Morgunblaðið - 18.10.2012, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.10.2012, Qupperneq 4
Ljósmynd/Fróði Brinks Pálsson Norðurljós yfir Lágheiði Mikil norðurljós voru yfir Tröllaskaga síðastliðið sunnudagskvöld þegar myndin var tekin á Lágheiði, ofan við Ólafsfjörð. Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það eru svo mikil norðurljós hérna og maður er einhvern veg- inn miklu nær þeim hér úti á landi. Hér er ekki eins mikil ljós- mengun og í Reykjavík,“ sagði Fróði Brinks Pálsson, áhuga- ljósmyndari á Siglufirði, sem tók meðfylgjandi mynd á sunnudags- kvöldið var. „Það er búin að vera alveg svakaleg norðurljósavirkni nú í haust og vetur,“ sagði Fróði. Hann sagði að spáð hefði verið miklum norðurljósum vegna auk- innar sólvirkni. Sú spá virðist ætla að rætast. „Norðurljósin eru aldrei eins og alltaf gaman að mynda þau,“ sagði Fróði. Myndina sem fylgir greininni tók hann á Lágheiði skammt ofan við Ólafsfjörð á sunnudagskvöldið var. Myndina tók Fróði á á Canon-myndavél á 39 sekúndum. Ef vel er að gáð má sjá stjörnumerkið Karlsvagn- inn fyrir miðri myndinni. Fróði sagðist hafa myndavélina á þrí- fæti og notar afsmellara til að hún hreyfist ekki þegar hann smellir af. Hann sagði að norður- ljósin hefðu verið með fegursta móti á sunnudagskvöldið og lita- dýrðin ótrúleg, þau skörtuðu bæði grænum og rauðum litum. „Þessi rauði litur er ekki alltaf með norðurljósunum, en þegar hann kemur þá er það alveg eðal,“ sagði Fróði. En var hann einn með tófunum á Lágheiði á sunnudagskvöldið að mynda norðurljósin? „Nei, Lára Stefánsdóttir list- ljósmyndari var með mér. Hún er lærimeistari minn og hefur kennt mér allt sem ég kann í þessum fræðum,“ sagði Fróði. Hann er á 2. ári á listabraut við Menntaskólann á Tröllaskaga og nemandi Láru. Fróði sagði að þau Lára færu oft saman að taka myndir. Ljósadýrð yfir Tröllaskaga  Norðurljósin njóta sín vel þar sem þau þurfa ekki að keppa við ljósmengun 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2012 Hart hefur verið sótt að Sveini Arasyni ríkisend- urskoðanda að undanförnu vegna umdeildrar skýrslu um fjár- hags- og bók- haldsskerfi rík- isins. Fram kom í gær að embætti hans hefur frá 2007 þegar skilað alls sex af þeim átta skýrslum sem Alþingi hefur beðið um. Stjórnarliðarnir Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefndar Alþingis, og Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eft- irlitsnefndar, hafa sagt að Sveinn eigi að víkja til hliðar, a.m.k. tíma- bundið. Embætti Sveins heyrir und- ir forsætisnefnd Alþingis en Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Al- þingis, segir að Alþingi geti vikið ríkisendurkoðanda frá. „En það er ekki í valdi þingforseta að gera slíkt,“ segir Helgi. „Í lögum um Ríkisendurskoðun segir í ann- arri grein að forsætisnefnd Alþingis geti að fengnu samþykki Alþingis vikið ríkisendurskoðanda úr starfi.“ Vilji þingmenn reka Svein þurfi þeir því að fá samþykkta þingsályktunar- tillögu þess efnis. kjon@mbl.is Aðeins Al- þingi getur rekið Svein  Gæti samþykkt ályktun þess efnis Sveinn Arason Skrifstofustjóri Alþingis, Helgi Bern- ódusson, segir að búið sé að taka að mestu saman kostnað embættis sak- sóknara Alþingis vegna landsdóms- málsins gegn Geir H. Haarde, fyrr- verandi forsætisráðherra. Fyrir hafi legið tölur um kostnað frá 2010 og 2011 og ljóst sé að heildarkostnaður embættisins vegna málsins verði alls tæpar 70 milljónir króna. Ögmundur Jónasson innanríkis- ráðherra hefur þegar svarað fyrir- spurn Ragnheiðar Elínar Árnadóttur alþingismanns um kostnað ríkisins vegna málsins. Reyndist hann vera um 117,6 milljónir króna. Sem kunnugt er var Geir að mestu sýknaður af ákærunum og ekki gert að sæta neinni refsingu. Landsdómur var skipaður hæstaréttardómurum og dómurum sem kjörnir voru sér- staklega af Alþingi, kærandanum í málinu. kjon@mbl.is Kostaði skatt- borgara yfir 187 milljónir Allt bendir til að á milli 4.000-5.000 fjár hafi fundist dauð eða sé saknað í Skagafirði eftir hausthretið í september sl. Þetta kom fram nýlega á fundi landbún- aðarnefndar sveitarfélagsins. Eiríkur Loftsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsam- bands Skagafjarðar, segir að erfitt sé að skjóta á töl- una og um grófa áætlun sé að ræða en talan sé samt sem áður hærri en búist var við. „Eftir því sem fleiri tölur berast finnst mér líklegra að fjöldinn verði nær 4.000. Vonandi höfum við allar tölur í byrjun næstu viku og getum í kjölfarið sent til Bjargráðasjóðs,“ seg- ir Eiríkur. Hann bætir við að erfitt sé að skjóta á fjar- hagslegt tjón bænda vegna búfjárskaðans. Einnig sé erfitt að meta hvaða áhrif atburðirnir hafi á innlegg næsta árs. Auk þess var farið yfir aðkomu Almannavarnanefnd- ar á fundi landbúnaðarnefndar og kom þar fram að vinnuhópur hefði verið skipaður sem vinna á aðgerða- áætlun sem unnið verði eftir í framtíðinni ef hamfarir eins og í september ríða aftur yfir. Eiríkur segir að bændur og fulltrúar frá öllum hlutaðeigandi aðilum eigi sæti í hópnum og muni fara vandlega yfir málin og draga lærdóm af atburðum septembermánaðar. Gunnar Ríkharðsson, framkvæmdastjóri Búnaðar- sambands Húnaþings og Stranda, segir að tölur um fjárskaða liggi ekki fyrir hjá sambandinu. Þær liggi vonandi fyrir í byrjun næstu viku og verði í kjölfarið sendar til Bjargráðasjóðs. heimirs@mbl.is Um 4.000 dauð eða saknað  Unnið að nýrri aðgerðaáætlun almannavarna í Skagafirði Skaði Bændur urðu fyrir miklu tjóni í september. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Nú er hægt að nálgast norður- ljósaspár á veðurspársíðunni á vef Veðurstofu Íslands, www.ved- ur.is. Síðan var opnuð 10. október síðastliðinn. Á norðurljósasíðunni er hægt að sjá upplýsingar um virkni norðurljósa, birtustig og skýja- hulu yfir landinu hverju sinni og hverju er spáð í þeim efnum. Hægt er að skoða norðurljósa- spána nokkra daga fram í tím- ann. Þar er einnig mikið fræðslu- efni um geimveður, segulsvið jarðar og norðurljósin. Skyggnið skiptir miklu máli og ef spáð er léttskýjuðu er kjörið að kanna hvort mikilli norður- ljósavirkni er spáð það kvöldið eða nóttina. Á síðunni er líka textaspá veðurfræðings um hvar líklegast er að sjá til norðurljósa hér á landi. Á norðurljósavef Veðurstof- unnar má meðal annars sjá línu- rit yfir breytileika í norðurljósa- virkni síðustu viku. Þar sést að góðar gusur komu einmitt síðast- liðinn laugardag og sunnudag þegar norðurljósamyndin var tek- in. Slíkar gusur vara oft í 1-2 sól- arhringa. Einnig er hægt að fylgjast með norðurljósakraganum yfir norð- urhveli jarðar eins og hann er áætlaður hverju sinni. Spáð um norðurljósin NÝ ÞJÓNUSTUSÍÐA VEÐURSTOFU ÍSLANDS FYRIR ÁHUGAFÓLK UM NORÐURLJÓSIN HEFUR VERIÐ OPNUÐ Til sölu glæsilegt heilsárshús við Sogsbakka í Grímsnes- og Grafningshreppi. Eignin er á 6 þús fm eignarlandi á glæsilega kjarri vaxinni lóð með góðu útsýni. Um er að ræða sumar- hús sem er skráð 116 fm Stór sólpallur. Steypt plata með hitalögn. Hitaveita, heitur pottur. Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir um svæðið .Innréttað með Lúxus húsbúnaði og húsgögnum sem getur selst með. Verð 34 millj. Sjá nánar á eftirfarandi link: http://www.privateaccommodation.is/lodges-resorts-in-iceland/sogs- bakki-lodge/pictures/ Upplýsingar gefur Þorgrímur s. 892-1270 og Ólafur s.866-0927

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.