Morgunblaðið - 20.09.2012, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2012
ERT ÞÚ MEÐ VERKI?
Stoðkerfislausnir hefjast 1. október nk.
Hentar þeim sem eru að glíma við einkenni
frá stoðkerfi og vilja læra á sjálfan sig og
finna sín mörk í hreyfingu.
• Mán., mið. og fös. kl. 18:30
• Mat og ráðgjöf sjúkraþjálfara ásamt
kennslu í réttri líkamsbeitingu
• Fyrirlestrar um verki, svefntruflanir og heilbrigðan lífstíl
• 8 vikna námskeið
• Verð: 39.800 kr. (19.900 kr. á mánuði)
Betri heilsa borgar sig!
Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is
„Allir verkir hafa minnkað. Ég var áður alltaf svo
þreytt og alltaf að leggja mig. Mér finnst satt að
segja að allir sem eru að finna til verkja ættu að
koma hingað. Hreyfingin hefur líka áhrif á alla
starfssemi líkamans og svo er þetta gott fyrir
sálina. Mér líður miklu betur og ég er ákveðin í
að halda áfram.“
Sólveig Guðmundsdóttir
Þjálfari: Sólveig María
Sigurbjörnsdóttir sjúkraþjálfari
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Mitt Romney, forsetaefni repúblik-
ana, gaf höggstað á sér með van-
hugsuðum ummælum, þar sem hann
virtist afskrifa 47% kjósenda og lýsa
þeim sem ósjálfbjarga afætum, og
demókratar voru fljótir að ganga á
lagið. Þeir sögðu orð hans sýna að
auðkýfingurinn Romney væri úr
tengslum við venjulegt fólk og hefði
engan skilning á lífsbaráttu þess.
Á myndskeiði, sem birt var á net-
inu, sagði Romney á fjáröflunarsam-
komu með auðmönnum að hann teldi
að tæpur helmingur Bandaríkja-
manna styddi Obama hvað sem á
dyndi. „Það eru 47% sem styðja
hann, sem eru háð ríkisvaldinu, sem
telja sig vera fórnarlömb,“ sagði for-
setaefnið meðal annars. „Verkefni
mitt er ekki að hafa áhyggjur af
þessu fólki. Ég mun aldrei geta feng-
ið það til að axla ábyrgð á sjálfu sér
og sjá um sig sjálft.“
Romney og ráðgjafar hans viður-
kenndu að ummæli hans voru
óheppilega orðuð og reyndu að beina
umræðunni að ágreiningi repúblik-
ana og demókrata um hlutverk ríkis-
ins. Romney sagði í viðtali í fyrra-
kvöld að margir Bandaríkjamenn
hefðu fallið undir fátæktarmörk,
greiddu því ekki skatta og þyrftu að
reiða sig á aðstoð frá ríkinu. „Rétta
aðferðin til að hjálpa þeim felst ekki
aðeins í því að ríkið veiti þeim ölm-
usu heldur hjálpi þeim að komast
aftur í góð störf,“ sagði hann. „Ég tel
að þjóðfélag, sem byggist á því að
ríkisvaldið sé þungamiðjan og gegni
sífellt stærra hlutverki, endurúthluti
peningum, sé ekki rétta leiðin.“
Viðbrögð repúblikana við ummæl-
unum voru blendin. Nokkrir af for-
ystumönnum þeirra hvöttu Romney
til að standa við ummælin og hamra
á því í kosningabaráttunni að ríkis-
valdið væri orðið of umsvifamikið í
Bandaríkjunum. Tveir frambjóð-
enda repúblikana í kosningum til
öldungadeildarinnar andmæltu orð-
um Romneys og sögðu að þorri bóta-
þeganna vildi ekki þurfa að reiða sig
á aðstoð frá ríkinu. Aðrir frambjóð-
endur repúblikana í þingkosningun-
um virtust forðast að taka afstöðu til
ummælanna.
Bótaþegarnir ekki afætur
William Kristol, ritsjóri Weekly
Standard, íhaldssams vikublaðs,
sagði að ummælin væru „hrokafull
og heimskuleg“. „Romney virðist
ekki aðeins fyrirlíta demókrata, sem
eru á móti honum, heldur einnig tugi
milljóna manna sem ætla að kjósa
hann,“ skrifaði Kristol. Hann skír-
skotaði meðal annars til eldri borg-
ara, sem reiða sig á opinberar
sjúkratryggingar, og láglaunafólks,
þeirra á meðal hermanna sem hafa
stutt repúblikana.
The Wall Street Journal segir að
það sé rétt hjá Romney að um það bil
47% Bandaríkjamanna greiða ekki
tekjuskatt til alríkisins, samkvæmt
nýjustu hagtölum, og hlutfallið hafi
aukist um 20 prósentustig frá árinu
1992. Meginástæðan er að margir
njóta góðs af skattaívilnunum fyrir
láglaunafólk og foreldra.
Margir þeirra sem greiða ekki
tekjuskatta til alríkisins greiða þó
útsvar og skatta til heimaríkja sinna,
auk launatengdra gjalda til almanna-
trygginga og sjúkratrygginga.
Um 49% Bandaríkjamanna eru í
fjölskyldum sem fá einhvers konar
bætur frá ríkisvaldinu, nær 20 pró-
sentustigum fleiri en á níunda ára-
tug aldarinnar sem leið. Um ein af
hverjum sjö fjölskyldum fær matar-
miða sem ríkisvaldið úthlutar efna-
litlu fólki til matarkaupa og það hlut-
fall hefur stóraukist vegna
efnahagssamdráttarins.
Rúm 16% Bandaríkjamanna fá
bætur frá opinbera almannatrygg-
ingakerfinu og tæp 15% frá Medi-
care, sjúkratryggingakerfinu fyrir
65 ára og eldri, að því er fram kemur
í The Wall Street Journal. Flestir
þeirra sem fá bæturnar greiddu
skatta í áratugi til að fjármagna
tryggingarnar og geta því ekki talist
afætur á auðkýfingunum sem Rom-
ney talaði til. Megnið af bótunum
rann til fólks sem hafði unnið fyrir
þeim.
„Hrokafull og heimskuleg“ orð
AFP
Stund milli stríða Mitt Romney forsetaefni leikur sér við fimm börn sonar síns í flugvél sinni í Salt Lake City.
Romney gaf höggstað á sér með því að afskrifa 47% kjósendanna og lýsa þeim sem afætum Margir
bótaþeganna hafa stutt repúblikana Megnið af bótunum fór til fólks sem hafði unnið fyrir þeim
Óskýr boðskapur
» Íhaldsmaðurinn Erick Erick-
son, ritstjóri RedState blog,
telur að Obama myndi ná
endurkjöri ef kosið væri nú.
» „Hvort sem mönnum líkar
það betur eða verr … er sann-
leikurinn einfaldlega sá að Mitt
Romney hefur ekki unnið kjós-
endur á sitt band og boð-
skapur hans er svo óskýr og
ruglingslegur að enginn kjós-
andi veit í raun og veru hvað
hann stendur fyrir,“ skrifaði
Erickson á mánudag.
Nýjustu fylgiskannanir benda til
þess að Barack Obama forseti sé
með forskot í þremur af þeim lykil-
ríkjum sem gætu ráðið úrslitum í
forsetakosningunum í nóvember –
í Virginíu, Wisconsin og Colorado.
New York Times og CBS-
sjónvarpið birtu könnun sem
bendir til þess að 51% styðji
Obama en 45% Mitt Romney í
Wisconsin, heimaríki Pauls Davids
Ryans, varaforsetaefnis repúblik-
ana.
Í Virginíu sögðust 50% ætla að
kjósa Barack Obama en 45% for-
setaefni repúblikana. Munurinn
var minni í
Colorado þar
sem fylgi for-
setans mældist
48% en Rom-
neys 47%.
Samkvæmt
nýrri könnun
The Was-
hington Post
ætla 52% lík-
legra kjósenda í Virginíu að kjósa
Obama en 44% Mitt Romney. Talið
er að Virginía verði eitt af mikil-
vægustu ríkjunum í kosningunum,
ásamt Ohio og Flórída.
Með forskot í lykilríkjum
OBAMA STENDUR BETUR AÐ VÍGI
Barack Obama
forseti
Sýningarstúlkur sýna vor- og sumarfatnað á sýningu tískuhússins Gucci á
tískuvikunni í Mílanó sem hófst í gær. Meðal annars voru sýnd föt hönn-
uðarins Fridu Giannini sem lagði áherslu á einfaldleika, t.a.m. með kvöld-
kjólum sem minna á náttföt. Tískuvikunni lýkur á þriðjudaginn kemur.
Tískuvikan í Mílanó hafin
AFP
Vor- og sumartískan kynnt