Helgafell - 01.12.1954, Page 18
16
HELGAFELL
Kaffineyzlan fer vaxandi.
Um allan heim fer kaffineyzla nú vaxandi, og þó að kaffirækt sé aukin
ár frá ári, þá vex neyzlan meir en því nemur, svo að bilið milli eftirspurnar
og framboðs fer frekar vaxandi en minnkandi og kemur fram í hækkandi kaffi-
verði. Sú lækkun sem varð á kaffiverði í sumar stafar af því, að kaffibarón-
arnir í Brasilíu fengu ríkisstjórnina til að setja nýtt og hærra verð á kaffið
en nokkuru sinni áður, og mátti ekkert kaffi flytja út fyrir minna verð en
$0.87 pr. lbs. Þá hættu Ameríkumenn á kauphöllinni í New York að kaupa
kaffi og Bandaríkjastjórn skipaði nefnd til þess að athuga kaffiverðið. Varð
þetta til þess að kaffikaup frá Bandaríkjunum lækkuðu niður í svo að segja
ekki neitt frá Brasilíu og lauk því stríði með því að Brasilíumenn urðu að
Iáta í minni pokann og lækka kaffið til muna.
Hér á íslandi hefir ávallt verið drukkið mikið kaffi og kaffikaup hafa
farið vaxandi eftir því sem fólkinu hefir farið fjölgandi í landinu. En kaffi-
neyzlan hefir aukizt tiltölulega meira en fólksfjölgunin.
Samkvæmt verzlunarskýrzlum hagstofunnar 1952 hefir kaffi-innflutning-
ur aukizt úr 1.643.000 hektólítrum á ári 1881—1885 upp í 2.975.000 hekto-
lítra á árunum 1946—1950. En meðalneyzlan á mann hefir verið þessi:
1881—1885 meðalneyzla á mann kg. 5.4
1886—1890 »» — — 4.0
1901—1895 »» — — 4.3
1896—1900 »» — — 5.1
1901—1905 »* — — 6.8
1906—1910 »» — — 6.8
1911—1915 »> — — 6.0
1916—1920 »» — — 7.8
1921—1925 »> — — 6.0
1926—1930 »> — — 6.4
1931—1935 »» — — 6.5
1936—1940 »> — — 7.5
1941—1945 > > — — 8.3
1946—1950 > » — — 8.9
Þetta er gífurleg kaffineyzla, þar sem segja má að 5 manna fjölskylda fari
með kaffisekkinn yfir árið (50 kg.). Enda mun leitun á þjóð sem drekkur
tiltölulega meira kaffi en íslendingar. Hér á eftir fer yfirlit um kaffineyzlu