- uðborgarsvæðinu. Að mati blaða- manns sem þetta ritar er slysahætt- an í Elliðaárdal augljós. Það bætir ekki úr skák að samkvæmt upplýs- ingum frá Reykjavíkurborg hefur verið töluvert um að göngufólk kvarti undan of miklum hraða hjól- reiðamanna á þessari leið. Stígurinn sem um ræðir liggur sunnan við og meðfram Elliðaánum, það er að segja Breiðholtsmegin, og fer m.a. framhjá Árbæjarstíflunni. Stígnum var á sínum tíma skipt þannig að þriðjungur hans var merktur sem hjólarein en afgang- urinn er ætlaður gangandi vegfar- endum. Þegar farið er upp dalinn er hjólareinin hægra megin á stígnum. Reykjavíkurborg hefur raunar hætt að halda hjólareininni við en línan sem skiptir stígnum er engu að síður ágætlega greinileg og lang- flestir sem fara þarna um virða hana – reyndar þannig að stundum gengur virðingin fyrir skiptingunni fram úr hófi. Það hefur blaðamaður margoft fengið að reyna en hann hjólar stíginn nánast daglega. Þannig er býsna algengt þeir sem hjóla niður dalinn – og eru því vinstra megin á stígnum miðað við stefnu – víki seint og illa fyrir þeim sem eru að hjóla upp dalinn og eru hægra megin á stígnum miðað við stefnu. Það er eiginlega eins og sumir hjólreiðamenn haldi að þeir megi ekki hjóla nema á hjólarein- inni. Eykur hættu á árekstri Ekkert af þessu myndi þó skipta miklu máli ef útsýn yfir stíginn væri góð en svo er alls ekki. Á all- mörgum stöðum við stíginn skyggir gróður svo á stíginn að hann býr til blindbeygjur og jafnvel blindhæðir. Vegna þess hversu illa sést fram á stíginn er augljóslega meiri hætta á að hjólreiðamenn skelli saman og þetta hlýtur einnig að auka hættuna á árekstri hjólreiðamanna og gang- andi vegfaranda. Slíkt er ekkert grín, sérstaklega ekki þar sem á stígnum er ágætlega brött brekka en eins og allir vita fara hjól aldrei hraðar en þegar þeim er hjólað nið- ur brekkur. Þar að auki eru ým- iskonar farartæki þarna á ferð, m.a. rafmagnsvespur og kraftmikil raf- magnsreiðhjól. Verulega mætti bæta ástandið og auka öryggið með því einu að fella nokkur tré, klippa önnur og slá lúpínubreiðurnar sem vaxa við stíginn. Ofvaxinn gróður skyggir á stíginn Morgunblaðið/Sigurgeir S. Þröngt Á þessum stað, skammt neðan við Árbæjarstíflu er útsýni mjög skert vegna gróðurs. Hjólareinin er hægra megin á myndinni en sést illa á blautum stígnum. Algengt er að þeir sem hjóla niður stíginn haldi sig á hjólareininni.  Gróður við göngu- og hjólastíg í Elliðaárdal býr til blindbeygjur og -hæðir  Kvartað undan hraða  Hjóla eftir mjórri hjólarein þótt borgin sé hætt að halda merkingum við  Þyrfti að fella tré Morgunblaðið/Rúnar Pálmason Umferð Aðstæður eru víða þannig að þeir sem eru að hjóla niður stíginn sjást seint vegna mikils gróðurs. Ferðin getur líka verið töluverð. Mótmæli vegna fyrirhugaðrar hækkunar á virðisaukaskatti á gist- ingu hafa á umliðnum dögum borist frá fjölmörgum sem láta sig málefni ferðaþjónustunnar varða. Stjórn Ferðamálasamtaka Suðurnesja seg- ir að slík hækkun muni orsaka veru- legt bakslag í ferðaþjónustunni. „Minnt skal á að opinberar rann- sóknir á þessari mikilvægu atvinnu- grein eru nánast engar sem er ekki í neinu samræmi við það sem er í öðr- um helstu atvinnugreinum þjóð- arinnar. Forsendurnar á bak við þessa hækkun eru því ekki til. Ferðamálasamtökin skora á rík- isstjórn Íslands og Alþingi að endur- skoða hugmyndir um hækkun virð- isaukaskatts úr 7 í 25,5%, annað væri ábyrgðarlaust,“ segir þar. Bæj- arráð Reykjanesbæjar hefur sam- þykkt ályktun þar sem varað er við afleiðingum hækkunar virð- isaukaskattsins. Ályktunin var sam- þykkt á fundi bæjarráðs með meiri- hluta atkvæða fulltrúa Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks eða 4-1. Fulltrúi Samfylkingar greiddi at- kvæði gegn ályktuninni. „Hækkunin mun koma niður á allri ferðaþjón- ustu á Suðurnesjum sem veitir á annað þúsund íbúum Suðurnesja at- vinnu. Óhjákvæmileg afleiðing skattahækkunar er samdráttur sem mun hafa í för með sér fækkun ferðamanna sem veldur fækkun flugferða og minni þörf fyrir starfs- fólk í ferðaþjónustu sem aftur leiðir af sér aukið atvinnuleysi á Suð- urnesjum,“ segir í ályktuninni. Ferðamálasamtök Íslands skora á ríkisstjórnina að endurskoða fyr- irhugaða hækkun. „Það er furðulegt að ríkisvaldið skuli með annarri hendinni leggja fé í markaðsátakið „Ísland allt árið“ til að örva við- skiptin og dreifa gestum um landið og með hinni hendinni stefna öllu í uppnám með svo vanhugsuðum að- gerðum,“ segir í yfirlýsingu. om- fr@mbl.is Segja hækkun stefna öllu í uppnám  Mótmæla fyrirhugaðri skattahækkun Morgunblaðið/Eggert Ferðaþjónusta Fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts mótmælt. Skannaðu kóðann til að sjá fleiri myndir af stígn- um. Ábendingu um ofvöxtinn í gróðrinum var komið til Reykja- víkurborgar á miðvikudag. Þórólfur Jónsson, garð- yrkjustjóri borgarinnar, sagði að sínir menn myndu skoða að- stæður en bætti við að þeirra hlutverk væri að sjá til þess að gróður slútti hvorki yfir göngu- og hjólreiðastíga né yxi inn á þá. Þeir myndu ekki taka ákvörðun um hvort fella ætti tré eða snyrta gróður utan stíg- anna, eingöngu til að bæta sjón- línu fyrir hjólreiðamenn, heldur félli slíkt undir verksvið umferð- arsérfræðinganna. Pálmi Freyr Randversson, sérfræðingur í umferðarmálum hjá umferðarsviði, sagði að mál- ið yrði skoðað og metið hvernig bæta mætti úr. Báðir þökkuðu fyrir ábendinguna. Við þetta má kannski bæta að borgin leggur að íbúum að halda gróðri á lóðum í skefjum. „Trjágróður sem vex út fyrir lóð- armörk getur skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur. Reykja- víkurborg hvetur garðeigendur til að klippa tré sín svo þau hvorki hindri vegfarendur, hylji umferðarskilti né dragi úr götu- lýsingu,“ segir á vef borg- arinnar. Íbúar hvattir til klippinga FAGNA ÁBENDINGUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.