Morgunblaðið - 18.10.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.10.2012, Blaðsíða 1
Annað árið í röð verður skýrsla um- boðsmanns Alþingis um starfsemi embættisins á liðnu ári ekki tilbúin fyrr en eftir lögbundinn skilafrest. Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, segir embættið hafa for- gangsraðað kvörtunarmálum frá al- menningi fram yfir skýrsluvinnslu en skýrslur frá árunum 2007-2010 hafi enn ekki verið teknar til um- ræðu í þingsal. Tryggvi segir mikið hafa mætt á starfsmönnum embættisins, sem þurfi að leysa úr sívaxandi fjölda flókinna mála. „Það bíða núna til umfjöllunar á Al- þingi eldri skýrslur og þeg- ar maður stendur frammi fyrir því að þurfa að for- gangsraða þá þarf að taka tillit til þess hvað er brýnt að gera með tilliti til meginhlutverks umboðsmanns,“ segir Tryggvi. Róbert Marshall, annar varafor- maður stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar, segir að þingið hafi ekki gefið sér þann tíma sem þurfi til að ræða umfangsmiklar skýrslurnar. „Ég held að menn þurfi bara að taka ákvörðun um hvernig þetta fyrirkomulag á að vera og að regl- urnar í kringum þetta þurfi að vera þannig að það sé eitthvert raunsæi í þeim,“ segir Róbert. Honum þykir ólíklegt að skýrslur áranna 2007- 2009 verði teknar til umræðu úr þessu. „Mér finnst það mjög hæpið,“ segir hann. „Það þarf að ræða þær jafnóðum að mínu mati.“ »12 Skilafresturinn útrunninn  Skýrslur umboðsmanns Alþingis 2007-2010 enn óræddar Tryggvi Gunnarsson F I M M T U D A G U R 1 8. O K T Ó B E R 2 0 1 2  Stofnað 1913  244. tölublað  100. árgangur  –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG ÍBÚAR GANA ÞEKKTIR FYRIR GESTRISNI MÁ BRJÓTA UPP FYRIRTÆKI? ÁTTI UPPHAFLEGA AÐ VERA UM BANKA VIÐSKIPTABLAÐ SKÁLDSAGA ÓLAFS 42NÝ FERÐASKRIFSTOFA 10 AFP Olíuleit Óvíst er hvenær olíuborpallar sjást innan íslenskrar landhelgi.  Miðað við núverandi fjárhags- ramma Orkustofnunar er ólíklegt að hægt verði að ljúka viðbótar- rannsóknum á mögulegum olíu- og gaslindum á svonefndu Gammsvæði undan Norðausturlandi. Þetta kem- ur fram í svari Steingríms J. Sigfús- sonar atvinnuvegaráðherra við fyr- irspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar þingmanns um framkvæmd þings- ályktunar um olíu- og gasrann- sóknir undan Norðausturlandi, sem samþykkt var á Alþingi í maí í fyrra. Kostnaður við viðbótarrann- sóknir er talinn nema 13 milljónum króna. Kristján Þór segir að þetta sé með miklum ólíkindum. »16 Ekki til fé í olíuleit undan NA-landi Viðræður fram á 2014? » Umsóknin var lögð fram 2009 og þykir nú einsýnt að aðildarviðræðum ljúki ekki fyr- ir þingkosningar á næsta ári. » Á árunum 2009 til 2013 er áætlað að á þriðja hundrað milljónum verði varið í kaup á tækjum í sendiráð Íslands. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ætla má að í lok næsta árs verði kostnaður utanríkisráðuneytisins vegna umsóknar um aðild að ESB orðinn vel á annan milljarð króna. Talan er fengin með því að leggja saman bein framlög til ráðuneytisins vegna umsóknarinnar og aukin út- gjöld vegna þýðinga sem nema alls 1,34 milljörðum frá 2009. Fékkst ekki uppgefið hvort hluti kostnaðar vegna þýðinga væri niðurgreiddur af ESB. Ragnheiður Elín Árnadóttir, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, telur skorta á gagnsæi um kostnaðinn. Eru kynnisferðirnar bókaðar? „Ég fór t.d. í ferð árið 2009 á vegum Alþingis með forseta Alþingis og hitti þáverandi stækkunarstjóra og fleiri. Var þessi ferð bókuð á umsóknina? Eða er kostnaðurinn dreifður út um allt kerfið þannig að við fáum aldrei heildstætt yfirlit yfir hann? Er ráðn- ing starfsmanns hjá ríkisskattstjóra til að aðlaga skattkerfið að kröfum ESB bókfærð undir ESB-lið í ríkis- bókhaldinu? Ég leyfi mér að efast um það. Það þarf að fá það á hreint hvern- ig þetta er tekið saman,“ segir Ragn- heiður Elín. Sveinn Arason ríkisendurskoðandi segir Ríkisendurskoðun ekki hafa tekið saman upplýsingar um kostnað vegna umsóknar Íslands um aðild að ESB. „Stofnunin ráðgerir ekki að gera úttekt á málinu, hvað svo sem síðar verður,“ sagði hann. MKostnaðurinn er enn á huldu »6 Á annan milljarð í ESB  Óvissa um heildarkostnað við ESB-umsókn  Þýðingamiðstöð utanríkisráðu- neytisins hefur fengið 1,34 milljarða króna síðan umsókn var lögð fram árið 2009 Starfsmenn Íslenskra aðalverktaka vinna nú hörðum höndum að frágangi á grjótgarði og bílastæðum norðan við Hörpu. Unnið er að því að fjarlægja grjót og landfyllingar frá byggingar- framkvæmdum við tónlistarhúsið. Stefnt er að því að svæðið verði fullbúið fyrir vetrarhörkur. Ýta burtu urð og grjóti við tónlistarhúsið Morgunblaðið/Árni Sæberg  Stjórnendur bílaumboða telja að fyrirhugaðar álögur á bifreiða- kaup bílaleigna leiði til þess að þær kaupi 20- 33% færri bíla í fyrirsjáanlegri framtíð en í ár. Talið er að 3.200 bílaleigubílar verði seldir í ár og að heildarsalan verði 7.600 bílar. Stjórnvöld áforma að fella niður undanþágu frá vörugjöldum af nýj- um bílaleigubílum. »Viðskipti Bílaleigur kaupi 20-33% færri bíla  „Ég tel að forseti Alþýðu- sambandsins hafi í mörgum til- vikum gengið of langt í umfjöllun um Evrópusambandið,“ sagði Stef- án Einar Stefánsson, formaður VR, á þingi ASÍ í gær. Hann hvatti til þess að málflutningur ASÍ í Evr- ópumálum yrði „tónaður niður“. Upphaflega var ekki fyrirhugað að leggja fram drög að ályktun um Evrópumál á þinginu í ár, en Stefán gagnrýndi það. Í framhaldi var ákveðið að leggja fram drög að ályktun, um að ASÍ hefði ekki tekið afstöðu til þess hvort hagsmunum launafólks væri best borgið með að- ild. Stefán vill að ASÍ hvetji til þess að viðræðum ljúki sem fyrst. »12 Telur forseta ASÍ hafa gengið of langt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.