Morgunblaðið - 25.08.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Þetta er ekki mjög glæsilegt,“ segir
Þorsteinn Þorsteinsson á Skálpa-
stöðum, um hinar vikulegu veiðitöl-
ur sem hann tekur saman úr völd-
um viðmiðunarám og birtir á vef
Landssambands veiðifélaga, Ang-
ling.is. Þorsteinn fylgir nýjustu töl-
unum á vefnum úr hlaði með grein,
þar sem fram kemur að veiðin í við-
miðunaránum sé komin í 15.686
laxa, nú þegar farið er að síga á
seinni hluta veiðitímabilsins. Laxa-
fjöldinn sem náðist á land í þeim ám
í síðustu viku var aðeins 1.377 fisk-
ar. Þetta er langt undir væntingum
þegar miðað er við að seiðaárgang-
urinn, sem fór til sjávar vorið 2011,
var í mjög góðu lagi, skrifar Þor-
steinn, og bætir við að hægt sé að
greina vikuveiði í hverri þessara áa
síðan árið 2006 og þetta sé lang-
lakasta útkoman þessi sex ár.
„Sé litið til þess að meðalhlutfall
veiðinnar í viðmiðunaránum hinn
15. ágúst er 56,5% af lokaafla
þeirra, þá stefnir nú í ríflega 25.000
laxa veiði samtals í þessum 25 veiði-
ám.
Sé það framreiknað enn frekar
eru samanlagðar lokatölurnar úr
viðmiðunaránum venjulega tveir
þriðju af heildarafla á Íslandi öllu.
Það gefur okkur 37.500 laxa heild-
arveiði yfir allt landið þetta árið,
sem er ekki fjarri meðaltali frá árinu
1974. En miðað við aðstæður nú, þá
óttast ég að þetta sé of bjartsýnisleg
spá. Mér sýnist margt benda til að
veiðin, það sem eftir lifir sumars
verði áfram slök og heildarveiði
tímabilsins því minni en þessir út-
reikningar benda til. Jafnvel niður
undir 30.000 laxa. En jafnvel þó að
svo fari eru samt tíu af síðustu 38 ár-
um verri en það.“
Borgarfjarðarárnar slæmar
Þorsteinn er í sambandi við leigu-
taka og starfsfólk í veiðihúsum í viku
hverri og hann segir andrúmsloftið
þyngra nú en undanfarin ár, enda
hafi göngur verið afar litlar síðsum-
ars og viðmælendur séu sammála
um að lítið sé af laxi í ánum.
„Það er allt annað hljóð í fólki
núna, menn brosa ekki lengur,“ seg-
ir hann. „Borgarfjarðarárnar eru til
að mynda slæmar og mér sýnist að
hvorki Norðurá né Þverá nái 1.000
löxum. Það þarf að fara langt aftur
til að sjá það.“
Heildarlaxveiðin í fyrra var rúm-
lega 52.000 laxar og sumarið 2010
fór hún yfir 75.000. Í grein sinni á
vefnum bendir Þorsteinn á að þótt
veiðitölur falli nú niður í 30.000 laxa,
séu tíu af síðustu 38 árum verri en
svo. Það sem hefur hinsvegar breyst
á þessu tímabili er að hafbeitar-
árnar, og þá einkum Rangárnar,
hafa farið að skila sífellt stærri hluta
heildarveiðinnar. Ef þær eru teknar
úr þessum tölum í sumar, er myndin
enn verri sem draga má upp.
„Vissulega skekkja hafbeitar-
árnar tölurnar,“ segir Þorsteinn.
„Svo er farið að sleppa laxi aftur í sí-
auknum mæli og hann veiðist gjarn-
an aftur. Sleppingar auka síðsum-
arsveiði.“
Þorsteinn segir að þótt heimtur
séu víða slæmar, og hafinu virðist
vera um að kenna frekar en slæmri
niðurgöngu seiða í fyrravor, þá skili
hafbeitarárnar, og þá einkum Rang-
árnar, þokkalegum árangri. „Í
Rangánum er farið að veiða 100 laxa
á stöng á dag og það hefur þótt góð-
ur sumarafli. Það sýnist sem eldis-
seiðin skili sér skár en villtu laxa-
seiðin,“ segir hann.
Þorsteinn var formaður Veiði-
félags Grímsár og Tunguár í meira
en fjóra áratugi og hann er ekki
ánægður með veiðina í sinni heimaá.
„Nei, 396 laxar veiddir á þessum
tíma, það er hrikalegt,“ segir hann
og bendir á að minnst hafi 717 laxar
veiðst í ánni. Síðustu ár hefur veiðin
ekki farið undir 1.000 laxa á sumri
og sumarið 2008 veiddust 2.225.
Aldrei jafn lítið af laxi og nú
Blaðamaður hitti veiðimenn við
Haukadalsá í gær og þeir sögðu sög-
ur sem eru að verða kunnuglegar;
þeir sögðu miklu minni göngur
greinilega hafa verið í ána í sumar
en þeir hafa séð undanfarin ár.
„Ég hef veitt hér í yfir 30 ár og
aldrei hefur verið jafn lítið af laxi og
nú,“ sagði svissneskur veiðimaður.
Sem dæmi nefndi hann að í þessari
viku fyrir tveimur árum hefðu veiðst
yfir 140 laxar á stangirnar fimm. Nú
voru þeir búnir að fá fjóra! Hann hló
og hristi höfuðið eftir að hafa miðlað
þessum upplýsingum, óð síðan út í
ána og tók til við að kasta, eins og
veiðimenn gera um land allt. Það
veiðist nefnilega ekki neitt ef agnið
er ekki í vatninu.
Ágætar laxagöngur voru í Hauka-
dalsá fyrri hluta sumars, en síðan
virðist taka fyrir þær eins og víða
annars staðar. Fyrir vikið er talsvert
af laxi í nokkrum helstu hyljunum,
einkum kringum veiðihúsið, en lítið
annars staðar. Og þeir laxar sem
hafa komið sér fyrir taka afar illa.
Um 390 laxar hafa veiðst í ánni.
Um þrír á dag á stöngina
Fyrsta svokallaða maðkahollið
lauk veiðum í Langá á Mýrum um
hádegi í gær. Að sögn Mjallar Daní-
elsdóttur staðarhaldara veiddust
146 laxar á stangirnar 12 á fjórum
dögum. „Þetta voru um þrír laxar á
stöng á dag,“ segir hún. Fyrsta
maðkahollið hefur iðulega veitt bet-
ur en Mjöll segir minna af laxi í ánni
en síðustu ár, eins og annars staðar,
og veiðimennirnir hafi verið „sáttir
og ánægðir.“
„Menn brosa ekki lengur“
Í Hnausastreng Þótt þeir séu færri í ár en undanfarið veiðast enn víða fall-
egir laxar. Vigfús Orrason náði þessum 97 cm langa hæng í Vatnsdalsá.
Framreiknaðar laxveiðitölur sumarsins sýnast ekki fjarri meðalveiði frá árinu 1974 Þorsteinn
Þorsteinsson á Skálpastöðum óttast að það sé of bjartsýnisleg spá Fyrsta maðkahollið í Langá veiddi 146
Aflahæstu árnar Staðan 22. ágúst 2012
Heimild: www.angling.is
Veiðivatn Veiði
24. ágúst
2011Stangafj.
18. ágúst
2010
19. ágúst
2009
Ytri-Rangá og Hólsá 22 2.588 2652 3117 4509
Eystri-Rangá 18 2.064 3008 3116 2317
Selá í Vopnafirði 8 1.181 1609 1468 1446
Miðfjarðará 10 1.112 1746 2125 2337
Haffjarðará 6 955 1310 1502 1240
Blanda 16 829 1887 2739 2186
Norðurá 14 802 2020 1897 1935
Elliðaárnar 6 744 1070 1060 805
Hofsá og Sunnudalsá 10 742 683 648 (7 stangir) 715 (7 stangir)
Langá 12 702 1442 1205 1774
Þverá - Kjarrá 14 629 1611 3107 1950
Grímsá og Tunguá 8 396 1004 1434 904
Haukadalsá 5 391 448 782 694
Laxá í Kjós 10 360 776 850 815
Laxá í Aðaldal 18 354 867 1005 717
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
HVAR ER
HÚFAN MÍN?
Frá höfundi
bókarinnar
Sokkaprjón
GLÆNÝ
PRJÓNA
BÓK!
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Úrvals ílát
100 lítrar
5.450
50 lítrar
3.990
35 lítrar
2.695
75 lítrar
4.990
35 lítrar
2.290
50 lítrar
3.390
18 lítrar
1.790
45 lítrar
3.690
Hvítt = fyrir matvælaiðnað
– lok fáanleg
Margar stærðir af
fötum og bölum á
góðu verði !
12 lítra fata
298,-
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Húsavík
Vestmannaeyjum