Helgafell - 01.12.1954, Blaðsíða 41
LISTIR
39
reyndar oft beinlínis skínandi fagur á
háu tónunum. I rödd Ketils bregður
oft fyrir sveiflum, sem hitta áheyr-
andann alveg í hjartastað. Um Guð-
mund Jónsson þarf ekki að fjölyrða.
Söngur hans er stórkostlegur.
Mjög ber að fagna hinum ágæta
kór leikhússins. Þar sem söngstjórinn
dr. IJrbancic er í essinu sínu er söng-
ur kórsins ljúfur og tær eins og sum-
arblærinn, ofar öllum strangleik kunn-
áttu og erfiðismuna, en lífið er ekki
tómur leikur og sætur draumur. Þeg-
ar stormar lífsins æða um sviðið þarf
að taka karlmannlega á móti og þá
leitar manneskjan á náðir þess de-
móns, sem byggir undirdjúpin og á
furðurík ítök í allri hennar gleði og
þrá eftir fegurð og yndi. Dr. Urbancic
þyrfti að vera svo sem einn vetur í
Svartaskóla.
Þó tónlistarunnendur hafi mikið til
síns máls er þeir krefjast þess að stað-
ið' sé við þau loforð þjóðleikhússtjóra
og formanns þjóðleikhússráðs að
flutt sé hér árlega að minnsta kosti
ein ópera, mun það yfirleitt mjög
fjarri óskum flestra þeirra að vilja
gera Þjóðleikhúsið fyrst og fremst að
óperuhúsi, og kom þeim þ)að ekki að-
eins mjög á óvart, heldur olli bein-
línis vonbrigðúm, er orðsins list var
úthýst úr musteri íslenzkrar tungu
um sjálfa jólahátíðina, en það hefur
verið föst venja hér í áratugi að velja
til sýningar á jólunum öndvegisverk
leikbókmenntanna eða þjóðleg leikrit,
sem ef til vill væri eðlilegra. Núna
gekk allt hið glæsilega fastráðna
starfslið leikhússins auðum höndum
þegar allir þrá góða og holla skemmt-
un. Þetta var mjög óviturleg og mis-
heppnuð' ráðstöfun og virðingarleysi
fyrir fögrum venjum hinnar merku
stofnunar.
Margar ástæður eru fyrir því að
heppilegt er að flytja hér óperur á
vorin og fram á sumar. I fyrsta lagi
er ástæðulaust að úthýsa hinu fasta
starfsliði úr sínum eigin húsum að
nauðsynjalausu. A þessum tíma árs
er það fráleitt. Það er bæði miklu
auðveldara og ódýrara að ná til er-
lendra krafta, sem oft er nauð'synlegt,
og gildir það jafnt um söngvara og
stjórnendur. Um jólin ætti að flytja
hér stór kórverk í kirkjum bæjarins.
Og þá má ekki loka augunum fyrir
því að óperusýningar eru miklu
kostnaðarsamari en venjuleg leikrit.
Með því að láta þær hefjast undir
lok leikársins notast leikkraftar leik-
hússins miklu betur og hægt er þá að
ná til fjölda. manna úr nágrenni bæj-
arins og jafnvel utan af landi.
Allar óperur, sem hér verða fluttar
í framtíðinni, ætti að syngja á frum-
málinu, og mjög mun þeirri uppá-
stungu tónlistarráðunauta leikhússins
verða vel tekið, að hljómsveitarstjóri
sé fenginn frá landi tónskáldsins,
franskur maður til að stjórna Carmen,
Itali til að flytja hér ítalskar óperur
og Þjóðverji með óperur Mozarts,
Wagners og Webers.
R. J.