Morgunblaðið - 25.08.2012, Page 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Verkefni Þjóðleikhússins í vetur
eru fjölbreytt að vanda og það má
segja að það sé verið að spila á allan
tilfinningaskalann,“ segir Tinna
Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri
um komandi leikár, 2012-13.
„Fyrsta frumsýning vetrarins er
hin sívinsæla fjölskyldu- og barna-
sýning Dýrin í Hálsaskógi. Á þessu
ári eru hundrað ár liðin frá fæðingu
Torbjörns Egners, góðvinar barn-
anna og sérstaks vildarvinar Þjóð-
leikhússins, og fimmtíu ár eru frá
frumuppfærslu á Dýrunum í Hálsa-
skógi sem var einmitt í Þjóðleikhús-
inu. Auk Dýranna verður Karíus og
Baktus sýnt í Kúlunni um áramót,
svo það má segja að Þjóðleikhúsið
haldi veglega upp á aldarafmæli
Torbjörns Egners,“ segir Tinna.
Hilmir og Stefán saman á ný
„Fyrsta kvöldsýningin á Stóra
sviðinu á þessu leikári er Með fulla
vasa af grjóti, sem var fyrst sýnd
hér fyrir tólf árum, naut gífurlegra
vinsælda og var sýnd oftar en nokk-
ur önnur sýning í sögu leikhússins,
eða 180 sinnum. Það er sama teymið
sem stendur að sýningunni og þeir
Hilmir Snær og Stefán Karl leika
alla hina ólíku karaktera sem koma
við sögu í verkinu, eða fjórtán tals-
ins. Það er orðið nokkuð langt síðan
Stefán Karl steig síðast á svið á Ís-
landi, en hann hefur gert það gott
vestanhafs undafarin ár. Það er
verulegur fengur að því að fá einn
helsta gamanleikara þjóðarinnar
aftur til liðs við Þjóðleikhúsið. Æf-
ingar eru langt komnar og óhætt að
lofa óborganlegri skemmtun, þó
verkið sé alls ekki gamanleikur,“
segir Tinna. Þá prýði fjöldi íslenskra
verka verkefnaskrána og fyrsta
frumsýningin í Kassanum verði á
nýju verki eftir Hávar Sigurjónsson,
Jónsmessunótt, í leikstjórn Hörpu
Arnardóttur.
„Eftir áramót verður síðan nýtt
verk eftir skáldkonurnar Kristínu
Eiríksdóttur og Kari Ósk Grétudótt-
ur; Karma fyrir fugla, frumsýnt í
Kassanum í leikstjórn Kristínar Jó-
hannesdóttur og verkið Englar al-
heimsins, eftir Einar Má Guð-
mundsson, í leikgerð og leikstjórn
Þorleifs Arnar Arnarssonar, verður
síðasta frumsýning leikársins á
Stóra sviðinu. Þorleifur hefur á
undraskömmum tíma náð að haslað
sér völl sem einn helsti ungi leik-
stjórinn í hinum þýskumælandi
heimi og leikstýrir nú í fyrsta sinn í
Þjóðleikhúsinu.
Harpa Arnardóttir er einnig nýr
leikstjóri við Þjóðleikhúsið, sem og
Charlotte Böving sem sviðsetur nýtt
danskt verðlaunaleikrit í Kassanum
í vor, Kvennafræðarann. Það er
ánægjulegt að geta boðið þetta hæfi-
leikaríka listafólk velkomið í hóp
listrænna stjórnenda í Þjóðleikhús-
inu,“ segir Tinna. Fleiri höfundar og
leikstjórar komi til með að hasla sér
völl í Þjóðleikhúsinu á leikárinu í
fjölmörgum samstarfsverkefnum.
„Hávar Sigurjónsson á annað nýtt
verk á verkefnaskránni, sem Heiðar
Sumarliðason leikstýrir, Segðu mér
satt. Bergur Ebbi Benediktsson á
nýtt verk, Jóreyk, sem Þorsteinn
Bachmann leikstýrir, Sara Martí
Guðmundsdóttir semur í félagi við
Sigríði Sunnu Reynisdóttur og svið-
setur verkið Nýjustu fréttir, Stein-
unn Ketilsdóttir semur og sviðsetur
dansleikhúsverkið Já elskan, Álfrún
og Margrét Örnólfsdætur standa að
Kameljóni ásamt leikstjóranum
Friðgeiri Einarssyni og Rúnar Guð-
brandsson leikstýrir einnig í fyrsta
sinn í Þjóðleikhúsinu, svo gróskan
og nýsköpunin er umtalsverð.“
Tinna segir hápunkt vetrarins svo
„hið kynngimagnaða og blóðuga
verk skáldjöfursins Shakespeares“,
Macbeth, í leikstjórn Benedicts
Andrews, á jólum. „Margir muna
frábæra sviðsetningu Benedicts á
Lé konungi eftir sama höfund fyrir
tveim árum. Macbeth er eitt helsta
verk leikhúsbókmenntanna þar sem
skáldið beinir sjónum sínum að met-
orðagirndinni og hryllingnum sem
hún getur leitt þá út í sem verða
þrælar hennar. Í aðalhlutverkum
eru þau Björn Thors sem leikur tit-
ilhlutverkið og Margrét Vilhjálms-
dóttir sem leikur lafðina,“ segir
Tinna um þá uppfærslu.
Gaman og átök siðmenningar
„Tveggja þjónn, óborganlega
skemmtilegur nýr gamanleikur með
eldfjörugri tónlist sem sýndur hefur
verið við miklar vinsældir á West
End og Broadway, verður frum-
sýndur á Stóra sviðinu í október en
verkið byggist á klassískum
„comedia dell arte“ gamanleik eftir
Goldoni. Leikstjóri er hin þraut-
reynda Þórhildur Þorleifsdóttir, en
Jóhannes Haukur Jóhannesson fer
með aðalhlutverkið og leikur hinn
seinheppna þjón tveggja herra. Að
auki skartar verkið úrvalshópi
gamanleikara, svo sem þeim Erni
Árnasyni, Eggerti Þorleifssyni,
Ólafíu Hrönn Jónsdóttur, Jóhanni
G. Jóhannssyni og fleirum,“ segir
Tinna.
Þá verði kraftmikið nýtt verð-
launaverk um átök siðmenning-
arinnar og hins frumstæða á okkar
dögum, Fyrirheitna landið, frum-
sýnt á Stóra sviðinu í febrúar með
Hilmi Snæ Guðnasyni í aðalhlut-
verki. Leikstjóri þeirrar sýningar er
Guðjón Pedersen sem Tinna segir
að vakið hafi á ný sérstaka athygli
sem leikstjóri með frábærri svið-
setningu sinni á Afmælisveislunni á
síðasta leikári.
Velgengni Vesalinga fagnað
„Þjóðleikhúsið fagnar velgengni
Vesalinganna með stórtónleiknum í
Hörpu í upphafi leikárs. Afmælis-
veislan verður tekin upp frá fyrra
ári í lok ágúst og í september býður
Þjóðleikhúsið leikskólabörnum upp
á Sögustund í Kúlunni eins og und-
anfarin ár, en það er orðinn árviss
viðburður að börnum í elstu deildum
leikskóla er boðið ásamt kennurum
sínum í Kúluna til að kynnast leik-
húsinu og fá að sjá sögu lifna við.
Brúðuleikhús Bernds Ogrodniks
verður í Þjóðleikhúsinu næsta vetur
og starfsemi í Þjóðleikhúskjallar-
anum verður blómleg, svo það verð-
ur spennandi að skoða framboðið
nánar,“ segir Tinna að lokum.
Mikil gróska og nýsköpun
Dýrin í Hálsaskógi fyrsta frumsýning vetrarins í Þjóðleikhúsinu Stefán Karl stígur á svið
íslensks leikhúss eftir langa fjarveru Fjöldi íslenskra verka og spilað á allan tilfinningaskalann
Morgunblaðið/Eggert
Spennandi „Verkefni Þjóðleikhússins í vetur eru fjölbreytt að vanda og það má segja að það sé verið að spila á allan tilfinningaskalann,“ segir Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri.
Fjölbreytni Fjögur þeirra verka sem sýnd verða í Þjóðleikhúsinu í vetur. Því verður fagnað sérstaklega á leikárinu að hundrað ár eru liðin frá því að Thor-
björn Egner fæddist og verða tvö verka hans sýnd í leikhúsinu, Dýrin í Hálsaskógi og Karíus og Baktus. Macbeth verður jólasýning Þjóðleikhússins.
Vefur Þjóðleikhússins: leikhusid.is