Morgunblaðið - 25.08.2012, Síða 49
Lewis Holland heitinn. Hann var
svo vænn að yfirfara með mér að-
ferð mína, sýndi henni mikinn
áhuga og samþykkti hana. Í því felst
mikil viðurkenning.
Hitt verkefnið er Nemanet-kenn-
ingin sem miðar að bættri nýtingu
námsstöðva í heila með tilliti til ein-
beitingar og námsárangurs. Nema-
net-kenningin var birt í bók minni
„Lærum að nema“ sem Mál og
menning gaf út 2004, en ég starfa
nú að því verkefni í samstarfi við
Reykjanesbæ, Keili og hugbún-
aðarhúsið Habilis með stuðningi
Tækniþróunarsjóðs RANNÍS.
Verkefnið er hugbúnaðarsmíð á for-
sendum kenningarinnar – rafrænn-
ar vinnubókar námsmanna sem
mætir breyttum skilyrðum á raf-
rænum tímum.“
Ásta er auk þess framkvæmda-
stjóri NemaForum – Menningar-
húss við Lækjargötu.
Ásta sat í samstarfsnefnd nor-
rænna námsráðgjafa á háskólastigi,
í Barnaverndarráði Íslands, í Æsku-
lýðs- og tómstundaráði Reykjavík-
ur, í samstarfshópi vegna tillögu að
námi í námsráðgjöf við HÍ, í náms-
matsnefnd menntamála- og fjár-
málaráðuneytis, í stjórn Menningar-
miðstöðvarinnar Gerðubergs, var
formaður Félags íslenskra náms-
ráðgjafa 1985-86, í samstarfshópi
um hönnun upplýsingakerfis til að-
stoðar við námsval, í nefnd vegna
tillögu að rcglugerð fyrir Náms-
ráðgjöf HÍ, í jafnréttisnefnd BHMR
og í ritnefnd háskólahandbók-
arinnar Att studera i Norden 1983-
91.
Fjölskylda
Eiginmaður Ástu er Valgeir Guð-
jónsson, f. 23.1. 1952, tónlistar-
maður og félagsráðgjafi. Foreldrar
hans: Margrét Árnadóttir, f. 1.10.
1928, hönnuður, og Guðjón f. 13.5.
1929. d. 7.3. 1993, lögfræðingur.
Börn Ástu og Valgeirs: Árni Tómas,
f. 9.5. 1977, vaktstjóri, búsettur á
Seltjarnarnesi, en kona hans er
Karine Julie Paroux, nemi við HÍ,
frá Frakklandi; Tómas, f. og d.
17.12. 1987; Arnar Tómas, f. 10.5.
1989, nemi í sálfræði við HÍ; Vigdís
Vala, f. 9.3. 1993, nemi í sálfræði við
HÍ.
Systkin: Kristján Tómas, f. 15.11.
1943, prófessor og yfirlæknir við
Mount Sinai-sjúkrahúsið í New
York; Lára Margrét, f. 9.10. 1947, d.
29.1. 2012, heilsuhagfræðingur og
alþm.; Árni Tómas, f. 19.1. 1950,
yfirlæknir á elli- og hjúkrunarheim-
ilinu Grund; Hallgrímur Tómas, f.
25.1. 1961, viðskiptafræðingur og
framkvæmdastjóri.
Foreldrar: Jónína Vigdís Krist-
jánsdóttir Schram, f. 14.6. 1923,
fyrrv. læknaritari á Rannsóknar-
stofu HÍ, og Ragnar Tómas Árna-
son, f. 13.3. 1917 í Reykjavík, d. 3.3.
1984, söngvari og útvarpsþulur.
Úr frændgarði Ástu Kristrúnar Ragnarsdóttur
Jón Þórðarson
skipstj. í Rvík.
Guðrún Jónsdóttir
frá Hlíðarhúsum í Rvík.
Ellert Schram
skipstj. í Rvík.
Magdalena Árnadóttir
húsfr. í Rvík.
Ásta Thorgrímsson
frá Húsinu á Eyrarbakka
Benedikt Kristjánsson
hreppstj. í Selárdal
Ragnhildur Þórðardóttir
bróðurdóttir Árna, langafa Ragnhildar,
móður Kristjáns Bersa og ömmu Ólafs
Harðarsonar prófessors. Afi Ragnhildar:
Gísli, pr. í Selárdal, bróðir Ísleifs dómstjóra,
afa Guðnýjar, ömmu Halldórs Kiljan Laxness
Ásta K.
Ragnarsdóttir
Ragnar Tómas Árnason
söngvari og útvarpsþulur
Jónína Vigdís Schram
fyrrv. læknaritari
Kristján Schram
skipstj. í Rvík.
Lára Jónsdóttir
húsfr. í Rvík.
Árni Benediktsson
stórkaupm.
Kristrún Tómasdóttir
húsfr.
Tómas Hallgrímsson
Læknaskólakennari, sonasonur Jóns, ættföður
Reykjahlíðarættar, forföður ráðherranna Geirs Hall-
grímssonar, Kristjáns Jónssonar, Péturs Jónssonar,
Haraldar Guðmundssonar og Jóns Sigurðssonar
Björgvin Schram
stórkaupm. og form. KSÍ
Ellert Schram
fyrrv. forseti ÍSÍ og alþm.
Bryndís Schram
fyrrv. dagskrárgerðam.
Kúltúrkonan Ásta á jólavöku hjá
NemaForum 2011.
ÍSLENDINGAR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
Sigurður Jónsson, skáld ogbóndi á Arnarvatni í Mý-vatnssveit, fæddist 25.8. 1878.
Hann var sonur hins ágæta alþýðu-
skálds, Jóns Hinrikssonar, bónda á
Helluvaði í Mývatnssveit, af ætt Jón
harðabónda í Mörk í Laxárdal, ætt-
föður Harðabóndaættar, og Sigríðar
Jónsdóttur frá Arnarvatni.
Sigurður var hálfbróðir Jóns,
alþm. í Múla, föður Árna, alþm. og
ritstjóra frá Múla, föður Jóns Múla
Árnasonar, tónskálds, djassara og
útvarpsmanns, og Jónasar Árnason-
ar, alþm. og rithöfundar.
Hálfsystir Sigurðar var Sigríður,
langamma Sveins Skorra Höskulds-
sonar prófessors og íslenskufræð-
ings.
Seinni kona Sigurðar á Arnar-
vatni var Sólveig Hólmfríður, af
Reykjahlíðarætt og Skútustaðaætt,
dóttir Péturs, alþm. og ráðherra,
sem var bróðir Kristjáns háyfirdóm-
ara sem varð þriðji ráðherra Ís-
lands. Pétur var sonur Jóns Sigurðs-
sonar, alþingisforseta á
Gautlöndum.
Meðal barna Sigurðar og Sól-
veigar Hólmfríðar er Málfríður,
bókavörður og fyrrv. alþm.
Sigurður lauk gagnfræðaprófi frá
Möðruvallaskóla 1899, hóf búskap á
Arnarvatni 1902 og var þar bóndi
allan sinn starfsferil. Hann sendi frá
sér ljóðabækurnar Upp til fjalla,
1937, og Blessuð sértu sveitin mín,
1945. Seinni bókin heitir eftir þekkt-
asta ljóði Sigurðar sem er óður til
sveitar hans. Ljóðið varð mjög
vinsælt á sínum tíma og mikið sung-
ið um árabil við fallegt lag séra
Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði.
Það hefur oft verið nefnt þjóðsöngur
íslenskra sveita og jafnvel komið til
álita í umræðum manna á meðal sem
þjóðsöngur. Lagið og ljóðið hafa
haldið vel sínum vinsældum sem
hafa fremur aukist í seinni tíð frem-
ur en dalað. Það heyrist t.a.m. oft
sungið við útfarir.
Vinur og sveitungi Sigurðar var
Jón Stefánsson (Þorgils gjallandi)
og orti Sigurður um hann ágætt
erfiljóð.
Sjálfur lést Sigurður 1949.
Merkir Íslendingar
Sigurður
Jónsson
Laugardagur
101 árs
Kristín H. Jónsdóttir
90 ára
Jón Kr. Bjarnason
Vigdís Finnbogadóttir
80 ára
Ágúst Þórhallsson
Erla Guðný Sigurðardóttir
Jóhanna Guðjónsdóttir
75 ára
Olga María Franzdóttir
Ólöf Magnúsdóttir
Ragna Hjaltadóttir
70 ára
Stefán Örvar Hjaltason
Tryggvi Valdemarsson
60 ára
Ástríður Kristinsdóttir
Guðmundur Haraldsson
Halldór Gíslason
Jörundur Svavarsson
50 ára
Arnþór Gylfi Árnason
Ágúst Arnar Jakobsson
Hafdís Jónsdóttir
Jörundur Jökulsson
Magnús Eiríksson
Sigrún Hjörleifsdóttir
40 ára
Ólafur Björnsson
Sigurður Ingi Erlingsson
Sólrún Ólína Sigurðardóttir
30 ára
Arnór Jónsson
Hjalti Jónsson
Íris Ósk Ágústsdóttir
Jón Stefán Jónsson
Tinna María Magnúsdóttir
Sunnudagur
90 ára
Bragi Sigurgeirsson
Indriði Sigmundsson
80 ára
Björn Daníelsson
Hafdís Ásmundsdóttir
75 ára
Anna Halldórsdóttir
Helgi Hróbjartsson
70 ára
Ásgeir V. Eggertsson
Garðar Siggeirsson
Grétar Sveinsson
Gunnar Þór Kristjánsson
60 ára
Guðfinnur Friðjónsson
Helgi Gunnarsson
Jóhann Jóhannsson
Kristín Guðjónsdóttir
Stefán Jónsson
50 ára
Birkir Birgisson
Björn Úlfarsson
Fjóla Marinósdóttir
Helga Loftsdóttir
40 ára
Auðunn Jónsson
Bent Marinósson
Bryndís Bjarnadóttir
Sigríður Harðardóttir
Viktor Ragnarsson
30 ára
Daði Freyr Kristjánsson
Edda María Hagalín
Elí Ágúst Ármannsson
Eva Dögg Jóhannesdóttir
Sæunn Magnúsdóttir
Tinna María Ómarsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Lárus ólst upp í
Hveragerði, lauk atvinnu-
flugmannsprófi á þyrlu og
er þyrluflugmaður hjá
Landahelgisgæslunni.
Maki: Ragnheiður Magn-
úsdóttir, f. 1983, íþrótta-
og grunnskólakennari.
Synir: Magnús Bjarki, f.
2008, og Arnar Gauti, f.
2011.
Foreldrar: Kristján Helgi
Lárusson, f. 1961, vélvirki,
og Hrönn Waltersdóttir, f.
1962, listamaður.
Lárus Helgi
Kristjánsson
40 ára Valdís er lærður
framreiðslumeistari,
einkaþjálfari og stofnandi
Jump Fit og FOAM FLEX á
Íslandi.
Maki: Friðþjófur Arnar
Friðþjófsson, f. 1967,
húsasmiður.
Synir: Örn Leó, f. 1994,
og Aron Leó, f. 1996.
Foreldrar: Sigurþór Sig-
urðsson, f. 1944, fram-
kvæmdastjóri, og Guðný
Jónsdóttir, f. 1954, leir-
listamaður.
Valdís Sylvía
Sigurþórsdóttir
30 ára Elín hefur búið á
Akureyri nánast alla tíð,
starfar hjá Þrifum og
ræstivörum á Akureyri og
sinnir húsmóðurstörfum.
Maki: Sverrir Már Jó-
hannesson, f. 1981,
þungavinnuvélarstjóri.
Börn: Aron Máni, f. 2006;
Rakel Nótt, f. 2009, og
Elvar Logi, f. 2011.
Foreldrar: Eyrún Her-
mannsd., f. 1957, skóla-
liði, og Kolbeinn Hjálm-
arsson, f. 1947, rafvirki.
Elín Helga
Kolbeinsdóttir
Skoðaðu úrvalið
www.jens.is
Kringlunni og
Síðumúla 35
Brúðkaup 2012
Persónuleg þjónusta
og mikið úrval
Íslensk hönnun
og handverk
Salattöng 13.900.-
Eilífðarrósin, skúlptúr til í tveimur stærðum
lítil rós 41.500.-
stór rós 44.800.-
Úrval morgungjafa
Handsmíðaðir hringar
úr 14 karata gulli með
hvítagullshúðaðri rönd
149.900.- parið
Settu upp óskalista
hjá okkur og fáðu
15% af andvirði
þess sem verslað er
fyrir í brúðkaupsgjöf
frá Jens!
Borðbúnaður og
skúlptúrar
úr eðalstáli, skreytt
íslenskum steinum
Ostahnífur
7.900.-
Smjörhnífur
7.900.-