Morgunblaðið - 25.08.2012, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
Síðumúla 11, 108 Reykjavík,
sími 568 6899, vfs@vfs.is
www.vfs.is
Tilboð á toppasettum
78 hluta toppasett ¼ og ½
Toppar frá 10MM til 32MM.
Framlengingar og bitajárn.
Tilboðsverð Kr. 22.900.-
43 hluta toppasett ¼ með
bitasetti.
Toppar frá 4MM upp
í 13MM
Tilboðsverð kr. 8.900.-
54 hluta toppasett ½ með
föstum lyklum.
Ríkulega búið og gott að
hafa í bílnum.
Tilboðsverð kr. 27.900.-
Vinsamlega geymið auglýsinguna
Ævintýraferð á ári Slöngunnar
5.-23. júní 2013
með
KÍNAKLÚBBI UNNAR
Farið verður til BEIJING, XIAN, GUILIN, YANGSHUO,
SHANGHAI, SUZHOU og TONGLI.
Siglt verður á LÍ FLJÓTINU og á
KEISARASKURÐINUM og farið á KÍNAMÚRINN.
Heildarverð á mann: Kr. 520 þúsund
Kínastund
Kínaklúbbur Unnar
Njálsgötu 33, 101 Reykjavík
sími/símbréf: 551 2596, farsími: 868 2726
Vefsíða: www.simnet.is/kinaklubbur
Netfang: kinaklubbur@simnet.is
Hópar og einstaklingar geta pantað „Kínastund“, á Njálsgötunni, með mynda-
sýningu, sýningu á Tai-Chi og kínverskum listmunum, ásamt veitingum.
Kínaklúbburinn sérhannar einnig ferðir fyrir hverja sem er
Til Kína með konu sem kann sitt Kína
Allt innifalið, þ.e. fullt prógramm samkvæmt ferðaskrá, gisting í tvíbýli á
4-5 stjörnu hótelum (einb. + 95 þ.), fullt fæði með máltíðardrykkjum, skattar
og gjöld, staðarleiðsögumenn og fararstjórn Unnar Guðjónsdóttur, en þetta
verður 34. hópferðin sem hún skipuleggur og leiðir um Kína.
SVIÐSLJÓS
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Því kalla ég eftir því að Fjármálaeftir-
litið hefji formlega rannsókn á þessum
málum og gangi ótvírætt úr skugga um
það hvort unnið hefur verið gegn úr-
skurðum þess og lögum 107/2009 [um
endurreisn fjárhags heimila og fyrir-
tækja],“ segir í bréfi sem Víglundur
Þorsteinsson, fyrrverandi stjórnarfor-
maður BM Vallár, hefur afhent Fjár-
málaeftirlitinu.
Sl. mánudag boðaði Víglundur til
fréttamannafundar þar sem hann og
Sigurður G. Guðjónsson hrl., gagn-
rýndu harðlega verklag stjórnvalda í
kjölfar hrunsins og starfsaðferðir Arion
banka við yfirtöku BM Vallár. Lögð
voru fram ýmis gögn á fundinum sem
Víglundur segir benda til að ráðherrar
og einstakir starfsmenn nýju bankanna
og skilanefnda hafi gerst brotlegir við
ákvæði laga.
Eftirlits- og rannsóknaskylda
Í bréfinu sem stílað er á Unni Gunn-
arsdóttur, forstjóra FME, rekur Víg-
lundur árangurslausar tilraunir til að fá
upplýsingar úr fjármálaráðuneytinu
sem leiddi til þess að hann leitaði til úr-
skurðarnefndar um upplýsingamál.
Fékk hann staðfest að í Arion banka
hefði verið til sérstakur listi um endur-
vinnslu afskrifta tiltekinna útlána og að
á þeim lista væri að finna nafn BM Vall-
ár.
Víglundur segist leita til FME í
fyrstu umferð áður en hann leiti til ann-
arra opinberra aðila því á FME hvíli
eftirlits- og rannsóknarskyldan á hugs-
anlegum brotum á 19. gr. laga 161/2002.
FME hafi allar heimildir til að kalla eft-
ir þeim gögnum sem honum var synjað
um aðgang að til að ganga úr skugga
um hvort skilanefnd Kaupþings og Ar-
ion banki hafi unnið í samræmi við
ákvarðanir Fjármálaeftirlitsins.
„Bréf þetta rita ég stofnun yðar fyrst
áður en annað er leitað út frá þeim al-
mennu sjónarmiðum um meðalhóf að
freista þess að fá fyrst fram rannsókn á
minni lagabrotum samkvæmt sérlög-
um áður en gengið er eftir rannsókn á
meiriháttar lögbrotum á almennum
hegningarlögum,“ segir í niðurlagi
bréfsins.
Víglundur segir að frá því að hann
hélt blaðamannafundinn hafi fjöldi
manna haft samband við hann símleiðis
og sagt frá sínum óförum í samskiptum
við þessa sömu aðila. „Það er enn ein
vísbending um að hjá þeim kunni að
hafa verið í gangi víðtæk og kerfisbund-
in aðgerð við að sniðganga úrskurði
FME og reglur laga 107/2009 um end-
urreisn fjárhags heimila og fyrirtækja.“
1.500-2.000 biðlán í kerfinu
Víglundur sagði í samtali í gær að af
viðbrögðunum sem hann hefði fengið
væri ljóst að mikill fjöldi fólks ætti um
sárt að binda vegna viðskipta sinna við
Arion banka og væntanlega fleiri fjár-
málastofnanir.
Það væri þeim öllum sammerkt að
þora ekki að tala opinberlega vegna
þess að þau væru ekki búin að fá lausn
sinna mála eða bankinn hefði á þeim
tök vegna viðskiptasambands.
,,Jafnvel þótt fyrirtæki teljist vera
búin að fá lausn í fjárhagslegri end-
urskipulagningu er þeim haldið í gísl-
ingu með skilmálum í samningum um
viðbótargreiðslur eða svokölluðum bið-
skuldabréfum sem skuli taka gildi ef
betur myndi ganga en áætlanir gera
ráð fyrir.“
Víglundur segir að honum hafi verið
sagt að í dag séu 1.500 til 2.000 biðlán í
gangi í kerfinu. „Þegar búið er að end-
urskipuleggja fyrirtæki á grundvelli
þess hvað þau eru talin geta borið af
skuldum fram á veginn, þá eru þau því
til viðbótar látin undirrita biðlán. Hver
er þá hvatinn til þess að gera eitthvað?
Ef þú veist að þó að þér takist að slíta
af þér hlekkina, þá bíða bara nýir. Þú
hleypur ekki hratt á meðan svo er,“
segir hann
Skilmálarnir séu gjarnan hangandi
yfir fólki sem sé í þessari stöðu í fimm
ár eftir endurskipulagningu. Á meðan
séu fyrirtækin í raun í þrælavinnu fyrir
bankann og viðbúið að lítil framþróun
verði hjá þeim.
Víglundur fer fram á rannsókn
Morgunblaðið/Kristinn
Lögbrot? „Það sem þegar er fram komið sýnist ótvírætt benda til þess að lög kunni að hafa verið brotin þar á bæj-
um og úrskurðir Fjármálaeftirlitsins virtir að vettugi,“ segir í bréfi Víglundar Þorsteinssonar til forstjóra FME.
Fjöldi fólks hefur haft samband við hann og greint frá óförum í samskiptum við bankana Vill fyrst
rannsókn á minni lagabrotum áður en gengið er eftir rannsókn á meiriháttar brotum á hegningarlögum
Listi með nöfnum
» Í bréfinu minnir Víglundur á
að úrskurðir FME á grundvelli
neyðarlaganna frá 2008 hafa
aldrei verið afturkallaðir.
» Á meðan allir aðrir kröfuhaf-
ar unnu með BM Vallá að fjár-
hagslegri endurskipulagningu
með jákvæðum hætti hafi Ar-
ion banki verið eini kröfuhafinn
sem aldrei gaf færi á því.
» Bréfinu til FME fylgir listi
með nöfnum þeirra ein-
staklinga í Arion banka og
skilanefnd Kaupþings sem
fjölluðu um mál BM Vallár hf.
„Það hefur lengi verið á kreiki
orðrómur sem mér barst til eyrna
frá starfsmönnum innan úr bank-
anum [Arion banka] sem og öðr-
um haft eftir sömu aðilum að á
árinu 2009 hafi verið í gangi
vinna í þeirri deild sem annaðist
fjárhagslega endurskipulagningu í
bankanum um það að yfirtaka fé-
lagið [BM Vallá],“ segir Víglundur
Þorsteinsson í erindi sínu til FME.
Segist hann vita fyrir víst að
um BM Vallá hafi staðið tog-
streita milli umræddrar deildar
og fyrirtækjasviðs bankans, „sem
vildi vinna með okkur að fjár-
hagslegri endurskipulagningu fé-
lagsins“.
Eftir því sem samningar við
ríkið þokuðust fram um að skila-
nefnd tæki við ríkisbankanum
haustið 2009 sýnist sem örlög
BM Vallár hafi verið ráðin og
ákveðið hafi verið að yfirtaka fé-
lagið. „Þrátt fyrir að við hefðum
þá þegar m.a. vegna umræðna
um hugsanlegt ólögmæti gengis-
bundinna lána samanber skýrslu
Seðlabankans þar um á árinu
2009 varað við því að lán bank-
ans til félagsins væru líklegast
þeim vafa undirorpin.“
Örlög BM Vallár ráðin 2009
TOGSTREITA INNAN BANKANS UM YFIRTÖKU FÉLAGSINS