Morgunblaðið - 18.10.2012, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 18.10.2012, Qupperneq 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2012 Lítil og meðalstór fyrirtæki eru stærsti atvinnuveitandi á Ís- landi og gegna þau lykilhlutverki í at- vinnulífinu. Stjórn- málamenn á Íslandi veita smáfyrirtækjum litla athygli, samt eru 27 þúsund smáfyr- irtæki í landinu og þar starfa um 90 þúsund manns. Athyglisvert er að 90% allra íslenskra fyrirtækja eru með undir 10 starfsmenn og 99% fyrirtækja á Íslandi eru með færri en 250 starfs- menn. Í íslenskum smáfyrirtækjum er vöxturinn hraðastur og verður að koma til móts við þau með skattalækkunum og þá sér í lagi með lækkun tryggingargjaldsins niður í 3% strax eftir kosningar. Þar er auðveldast að fjölga störfum og ódýrast að fjárfesta. Stundum má hugsa smátt, það skilar stund- um mestu þegar til lengri tíma er litið – smátt er smart. Margur iðnaðurinn hefur farið halloka undanfarin ár og er kominn tími til að stoppa þá þróun. Hægri grænir, flokkur fólksins, ætla að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að standa við bakið á ís- lenskum smá- og með- alstórum fyrirtækjum. Allir hagnast Hugmyndir flokksins ganga út á að bjóða löng óverðtryggð lán til 30 ára, til smárra og meðalstórra fyr- irtækja og skuldbreyta eldri verð- tryggðum lánum. Taka skal fram að um markaðslausn er að ræða. Ekki er hætta á að verðbólga aukist þar sem flutningur fjármagns verður beint til fjármálastofnana, en lán- takendur sitja eftir með lægri, lengri, viðráðanlegri og óverð- tryggð lán. Auknu peningamagni í umferð verður stýrt með aukinni bindiskyldu lánastofna, eða eins og þurfa þykir, til þess að fjár- málakerfið sé í jafnvægi. Aðgangur að fjármagni Breyta verður fjármögnun og fjármögnunarmöguleikum íslenskra fyrirtækja. Skynsamlegast væri að fara sömu leið og Bandaríkjamenn, eða eins og SBA (Small Business Administration) starfar í Banda- ríkjunum. SBA leiðin gerir smáfyr- irtækjum og athafnamönnum kleift að stofna fyrirtæki með 10% í eigið fé, bankinn kemur með 50% og SBA sjóðurinn 40%. Lán allt upp að 680 milljónum króna eru veitt af sjóðnum en sjóðurinn er sjálfseign- arstofnun. Veð er eingöngu tekið í hlutabréfunum. Þetta er lausnin sem Hægri grænir, flokkur fólks- ins, ætla að innleiða í íslenskt fyr- irtækjaumhverfi eftir næstu kosn- ingar. Útrýmum atvinnuleysi Ljóst er að íslenska skattakerfið vinnur gegn fyrirtækjum lands- manna. Litlir sem engir skattalegir hvatar eru til fjárfestinga í atvinnu- rekstri fyrir smá og meðalstór fyr- irtæki. Lítill vilji og skilningur er hjá stjórnvöldum til þess að hvetja til fjárfestingar og atvinnusköp- unar, þrátt fyrir efnahagsástandið. Stjórnvöld virðast ekki skilja það að lægri skattar efla atvinnulífið og hægt væri að útrýma atvinnuleysi á Íslandi með lækkun trygging- argjalds. Þvert á móti reyna þau trekk í trekk að rústa atvinnugrein- ar með lagasetningu og skattp- íningu. Stjórnvöld ættu að hafa eitt í huga: að hvert nýtt starf sem skapaðist hjá fjórða hverju smáfyr- irtæki, myndi skapa rúmlega 6.500 fjölbreytt störf. Stöðugleiki er takmarkið Stöðugleiki í efnahagstjórn er takmarkið og hallalaus fjárlög nauðsynleg. Við megum heldur ekki gleyma því að fólkið í landinu horfir til okkar sem bjóðum okkur fram til stjórnmálastarfa – með von um betri framtíð. Okkar skylda er að rísa undir þeim væntingum, stuðla að betri framtíð, betri lífskjörum og hugsa í lausnum, en ekki leggja stein í götu alls sem til framfara horfir. Efnahagslífið er einn vefur og starfsskilyrði atvinnulífs og lífs- kjör fólksins eru samofin. Hernaður stjórnvalda gegn atvinnulífi lands- ins er hernaður gegn lífskjörum þjóðarinnar. Ef þessar hugmyndir flokksins ganga eftir fá íslensk smáfyrirtæki langþráð fjármála- öryggi sem þeim ber og það er skylda íslenskra stjórnmálamanna að koma þessum málum í örugga höfn. 3% tryggingargjald eftir kosningar Eftir Guðmund F. Jónsson » Stjórnvöld ættu að hafa eitt í huga: að hvert nýtt starf sem skapaðist hjá fjórða hverju smáfyrirtæki, myndi skapa rúmlega 6.500 fjölbreytt störf. Guðmundur F. Jónsson Höfundur er viðskiptafræðingur og formaður Hægri grænna, flokks fólksins. EAPN (European Anti Poverty Network) eru evrópsk samtök sem stofnuð voru árið 1990 og eru mynd- uð af frjálsum félagasamtökum. EAPN er ekki hluti af Evrópusam- bandinu en nýtur stuðnings fram- kvæmdastjórnar þess. Markmið Helstu markmið EAPN eru að berjast gegn fátækt og félagslegri einangrun og að verja hagsmuni þeirra sem búa við fátækt. EAPN lítur svo á að fátækt og félagsleg einangrun séu brot á grundvall- armannréttindum því fátækt gerir fólki ókleift að lifa með reisn. Or- sakavaldur fátæktar er flókið sam- spil margra ólíkra þátta og því þarf að ráðast gegn þeim á breiðum grunni. Virk þátttaka fólks sem lifir í fá- tækt er nauðsynleg svo hægt sé að finna ástæður fátæktar og félagslegrar einangr- unar og um leið er stuðlað að valdeflingu þessara einstaklinga. Valdefling felst m.a. í að styrkja sjálfsmynd og félagslega vitund einstaklingsins þannig að viðkomandi finnist hann geta haft áhrif á aðstæður sínar. Aðildarfélögin Undirbúningur að stofnun EAPN á Íslandi hófst í ársbyrjun 2011. Vorum við formlega tekin inn í Evr- ópusamtökin í júní á aðalfundi þeirra í Lissabon og 4. nóvember sama ár var fyrsti aðalfundur EAPN á Íslandi haldinn. Aðildarfélögin eru hjálparsamtök og hagsmunasamtök sem hafa það að mark- miði sínu að vinna að málefnum fátækra. Þau eru Hjálparstarf kirkj- unnar, Geðhjálp, Bót, Samhjálp, Félag ein- stæðra foreldra, Sjálfs- björg, Kærleiksþjón- usta kirkjunnar, Velferðarvakt Suð- urnesja, Hjálpræð- isherinn og Ör- yrkjabandalag Íslands. Starfið Starf EAPN í hverju aðildarlandi er tvíþætt. Annars vegar er unnið á heimavelli, m.a. með því að reyna að hafa áhrif á stefnu stjórnvalda og hins vegar taka meðlimir þátt í sam- starfi aðildarlanda EAPN með það markmið að hafa áhrif á stefnu Evr- ópusambandsins. Meðlimir EAPN á Íslandi hafa undanfarið unnið með fulltrúum frá Hjálparstarfi kirkjunnar, Rauða krossinum, velferðarvakt velferð- arráðuneytisins, velferðarsviði og velferðarráði Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands að því að leita leiða til að bregðast við vanda þeirra sem búa við fátækt hér á landi. Á vettvangi Evrópu eigum við þrjá fasta fulltrúa. Einn í fram- kvæmdastjórn EAPN, annan í starfshópi sem hefur það markmið að ákvarða stefnu og lobbýisma bæði gagnvart ESB og stjórnvöld- um aðildarlandanna (EU Inclusion Strategies Group) og þann þriðja í starfi þar sem fólk sem býr við fá- tækt kemur saman og vekur athygli á stöðu fátækra (People Experienc- ing Poverty). Auk þess sækja fulltrúar EAPN á Íslandi árlegar ráðstefnur á vegum samtakanna. Fátækt hefur aukist í Evrópu undanfarin ár. Aðhaldsaðgerðir stjórnvalda í kjölfar kreppunnar hafa bitnað hart á þeim sem minnst höfðu fyrir svo staða þeirra hefur versnað til muna. Það á einnig við hér á landi. Með því að taka höndum saman og mynda EAPN á Íslandi verðum við sterkari og ekki veitir af styrknum því ærin verkefni eru framundan. EAPN á Íslandi Eftir Þorberu Fjölnisdóttur Þorbera Fjölnisdóttir » Aðhaldsaðgerðir stjórnvalda í kjölfar kreppunnar hafa bitnað hart á þeim sem minnst höfðu fyrir svo staða þeirra hefur versnað til muna. Höfundur er fulltrúi ÖBÍ í stjórn EAPN á Íslandi gefur Morgunblaðið út glæsilegt sérblað um jólahlaðborð, tónleika og uppákomur í nóvember og desember. Fjöldinn allur af veitingahúsum bjóða upp á jólahlaðborð og sérrétti á aðventunni og mikið úrval í boði fyrir þá sem vilja gera sér glaðan dag á þessum skemmtilega tíma ársins. SÉRBLAÐ Föstudaginn 26. október JÓLAHLAÐBORÐ Pöntunartími auglýsinga: er fyrir klukkan 16 föstudaginn 19.október NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími 569-1105 kata@mbl.is – Meira fyrir lesendur Jólahlaðborð á völdum• veitingahúsum. Jólahlaðborð heima.• Girnilegar uppskriftir.• Fallega skreytt• jólahlaðborð. Tónleikar og aðrar• uppákomur. Ásamt fullt af öðru• spennandi efni. MEÐAL EFNIS: K EN Z O .C O M HVERFISGÖTU 6 S. 551 3470 ALEXANDER WANG SEE BY CHLOE SCHUMACHER BALDESSARINI ROCCO P PEDRO GARCIA STENSTRÖMS VAN LAACK EMPORIO ARMANI CAMBIO

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.