Morgunblaðið - 25.08.2012, Síða 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
Það mætti segja að staðsetning
þessa tiltekna upplesturs hafi verið á
mörkum þess að vera epísk, líkt og
tónlist Scotts sem hann hefur unnið
ýmist einn eða í gegnum sveit sína
Waterboys í hartnær þrjátíu ár.
Hann fór fyrir það fyrsta fram í Ed-
inborg en þar fæddist Scott árið
1958. Sjálft húsið var þá St. Cecilia‘s
Hall, elsta tónlistarhús borgarinnar.
Byggt árið 1763 og er annað elsta
sinnar tegundar á öllum Bretlands-
eyjum sem enn er í notkun.
Ævintýri
Bók Scotts kallast Adventures of
a Waterboy og þar fer hann yfir feril
sinn í máli og myndum. Fyrstu þrjár
plötur Waterboys sem komu út á
árabilinu 1983 - 1985 innihéldu risa-
vaxna, dramatíska og tilfinninga-
þrungna tónlist og var sveitin farin
að sigla upp að U2 hvað vinsældir og
viðurkenningu varðaði undir bláend-
ann á því tímabili. Þekktasta lag
sveitarinnar frá þessum tíma er
„The Whole of the Moon“, skamm-
laus og ofurrómantískur óður til
máttar mannsandans. Heims-
frægðin beið handan við hornið en
Heilmáni í Edinborg
Rómantíker „Hann komst greinilega inn á ákveðið þægindasvæði þegar
hann las upp, eitthvað sem hann gerði af natni og ástríðu.“
Scott hafði ekki áhuga, fór þess í
stað til Írlands til að sinna kalli list-
gyðjunnar. Leit að einhverju hreinu,
sókn eftir Guði og sannleikanum
hefur litað tónlistarsköpun Scotts
alla tíð líkt og með hans helstu á-
trúnaðargoð í tónlistinni, Van Morr-
ison og Dylan. Útkoman úr Írlands-
för var platan Fisherman‘s Blues
sem þykir af mörgum vera topp-
urinn á ferli Scott. Ekki náði hann að
fylgja henni eftir sem skyldi en virk-
ur hefur hann verið allar götur síðan
og nýlega kom út plata þar sem
hann tónsetur nokkur ljóð eftir W.B.
Yeats.
Eftirsjá
Scott og Rankin sátu uppi á sviði
með hljóðnema fyrir framan sig og í
góðri nálægð við gesti, salurinn inni-
legur og hlýr. Rankin skaut út
nokkrum spurningum til að hita
okkar mann upp og skondið að sjá að
Rankin, þessi heimsfrægi spennu-
sagnahöfundur, var eins og lítill
hvolpur í nálægð Scotts sem hann
var greinilega með á stalli. Spjallið
var stirt til að byrja með og uppsetn-
ingin kom mér dálítið á óvart. Scott
er að túra bókina um þessar mundir
og ég átti von á að hann hefði tögl og
hagldir í framvindunni, myndi stýra
málum og lesa upp með tilþrifum,
svona líkt og um uppistand væri að
ræða. Það var hins vegar meira eins
og Scott væri gestur í þætti sem
hann hefði hálfpartinn verið dreginn
í. En tíminn vann með okkur og
Scott varð rólegri – og einlægari –
eftir því sem á leið. Hann komst
greinilega inn á ákveðið þæg-
indasvæði þegar hann las upp, eitt-
hvað sem hann gerði af natni og
ástríðu. Ýmislegt skemmtilegt kom í
ljós, t.a.m. sagði hann okkur frá því
að hans eina eftirsjá hefði verið að
gefa Fisherman‘s Blues ekki út sem
tvöfalda ef ekki þrefalda plötu. Á
þeim tíma hefði hann ekki kunnað að
meta fegurðina í hinu ófullkomna; að
leyfa tökum að standa vegna inn-
blástursins sem í þeim væri og líta
framhjá því að bassaleikarinn hefði
slegið eina falska nótu.
Regnboginn
Áhorfendum var svo boðið að
spyrja í restina. Scott sagði okkur
m.a. frá því þegar hann dvaldi í
Findhorn í Norðaustur-Skotlandi
þar sem hann stillti sig af andlega
(„ég komst t.d. að því að ég þarf ekki
alltaf að vera við stjórnvölinn,“ sagði
þessi mikli stjórnunarfíkill). Hann
var þá spurður hvort hann væri enn í
sambandi við Karl Wallinger (World
Party), sem var einn af hans helstu
samstarfsmönnum í fyrndinni en al-
kunna er að þeir talist ekki við. Scott
svaraði því til að eðlilegum sam-
skiptum yrði komið á þegar Wall-
inger væri búinn að biðja hann fyrir-
gefningar en mærði hann síðan fyrir
tónlistargáfurnar.
Kvöldið endaði á því að Scott árit-
aði bækur fyrir þá sem vildu. Ég
labbaði upp að þessu átrúnaðargoði
mínu sem ég hef fylgst með af djúp-
stæðum áhuga í næstum kvartöld,
tók í höndina á því og sagði: „Takk
fyrir tónlistina Mike. Megi hún
halda áfram lengi vel.“ Og í eitt
augnablik fannst mér eins og ég
héldi á regnboga.
»Ég labbaði upp aðþessu átrúnaðargoði
mínu sem ég hef fylgst
með af djúpstæðum
áhuga í næstum kvart-
öld, tók í höndina á því
og sagði: „Takk fyrir
tónlistina Mike. Megi
hún halda áfram lengi
vel.“
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is
Mike Scott úr Waterboys hefur gefið út endurminningar
sínar Las upp í Edinborg fimmtudaginn síðastliðinn
ásamt Ian Rankin Morgunblaðið var á staðnum
Á morgun, 26. ágúst, kemur banda-
ríska brasshljómsveitin What
Cheer? Brigade fram á tónleika-
staðnum Faktorý. Í hljómsveitinni
eru fjórtán blásturshljóðfæraleik-
arar og fimm trommarar og leikur
hún órafmagnaða tónlist af ákefð og
hamsleysi, skv. tilkynningu. Hljóm-
sveitin hrærir saman margs konar
tónlist, m.a. Bollywood-tónlist, tón-
list frá Balkanskaganum, New Or-
leans-djassi, samba, hipphoppi,
málmrokki og pönki. Það má því bú-
ast við miklu fjöri á Faktorý og
margmenni á sviðinu.
Tónleikarnir hefjast kl. 22 og eru
á dagskrá Jazzhátíðar Reykjavíkur
þótt þeir séu ekki á hennar vegum.
Á vef hátíðarinnar segir að tónlist-
arblanda sveitarinnar sé ómót-
stæðileg partímúsík sem dragi menn
nauðuga viljuga út á dansgólfið.
Stuð Frá tónleikum hljómsveit-
arinnar What Cheer? Brigade.
Óvenjuleg tónlist-
arblanda á Faktorý
THE EXPENDABLES 2 Sýnd kl. 6 - 8 - 10:10 (Power)
THE WATCH Sýnd kl. 8 - 10:20
PARANORMAN3D Sýnd kl. 2 - 4 - 6
BRAVE:HINHUGRAKKA 3D Sýnd kl. 4
BRAVE:HINHUGRAKKA 2D Sýnd kl. 1:50
INTOUCHABLES Sýnd kl. 3:50 - 5:50 - 8 - 10:20
ELÍASOGKONUNGSNEKKJAN Sýnd kl. 2
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÍSL TEXTI
53.000 MANNS!
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:10
12
16
7
12
L
Íslenskt tal
L
L
Íslenskt tal
MEÐÍSLENSKUTALI
TRYGGÐU
ÞÉR MIÐA
Á
3D
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
BREYTTU ÖRLÖGUM ÞÍNUM!
THE EXPENDABLES 2 KL. 5.50 - 8 - 10 16
THE WATCH KL. 8 - 10 12 INTOUCHABLES KL. 5.50 12
PARANORMAN 3D KL. 4 (TILB.) ÍSÖLD 4 3D KL. 4 (TILB.)
THE EXPENDABLES 2 KL. 5.40 - 8 - 10.20 16
ÉG ER EKKI NÓGU GOTT LANDSLAG KL. 6 L
THE WATCH KL. 8 - 10.20 12
TO ROME WITH LOVE KL. 3 (TILBOÐ) - 5.30 - 8 - 10.30 L
ÍSÖLD 4 3D KL. 3 (TILBOÐ) / 2D KL. 3 (TILBOÐ) L
INTOUCHABLES KL. 3 (TILBOÐ) - 5.30 - 8 - 10.30 L
THE EXPENDABLES 2 KL. 5.40 - 8 - 10.20 16
THE EX.. 2 LÚXUS KL. 1 - 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20 16
THE WATCH KL. 8 - 10.20 12
PARANORMAN 3D ÍSL.TAL KL. 1 (TILBOÐ) - 3.30 7
BRAVE: HIN HUGRAKKA 2D KL. 1 (TILB.) - 3.30 - 5.45 L
BRAVE: HIN HUGRAKKA 3D KL. 5.45 L
TOTAL RECALL KL. 8 - 10.35 12
ÍSÖLD 4 3D ÍSL.TAL KL. 1 (TILB.) - 3.30 - 5.45 L
ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 1 (TILB.) - 3.30 L
TED KL. 8 12 SPIDER-MAN 3D KL. 10.20 10