Morgunblaðið - 18.10.2012, Side 11

Morgunblaðið - 18.10.2012, Side 11
Afríku séu staðalmyndirnar af heimsálfunni enn langlífar. „Ímynd Afríku tengist enn fátæku fólki, stríði og hungursneyðum, enda eru fréttir frá Afríku því miður nánast alltaf mjög neikvæðar í öllum miðl- um. En það er svo ótalmargt já- kvætt að gerast í Afríku sem fólk fær ekki að sjá. Ég vil gefa Íslend- ingum kost á að fara til Afríku og upplifa jákvæða hluti sem tengjast nútímanum og menningunni, gefa þeim tækifæri til að forvitnast og upplifa á eigin skinni allt það góða sem Afríka hefur upp á að bjóða.“ Veðrið svipað og á Spáni Akeem segir að ferðirnar verði til að byrja með eingöngu á tíma- bilinu frá nóvember fram í mars. „Af því að þá er kaldast á Íslandi og margir vilja stytta veturinn með því að skreppa til heitari landa. Það er ekki nema átta tíma flug til Gana og það er ótrúlegt ævintýri fyrir Vestur- landabúa að koma þangað. Veðrið í Gana er ekki ósvipað og á Spáni og hitinn er um þrjátíu stig á þeim árs- tíma, það er heitast í febrúar en strax mildara í mars,“ segir Akeem sem ætlar sjálfur að vera leiðsögumaður fyrsta hópsins sem fer með ferða- skrifstofunni hans. „Til að byrja með sé ég um það hlutverk sjálfur, en ég er í samstarfi við ferðaskrifstofu úti í Gana sem er með leiðsögumenn, bíla og fleira. Ég skipulegg líka ferðir fyr- ir fólk sem vill fara á eigin vegum en ekki með leiðsögumann. Fólk getur sent inn hvers konar óskir um hvað það vill gera í ferð til Gana og við finnum út úr því.“ Hreifst af Norðurlöndum Akeem er fæddur og uppalinn í Gana og bjó þar til tvítugs en þá fór hann út fyrir landsteinana í fyrsta skipti. „Þá fór ég til Bretlands og bjó þar um tíma en sneri svo aftur heim til Gana til að halda áfram með há- skólanámið mitt í félagsfræði. Eftir það ákvað ég að ferðast um heiminn og fór víða, en fyrir algera tilviljun endaði ég á Íslandi, sem er ævintýri sem enn er í gangi. Ég kom fyrst hingað fyrir sautján árum. Ég hafði eignast íslenskan vin í útlöndum sem sagði mér frá heimalandi sínu og ég varð forvitinn og langaði að kynnast því af eigin raun. Ég hafði lengi ver- ið hrifinn af Norðurlöndunum, af því landafræðikennarinn minn frá ung- lingsárunum var finnskur og hann sagði okkur allt um Finnland og hin- ar Norðurlandaþjóðirnar,“ segir Akeem sem hefur átt lögheimili á Ís- landi í þessi sautján ár en að sjálf- sögðu hefur hann skroppið heim til Gana öðru hvoru. Friðsæld Náttúrufegurð í Gana er mikil og þar er margs að njóta. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2012 Til afhendingar strax Til viðbótar við ríkulegan staðalbúnað A3 er Sport & Mobile útfærslan búin 17” álfelgum, fjarlægðarskynjurum að aftan, krómuðum þakbogum, Bluetooth-tengingu fyrir farsíma ásamt fjarstýringum í stýri fyrir síma og útvarp. Allt þetta ásamt einstaklega sparneytinni dísilvél sem eyðir einungis 4,3 lítrum á hverja hundrað kílómetra, og þú leggur að auki frítt í stæði í 90 mínútur í Reykjavík. Audi A3 Sport & Mobile 1.6TDI sjálfskiptur Tilboðsverð: 4.750.000,- (Fullt verð: 5.530.000,-) Audi A3 Sport & Mobile Norska húsið í Stykkishólmi fagnar 180 ára afmæli sínu á þessu ári en það var byggt árið 1832 af Árna Ó. Thorlacius. Árni bjó í húsinu ásamt konu sinni Önnu Magdalenu Steen- bach og það var í eigu fjölskyldu hans til aldamótanna 1900. Húsið var lengi meðal stærstu timburhúsa landsins og það var endurgert árið 1970 undir handleiðslu Harðar Ágústssonar, þá húsameistara ríkisins. Í dag er byggðasafn Snæfellinga og Hnapp- dæla í húsinu og má finna í því sýn- ingu um Árna og konu hans Önnu í risi hússins. Alma Dís Kristinsdóttir, safnstjóri Norska hússins, segir húsið að litlu leyti tengjast Noregi. „Viðurinn úr húsinu var sóttur til Noregs en að örðu leyti eru tengslin við Noreg ekki mikil.“ Í tilefni afmælisársins verða þrjár sýningar í húsinu sem opnaðar verða 18. október í Mjólkurstofunni og Els- húsi en það eru sýningarsalir húss- ins. „Spænski listamaðurinn Eduardo Pérez Baca verður með sýningu á hænum,“ segir Alma Dís en þar er þó ekki um að ræða lifandi hænur þó ef- laust einhver kynni að hafa gaman af því. „Eduardo hefur um áratugaskeið glímt við ljósmyndaformið en nú hef- ur hann snúið sér að teikningum. Á sýningunni hans eru myndir af hæn- um eftir hann sjálfan þar sem hann leggur áherslu á liti, áferð og form.“ Þá verður sýning eftir Ingibjörgu H. Ágústsdóttur, fatahönnuð, þar sem hún nýtir íslenska búningahefð, liti, munstur og útskurð sem farveg fyrir þrívíða frásögn af Búkollu og fleiri ævintýrum sem tengjast kúm í ís- lenskum þjóðsögum í húsinu og nefn- ist sýningin hennar Kýr. Einnig verður farandsýning frá Þjóðminjasafni Íslands um leiki barna sem nefnist Ekki snerta jörðina og fjallar um leiki 10 ára barna í gegnum söguna. Allir eru velkomnir á afmælissýningu Norska hússins og hlakkar Alma Dís til að sjá sem flesta í húsinu á afmælishátíðinni. Glæsilegt timburhús sem hefur staðið tímans tönn Afmæli Norska húsið í Stykkishólmi heldur upp á 180 ára afmæli sitt. Norska húsið 180 ára Anacondaventures bjóða ógleymanlegar ferðir til Gana: Gana er land mikillar sögu og menningar og íbúar þess eru þekktir fyrir hlýtt viðmót, vin- gjarnleika og gestrisni. Ferðastu um ósnortnar sand- strendur, heimsæktu sögu- fræga staði, líflega markaði, undraverð friðlönd villtra dýra og friðlýst skógarflæmi. Komdu og kynnstu trumbu- slætti og dansi, svo ástríðu- fullum, að hann snertir mann inn að kviku. Komdu, sæktu þér afslöppun, ánægju og einstaka upplifun. Íbúar þekktir fyrir gestrisni GANA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.