Morgunblaðið - 25.08.2012, Page 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
Hefur barnið þitt
einhver af neð-
angreindum einkenn-
um?
Eru með læti eða
ofvirk í félagslegum
aðstæðum.
Draga sig í hlé, eru
mikið inni í herbergi
eða mikið ein.
Krefjast athygli,
með bæði jákvæðri eða neikvæðri
hegðun.
Sýna óeðlilega mikið skap, skap-
sveiflur, árársargirni.
Eru kvíðin, hræðslugjörn, við-
brigðin, fresta eða eru hrædd við
fullorðna.
Eiga erfitt með að treysta öðr-
um eða eignast vini.
Nota ljót orð/bölva.
Upplifa martraðir eða slæma
drauma.
Svefnvandamál: erfitt að sofna,
sofa illa eða erfitt að vekja.
Höfuðverkur eða magaverkir,
sérstaklega á morgnana.
Hræðast að vera skilin frá for-
eldri eða umsjónaraðila.
Námserfiðleikar, erfiðleikar
með einbeitingu og nám í skóla.
Herma eftir ofbeldisatburði eða
áfalli: teikna, leika eða segja að
annar hafi lent í.
Lélegt sjálfsmat, léleg dóm-
greind.
Sýna pirring, sorg, depurð eða
kvíða.
Hafa slæma færni, t.d. fé-
lagsfærni.
Pissa undir, hægðavandamál eða
sýna afturför í hegðun.
Ef barnið þitt er með nokkur af
þessum einkennum þá gæti það
verið að kljást við mikla streitu
eða áfallastreitu PTSD.
Það sem getur valdið PTSD hjá
börnum er:
Margir litlir neikvæðir eða
slæmir atburðir eða einn stór.
Erfðir eða yfirfærsla frá for-
eldri til barns. http://ccp.sage-
pub.com/content/early/2012/05/04/
1359104512444116.
Það hefur komið í ljós möguleiki
á yfirfærslu frá afa og ömmu yfir
á barnabarn. http://www.went-
zelcoetzer.org/impactintergent-
rauma.htm.
Erfiðleikar á meðgöngu eða að
barnið var óæskilegt, erfið fæðing,
slæm tengsl við móður í upphafi,
vera sett í fóstur, slys (íþróttaslys,
bílslys), flutningar,
skilnaður foreldra,
langvinn veikindi, t.d.
eyrnabólgur, áfeng-
isneysla foreldra, rifr-
ildi, atvinnuleysi for-
eldra (peningaleysi),
of mikil vinna for-
eldra (vanræksla),
hverskonar ofbeldi
(einelti, kynferðislegt,
andlegt, líkamlegt, til-
finningalegt, s.s. reiði
og pirringur foreldra
í garð barns, ljót orð),
að sjá eithvað ljótt (atvik, fréttir,
bíómyndir) eða upplifa og margt,
margt fleira getur orsakað PTSD.
PTSD er flokkað í 3 grunn
flokka:
1. Að endurlifa atburðinn og það
truflar daglegt líf (einkenni barna
geta verið önnur)
2. Forðast
3. Æsingur
Innan þessara flokka eru gríð-
armörg einkenni, þar á meðal þau
einkenni sem talin eru upp hér að
framan. Þegar barn fer í greining-
arferli vegna hegðunarraskana þá
er sjaldan athugað hvort barnið
geti verið með PTSD. Áhrif áfalla
eða slæmra atburða á börn eru oft
vanmetin og jafnvel talað um að
börn bjargi sér. Börn eru ekki litl-
ir fullorðnir og hafa takmarkaða
rökhugsun til að skilja orsök og
afleiðingu. Sem betur fer er um-
ræðan að verða meiri og margar
stórar rannsóknir hafa verið gerð-
ar eða eru í gangi sem sýna fram
á nauðsyn þess að fylgjast mjög
vel með líðan barna og einkennum
eftir neikvæða atburði, áföll eða
missi. Barn sem er að kljást við
PTSD kemur til með að hafa ein-
kennin áfram á fullorðinsárum og
einkenni geta versnað til muna og
endað í að einstaklingur getur
ekki lokið skóla eða unnið. Fylgi-
kvillar geta verið þunglyndi, kvíði,
síþreyta, vefjagigt, átraskanir,
fælni, frestanir og fleira. Það get-
ur verið erfitt að greina áfalla-
streitu hjá börnum af því að ein-
kenni geta verið ólík einkennum
fullorðinna en það er oft notaður
greiningarlisti CAPS – CA og gef-
ur hann nokkuð góða mynd af því
hvað er að hrjá barnið. Það hefur
sýnt sig í Ameríku og víðar að
PTSD hefur stundum verið greint
sem ADHD vegna þess hve ein-
kenni eru lík. Það er talið að
u.þ.b. 1.000.000 barna í USA séu
ranglega greind.
PTSD getur komið fljótlega eft-
ir áfall eða jafnvel mörgum árum
seinna. Ekki er vitað hvað veldur
því hvort barn fær PTSD eða
ekki, en talið er að erfðir, fyrri
upplifun barnsins og félagsleg
staða barnsins skipti máli. Það
geta allir upplifað streitu vegna
missis og áfalla en það fá ekki all-
ir PTSD.
Hvað er hægt að gera?
Fyrst þarf að fara yfir og
greina hvað hefur gerst í lífi
barnsins og foreldra. Vinna þarf
með orsök, ekki afleiðingu. Það
eru nokkrar meðferðir í boði hjá
sérfræðingum í meðferð PTSD hjá
börnum: IRRT, PICT, EMDR,
TFT, HAM og dáleiðsla svo eitt-
hvað sé nefnt. Það er nauðsynlegt
að spyrja fagaðila hvort hann hafi
sérfræðiþekkingu í áfallastreitu
barna áður en farið er með barnið
í meðferð svo að tryggt sé að
barnið fái viðeigandi meðferð.
Einstaka sinnum eru gefin lyf ef
kvíði eða sjálfsvígshætta er mikil.
En öll lyf hafa aukaverkanir og
talið er að geðlyf geti haft slæm
áhrif á þroska heila hjá börnum.
Hjartanærandi uppeldisaðferð
hefur sýnt mikinn árangur í að
vinna með hegðunarraskanir
barna og getur gjörbreytt lífi
barna og fullorðinna. Vinnur vel á
ADHD, ODD, OCD, PTSD, kvíða,
þunglyndi, einhverfu, asperger og
fleiru. www.difficultchild.com.
Meiri upplýsingar og aðstoð er
m.a. hægt að fá hjá Lifðu lífinu,
félagi til stuðnings börnum með
hegðunarraskanir. www.lifdulif-
inu.is.
Eftir Grétu
Þorbjörgu
Jónsdóttur
» PTSD getur komið
fljótlega eftir áfall
eða jafnvel mörgum ár-
um seinna.
Gréta Jónsdóttir
Höfundur er fjölskyldu- og hjónaráð-
gjafi. HNA-uppeldisráðgjafi. PICT
og IRRT Therapist. Nemi í traumato-
logy/áfallafræðum.
Ertu með erfitt
eðavanvirkt barn?
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn
grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu not-
anda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
Thermowave plötuvarmaskiptar
Þýsk hágæða vara á hagkvæmu verði
Eimsvalar fyrir sjó og vatn
Olíukælar fyrir sjó og vatn
Í mjólkuriðnað gerilsneiðingu
Fyrir orku iðnaðinn
Glycol lausnir fyrir byggingar og
sjávarútveg í breiðu stærðar úrvali
Títan–laser soðnir fyrir
erfiðar aðstæður svo sem
sjó/Ammoníak
Kælismiðjan Frost – leiðandi afl í kæliiðnaði
www.frost.is
Sjá sölustaði á istex.is
Hlý og falleg
í skólann