Morgunblaðið - 18.10.2012, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 18.10.2012, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2012 Laugavegi 63 • S: 551 4422 Gallabuxnatilboð Skoðið sýnishornin á laxdal.is Perfect fit Þú minnkar um eitt númer Ný sending Meirapróf Sumarnámskeið 24. október 2012 ef næg þátttaka verður Upplýsingar og innritun í síma 567 0300, 894 2737 Það er merkilegt að sama fólkiðsem vill farga fullveldi lands- ins fyrir ESB segir það sína hug- mynd að semja „alíslenska stjórn- arskrá“, eins og stjórnlagaráðsliðar hafa kallað það. Andríki spyr:    Er lýðræði alíslensk hugmynd?Er þrígreining ríkisvaldsins kannski kennd við Þrí- hnúkagíg? Er eign- arréttur úr Þorra- bakka? Eru helstu mannréttindi, óaðskiljanlegur rétturinn til lífs, frelsis og leitar að lífshamingju, made in the… Ísland?    Það er auðvitað ekkert „al-íslenskt“ við tillögur stjórn- lagaráðs utan þær ríflega þúsund milljónir sem eytt hefur verið í að finna upp þetta alíslenska hjól. Og þó, þær milljónir eru ekki ís- lenskari en svo að þær voru tekn- ar að láni á Norðurlöndum og Pól- landi því ríkissjóður Íslands hefur verið rekinn með ofboðslegum halla meðan á þessu stóð.    En það má vissulega halda þvífram að það sé alíslenskt að taka erlent lán fyrir sköpun á al- íslensku yfirburðaverki.    Það að fara framhjá skýrum úr-skurði hæstaréttar landsins er að vísu séríslenskt hugvit. Það að efna til þjóðaratkvæðis um tillögur, áður en þær eru tekn- ar til meðferðar á þeim stað þar sem valdið til að leggja þær fram, breyta og samþykkja liggur í raun, er líka alíslenskt hugvit.    Gísli Tryggvason, Eiríkur Berg-mann Einarsson og þeir, virð- ast halda að þeir sjálfir séu George Washington og Thomas Jefferson.“ Alíslensk útlenska STAKSTEINAR Veður víða um heim 17.10., kl. 18.00 Reykjavík 4 heiðskírt Bolungarvík 3 léttskýjað Akureyri 1 alskýjað Kirkjubæjarkl. 1 léttskýjað Vestmannaeyjar 3 heiðskírt Nuuk 5 léttskýjað Þórshöfn 6 skúrir Ósló 7 léttskýjað Kaupmannahöfn 11 heiðskírt Stokkhólmur 11 skýjað Helsinki 6 léttskýjað Lúxemborg 15 skýjað Brussel 13 skúrir Dublin 12 léttskýjað Glasgow 7 skúrir London 12 léttskýjað París 16 heiðskírt Amsterdam 15 léttskýjað Hamborg 12 heiðskírt Berlín 13 heiðskírt Vín 11 skýjað Moskva 13 alskýjað Algarve 21 léttskýjað Madríd 22 heiðskírt Barcelona 22 léttskýjað Mallorca 26 heiðskírt Róm 22 léttskýjað Aþena 26 skýjað Winnipeg 12 alskýjað Montreal 10 léttskýjað New York 13 heiðskírt Chicago 18 skýjað Orlando 26 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 18. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:29 17:57 ÍSAFJÖRÐUR 8:42 17:55 SIGLUFJÖRÐUR 8:25 17:38 DJÚPIVOGUR 8:01 17:25 Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is „Ef lög eru sett þá verður að vera hægt að tryggja að eftir þeim verði farið,“ segir Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri, um frumvarp at- vinnuvega- og nýsköpunarráðherra um skipan ferðamála. Ferðamálastofa benti á í um- sögn sinni um frumvarpið að árlega þyrfti að gera 10-15 þúsund örygg- isáætlanir hjá innlendum og er- lendum ferðaþjónustuaðilum ef frumvarpið nær fram að ganga óbreytt. „Það er ekkert að því að gera sömu kröfur til aðila hvort sem þeir eru íslenskir eða erlendir. Hins vegar er spurning hvernig farið er að því. Að ætla að hafa eft- irlit með erlendu fyrirtækjunum er illmögulegt, ef mögulegt,“ segir Ólöf. Hún segist ekki geta lagt mat á hvort hertar reglur gætu hugs- anlega fælt erlendar ferðaskrif- stofur frá landinu en bendir á að víðar sé mikil áhersla lögð á örygg- ismál, t.d. í Austurríki þar sem er mikil fjallaferðamennska. Það ætti hins vegar að vera hægt að haga eftirlitinu öðruvísi. „Það er víða hægt að gera kröfur um þá starfsemi sem fara má fram á ákveðnum stöðum. Ég bendi á að nú ætla þjóðgarðs- yfirvöld á Þingvöllum að gera ákveðnar kröfur til fyrirtækja sem sinna köfun í Silfru. Þjóðgarðar geta til dæmis gert kröfur til fyr- irtækja sem starfa og nýta sér þá auðlind sem í þjóðgarðinum felst.“ Þýddi aukinn kostnað Ferðamálastofa segir einnig að skilja megi ákvæði frumvarpsins þannig að íþróttafélög sem skipu- leggi ferðir þar sem gjald komi fyr- ir þurfi að hafa ferðaskrifstofuleyfi. „Ef þetta er rétt túlkun, sem ég þori ekki að úrskurða um, þá getum við ekki skipulagt ferðir í nafni félagsins nema að hafa svona leyfi. Þá yrðum við hugsanlega að kaupa þær í gegnum ferðaskrif- stofur. Það myndi væntanlega þýða aukinn kostnað,“ segir Haukur Þór Haraldsson, framkvæmdastjóri ÍR. Eftirlitið sé illmögulegt  Ferðamálastjóri efast um ákvæði í frumvarpi um ferða- mál  Íþróttafélög gætu þurft að leita til ferðaskrifstofa MorgunblaðiðÁrni Sæberg Íþróttir Mörg börn fara í ferðir á vegum íþróttafélaganna. mbl.is alltaf - allstaðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.