Morgunblaðið - 18.08.2012, Blaðsíða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2012
Í vikunni gáfu sómapiltarnir í Moses Hightower út sína aðra breið-
skífu en gripurinn ber nafnið Önnur Mósebók. „Við erum búnir að
vera að vinna í þessari plötu eiginlega alveg frá því að síðasta plata
kom út,“ segir Andri Ólafsson, meðlimur sveitarinnar, en fyrri plata
þeirra félaga, Búum til börn, kom út í
júlí árið 2010. Andri segir upp-
tökuferlið hafa verið skemmtilegt en
oft hafi það reynt á þolinmæðina þar
sem hljómsveitarmeðlimir hafi verið
búsettir í nokkrum löndum.
„Þetta var tekið í nokkrum törn-
um með pásum á milli,“ útskýrir
hann og bætir við að á þessum tveim-
ur árum hafi sveitin ekki náð að spila
mikið á tónleikum. „Við höfum dvalið
mikið hvert í sínu landinu og þegar við erum allir saman komnir
hefur ekki alltaf gefist tími til að spila vega anna í upptökum og
slíku. Þetta hefur verið mjög skemmtilegt en einnig krefjandi út af
þessum takmörkunum.“
Ekki fastir í sama farinu
Andri segist virkilega sáttur við nýju plötuna sem inniheldur eins
og hin fyrri frumsamin lög Moses Hightower. „Þetta er ekkert
rosalega stórt stökk músíkalskt séð en við erum alls ekki fastir í
sama farinu,“ segir hann og bætir við að munurinn á plötunum
tveimur geti breyst við hverja hlustun. „Ég á erfitt með að gera
mér nákvæmlega grein fyrir muninum á plötunum tveimur því það
fer svo mikið eftir því hvort verið er að skoða til dæmis trommur,
bassa eða textann,“ segir Andri sem ásamt Steingrími Kára Teague
semur hnyttnu lagatextana sem sveitin hefur fengið mikið lof fyrir.
„Við erum svo ótrúlega hressir gaurar að við höfum enga þörf
fyrir að taka okkur of alvarlega svo textarnir eru bara um hitt og
þetta,“ segir hann en lagasmíðar sveitarinnar eru í höndum allra
hljómsveitarmeðlima og verða þau flest til á æfingum að sögn
Andra. „Reyndar á Danni gítarleikari mjög stóran bút í þessari
plötu,“ segir hann og bendir á að oftar en ekki hafi lögin verið nær
tilbúin þegar Daníel mætti með þau á æfingar.
Á næstu vikum kemur hljómsveitin til með að spila á nokkrum
tónleikum til að kynna plötuna og hefst tónleikaröðin með útgáfu-
tónleikum Moses Hightower í Iðnó næstkomandi fimmtudag. „Ef
fólk vill heyra okkur spila þá er tækifærið á næstu vikum og svo
ekkert fyrr en um jólin,“ segir Andri.
sigyn@mbl.is
„Ekkert rosalega stórt stökk“
Önnur Mósebók heitir önnur
breiðskífa Moses Hightower
Morgunblaðið/Golli
Hressir „Við erum svo ótrúlega hressir gaurar að við höfum enga þörf fyrir að taka
okkur of alvarlega svo textarnir eru bara um hitt og þetta,“ segir Andri Ólafsson.
Gallerí Ágúst
fagnar fimm ára
starfsafmæli
sínu um þessar
mundir og af því
tilefni verður
opnuð þar sýn-
ing í dag kl. 16
sem ber heitið
Myndbreyting.
Myndlistarkon-
urnar Anna
Hallin, Harpa
Dögg Kjartansdóttir og Valgerður
Guðlaugsdóttir sýna á henni verk
sem þær unnu beint á veggi gall-
erísins og verða þær veggmyndir
ljósmyndaðar og prentaðar í tak-
mörkuðu upplagi og veggspjöldin
síðan númeruð og árituð af lista-
konunum. Sigrún Sandra Ólafs-
dóttir á og rekur galleríið og seg-
ir hún sýninguna vera einstakt
verkefni.
Myndbreyting í
Galleríi Ágúst
Sigrún Sandra
Ólafsdóttir
Dansarinn
Margét Sara
Guðjónsdóttir
dansar aðal-
hlutverkið í
verki Gisele Vi-
enne og Dennis
Cooper, This is
how you will dis-
appear, á tónlist-
ar- og leikhúshá-
tíðinni Salzburg-
er Festspiele í Austurríki í kvöld og
19., 20. og 22. ágúst. Verkið var
frumsýnt 2010 á leik- og danslist-
arhátíðinni Festival D’Avignon í
Frakklandi.
Hátíðina í Salzburg má kynna sér
á vefsíðu hennar. Vefslóðin er: salz-
burgerfestspiele.at/.
Dansar á Salz-
burger Festspiele
Margrét Sara
Guðjónsdóttir
NÝTT Í BÍÓ
KVIKMYNDIR.IS
HOLLYWOOD REPORTERSÉÐ OG HEYRT
MBL
58.000 GESTIR Á 24 DÖGUM
STÆRSTA MYND SUMARSINS
HVAÐ ER RAUNVERULEGT?
- Guardian
- Time Entertainment
- Miami Herald
- Rolling Stone
Frá Framleiðendum Toy Story 3,
Finding Nemo og Up
FRÁBÆR GAMANMYND.
STEVE CARRELL FER Á KOSTUM
b.o. magazinee.t. weekly
STEVE
CARELL
KEIRA
KNIGHTLEY
VINSÆLASTA DANSSERÍA ALLRA TÍMA
MÖGNUÐ DANSATRIÐI!
BESTA MYNDIN Í SERÍUNNI TIL ÞESSA
EGILSHÖLL
VIP
12
12
12
L
L
L
L
L
L
L
L
7
7
7
7
7
7
L
L
L
ÁLFABAKKA
12
12
12
12
AKUREYRI
KEFLAVÍK
L
L
L
12
12
12
STEP UP 4 kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 2D
STEP UP 4 Ótextuð kl. 11:20 3D
BRAVE ísl.Tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 3D
BRAVE ísl.Tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 2D
BRAVE ensku.Tali kl. 8 - 10:20 2D
SEEKING A FRIEND kl. 5:50 - 8 - 10:20 2D
DARK KNIGHT RISES kl. 2 - 6 - 8 - 10 2D
DARK KNIGHT RISES VIP kl. 2 - 6 - 10 2D
MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 1:30 - 3:40 2D
UNDRALAND IBBA ísl.Tali kl. 1:30 2D
7
KRINGLUNNI
L
L
L
12
12
12
STEP UP 4 kl. 5:50 - 8 - 10:20 2D
DARK KNIGHT RISES 5:30 - 9 2D
BRAVE ísl.Tali kl. 1:30 - 3:40- 5:50 3D
BRAVE ísl.Tali kl. 2 - 3:40 2D
SEEKING A FRIEND kl. 8 2D
MAGIC MIKE kl. 10:20 2D
MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 1:30 3D
BRAVE HIN HUGRAKKA ísl.Tali kl. 2 - 4 3D
STEP UP 4 kl. 6 - 8 3D
DARK KNIGHT RISES kl. 10:10 2D
SEEKING A FRIEND kl. 6 - 8 - 10:10 2D
UNDRALAND IBBA ísl.Tali kl. 2 - 4 2D
SELFOSSI
12
12
L
DARK KNIGHT RISES 8 - 10:10 2D
SEEKING A FRIEND kl. 5:50 - 8 2D
UNDRALAND IBBA ísl.Tali kl. 4 2D
STEP UP REVOLUTION kl. 8 2D
TOTAL RECALL kl. 10:10 2D
SEEKING A FRIEND kl. 8 - 10:10 2D
THE BRAVE ísl.Tali kl. 2 - 6 3D
PARANORMAN ísl.Tali kl. 4 2D
UNDRALAND IBBA ísl.Tali kl. 2 - 4 2D
LOL kl. 6 2D
THE DARK KNIGHT RISES
3 - 5-8-9-10:20-(11:10 Bara Lau) 2D
STEP UP 4 kl. 5:40 2D
STEP UP 4 ÓTEXT. kl. 8 3D
TOTAL RECALL kl. 8 - 10:30 2D
TED kl. 6 2D
BRAVE ísl.Tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 3D
BRAVE ísl.Tali kl. 1 - 3:20 2D
ÍSÖLD 4 ísl.Tali kl. 1 - 3 2D
MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 1 2D
MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM
SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT
SPARBÍÓ