Morgunblaðið - 18.10.2012, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.10.2012, Blaðsíða 6
Morgunblaðið/Styrmir Kári Útför Gísla Halldórssonar, arkitekts og fv. forseta ÍSÍ, var gerð frá Dómkirkjunni í gær. Séra Hjálmar Jóns- son dómkirkjuprestur jarðsöng. Ólympíufarar stóðu heiðursvörð en líkmenn voru, talið frá vinstri til hægri á myndinni: Jón Páll Leifsson, Gísli Leifsson, Leifur Þorsteinsson (í hvarfi), Magnús Pétursson, Sveinn Jónsson, Stefán Konráðsson, Sigurgeir Guðmannsson og Ásbjörn Einarsson. Gísli Halldórsson lauk námi frá Det kongelige Aka- demi for de skönne kunster 1947. Hann setti á fót teiknistofu í Reykjavík ásamt Sigvalda Thordarson arkitekt sem þeir starfræktu til 1948. Gísli sat sem varamaður í borgarstjórn Reykjavíkur 1954-1958, var borgarfulltrúi 1958-1974, varaforseti borgarstjórnar 1958 og forseti 1970-1974. Einnig gegndi hann for- mennsku í íþróttaráði 1961-1974. Gísli var forseti Íþróttasambands Íslands 1962-1980, í sambandsráði þess í 22 ár, og í Ólympíunefnd Íslands 1951-1994. Útför Gísla Halldórssonar 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2012 SHEA BUTTER VERNDAR OG NÆRIR Kringlan - Sími: 577 7040 | www.loccitane.com T ilb o ð in gi ld a 1 8 .- 2 2 .o k tó b e r 2 0 1 2 e ð a m e ð an b ir gð ir e n d as t. GÆFUBLÓMA ÞRENNA Handkrem 30 ml, varasalvi 15 ml og húðkrem 100 ml. Þrjár ilmtegundir: Rose Petals, Mango Flower og Date Bouquet. TILBOÐSVERÐ: 4.990 KR. Verð áður: 6.450 kr. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fyrir tæpu ári sagði Össur Skarphéð- insson utanríkisráðherra að kostnað- urinn við aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu yrði svipaður og vegna stjórnlagaráðs. Lausleg úttekt á fjárveitingum til utanríkisráðuneytisins bendir til að samanburðurinn sé ónákvæmur en hér til hliðar má sjá hluta af útgjöldum til ráðuneytisins frá hruni. Fram kemur í skýrslu forsætis- nefndar um tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá Íslands, sem lögð var fram á 140. löggjafarþingi 2011-2012, að áætlað sé að útgjöld vegna ráðsins verði um 326 milljónir króna. Til viðbótar bætist svo kostn- aður við kosningar til stjórnlagaþings á árinu 2010 upp á 240 milljónir króna króna. Þá óskar innanríkisráðuneytið í frumvarpi til fjáraukalaga eftir 240 milljóna króna fjárheimild til að standa undir útgjöldum við framkvæmd kosn- inga vegna tillagna stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Má út frá þessu ætla að kostnaðurinn við stjórnlagaráð sé um 806 milljónir króna. Jafnvel ódýrara en ráðið Össur bar saman kostnaðinn við umsóknina og stjórnlagaráð í viðtali við fréttavef Morgunblaðsins hinn 8. nóvember í fyrra. „Í fyrsta lagi held ég að við séum að eyða miklu minni pen- ingum í þetta, eða töluvert minna, heldur en menn áttu von á. Ég held að kostnaðurinn við þetta núna, þegar töluvert mikið af þessu ferli er frá, sé svipaður eða minni heldur en kostn- aðurinn við stjórnlagaráðið. Svo menn hafi það nú bara svona til samanburð- ar,“ sagði Össur. Eins og rakið er á grafinu hér á síð- unni er beinn kostnaður utanríkis- ráðuneytisins vegna umsóknarinnar áætlaður 450 milljónir króna í fjárlög- um 2010-13. Kostnaður er ekki gefinn upp í fjárlögum ársins 2012 en frá um- sókn hefur hann verið undir lið 1.32, Umsókn Íslands um aðild að Evrópu- sambandinu. Fram kom í svari fjármálaráðuneyt- isins vegna málsins að um væri að ræða launakostnað og kostnað vegna samninganefnda, ferðalaga og sér- fræðiþjónustu. Hluti af 400 milljón króna framlagi til utanríkisráðu- neytisins á fjárlögum 2010 og 2011 hafi runnið til kostnaðar vegna fulltrúa annarra ráðuneyta. Vegna tafa sem orðið hafi á aðildar- ferlinu sé afgangur af þessum fjár- heimildum og er ætlunin að flytja af- gang á lokafjárlögum 2011 upp á 190 milljónir króna yfir á árið 2012. Kostn- aður á árinu 2012 er áætlaður um 140 milljónir og gert er ráð fyrir að þær 50 milljónir sem þá standa eftir í árslok verði yfirfærðar til næsta árs þannig að með 50 milljón króna framlagi fyrir 2013 verði 100 milljónir króna til ráð- stöfunar á árinu 2013 vegna viðræðn- anna. Hálfur milljarður í þýðingar Athyglisvert er að bera saman kostnað vegna þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins á árinu 2009 og útgjöldin 2010, 2011 og 2012. Árið 2009 var hann 166,9 milljónir en var áætlaður 511,4 milljónir í ár, eða um 1.400 þúsund krónur á dag, allt árið. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins má rekja kostnaðaraukann á árunum 2010, 2011 og 2012 til ESB- umsóknarinnar. Meðalkostnaðurinn þessi ár er tæpar 392 milljónir og er það 225 milljónum meira en árið 2009. Á árunum 2010, 2011 og 2012 er mis- munurinn samtals 674 milljónir. Ríkisstjórnin hefur fengið um 400 milljóna króna styrk frá ESB í formi IPA-styrkja til þýðinga og er hluti þess fjár eyrnamerktur ESB-gerðum. Á vef utanríkisráðuneytisins segir að „meginhlutverk þýðingamiðstöðvar- innar [sé] að þýða gerðir, sem heyra undir EES-samninginn samkvæmt ákvörðunum sameiginlegu EES- nefndarinnar og aðra texta sem tengj- ast Evrópska efnahagssvæðinu“. Send var fyrirspurn til utanríkisráðu- neytisins um það hvort IPA-styrkirnir og þær rúmu 1.342 milljónir sem settar hafa verið í miðstöðina frá hruni séu að- skildar í bókhaldi. Var svarið enn í vinnslu þegar blaðið fór í prentun. Sé þetta aðskilið í bókhaldi bætist áðurnefndur 674 milljóna aukakostn- aður vegna þýðinga á árunum 2010- 2012 við beinan kostnað ráðuneytisins upp á 450 milljónir. Samanlagt er kostnaðurinn því 1.124 milljónir, eða 318 milljónum króna meiri en áætlaður kostnaður vegna stjórnlagaráðs. Kostnaðurinnn er enn á huldu  Beinn kostnaður utanríkisráðuneytisins vegna ESB-umsóknarinnar er vel á annan milljarð króna  Útgjöld til ráðuneytisins um 56 milljarðar frá hruni  Á þriðja hundrað milljónir í tæki í sendiráðin Útgjöld frá hruni » Eins og sjá má á grafinu hér fyrir ofan hefur rekstur sendi- ráða Íslands kostað hátt í 14 milljarða króna frá hruni, ef áætluð útgjöld á árinu 2013 eru tekin með. » Við það bætast 212 milljónir króna vegna tækja og búnaðar í sendiráðin á sama tímabili. » Stuðningur við kynjajafn- rétti hjá SÞ nemur um 655 milljónum króna á tímabilinu. » Þá kostar íslensk friðar- gæsla ríflega milljarð króna á árunum 2009 til 2013. Hluti af útgjöldum til utanríkisráðuneytisins frá hruni Fjárlög fyrir árið 2009* 2010** 2011*** 2012**** 2013***** Samtals Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins 166,9 358,9 304,4 511,4 186,9 1.528,5 Umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu Ekki tilgreint 250 150 Ekki tilgreint 50 450 Evrópuráðið 60,1 61,6 70,4 74,8 72,9 339,8 Hjálparstarf SÞ fyrir konur í þróunarlöndum (UNIFEM)****** 133,8 118 108,7 360,5 Stofnun SÞ um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna, UNWomen 117,6 177,1 294,7 Íslensk friðargæsla 319,6 256,8 116 146,1 196,1 1.034,6 Sendiráð Íslands - almennur rekstur 2.496,20 3.009,50 2.628 2.757 2.758 13.648,70 Sendiráð Íslands - tæki og búnaður 43 43 43 42 41 212 Samanlögð útgjöld vegna utanríkisráðuneytisins (gjöld umfram tekjur) 12.256,90 11.885,20 10.932,60 9.745,30 11.051,30 55.871,30 IPA-styrkir til þýðinga (Gengi evru er hér reiknað sem 159,35 kr.) 239,25******* 159,35******** 398,375 Úthlutaðir IPA-styrkir (2011 og 2012) 2.346,01 Úthlutaðir IPA-styrkir alls þegar útboði fyrir 2011-2013 lýkur 4.781 *Afgreidd frá Alþingi 22. desember 2008 **Afgreidd frá Alþingi 22. desember 2009 ***Afgreidd frá Alþingi 16. desember 2010 ****Afgreidd frá Alþingi 7. desember 2011 *****Lagt fyrir Alþingi á 141. löggjafarþingi 2012–2013 ******UNIFEM rann inn í UNWomen þegar sú stofnun varð til árið 2010 *******Þýðingar á ESB-gerðum, þjálfun túlka og stuðningur við uppbyggingu á innviðum fyrir túlkanám við Háskóla Íslands (utanríkisráðuneytið og HÍ). Miðast við landsáætlun IPA 2011. ********Þýðingar á ESB-gerðum (utanríkisráðuneytið). Miðast við landsáætlun IPA 2012. Upphæðir eru í milljónum króna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.