Morgunblaðið - 18.10.2012, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 18.10.2012, Qupperneq 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2012 Fyrir hrunið spruttu upp litlir karlar sem langaði að verða stórir og höfðu Hannes Smárason og hans líka að átrúnaðargoðum. Þessir gæjar stóðu í alskyns braski með fyrirtæki, fasteignir og lóðir. Flestir fóru illa á þessu brölti, enda eng- in innistæða fyrir því, allt tekið að láni. Flestum þessara manna svipar saman um margt. Flestir eru þessir karlar miðaldra kvennabósar í dag, flottir í tauinu og góðir með sig. Þeir aka flestir um á svörtum Gameower, sem skráður er á konuna eins og húsið. Ég sé þá fyrir mér eins og Þórhall í Íslenska draumnum vera að reyna að meika það. Fyrir skömmu hitti ég gamlan vin sem fór mikinn á sínum tíma en allt fór á hausinn, hann hafði rekið nokkur fyrirtæki, og gert sig breið- an. Fyrir rúmu ári hitti ég þennan gamla vin, sem var þá atvinnulaus og eðlilega beygður af ástandinu hjá sér, en ekki af baki dottinn, sem betur fer. Vinurinn bað mig ásjár og ég illu heilli lánaði honum pen- inga til að hann gæti stofnað nýtt fyrirtæki. Nú hef ég á tilfinningunni að ég hafi ekki gert honum neinn greiða með því. Við tókum spjall saman og hann sagði við mig, hvernig getur þú þetta? Get ég hvað? Verið á svona litlum bíl, svar- aði vinurinn og keyrði í burt á svarta Gameowernum á einkanúm- eri, en skráður á konuna. Nú er einn „auðmaður“ mættur með áform sín á klakann, og því fylgir sú hætta að ístöðulitlir ævintýramenn spretti upp sem aldrei fyrr og hafi hann að átrúnaðargoði sínu. Það er þessi Núpo sem á endalausa peninga og stendur í braski um allan heim. Einhvern veginn læð- ist að mér sá grunur að Núpo þessi byggi auðæfi sín á álíka traustum grunni og Hannes Smárason og hans líkar gerðu þegar veldi hans var sem mest. Við eigum að læra af sögunni, tímarnir eru aðrir í dag en í þá gömlu góðu þegar hér brutust af dugnaði og elju fram menn upp úr sárri fátækt, til alls- nægta, og byggðu upp atvinnufyr- irtæki, sem sköpuðu fólki vinnu og þjóðinni gjaldeyri. Til að nefna einhver nöfn má nefna afburðamenn eins og Thor Thors og Tryggva Ófeigsson, sem lögðu allt sitt undir til atvinnusköp- unar. Þessir guttar sem í dag eru í braskinu hafa allt aðra sýn, þeir eiga sér þann draum að berast sjálf- ir á, búa í fínum húsum og skara eld að eigin köku. Þeir skeyta því engu þó einhverjir verði fyrir barðinu á þeim, þessir menn eru hættulegir. Ef við skoðum hvað auðmenn síð- ustu ára hafa skilið eftir í íslensku samfélagi held ég að það séu að- allega skuldir sem almenningur borgar. Okkur vantar ekki fleiri slíka. Eftir Ómar Sigurðsson »Upp spruttu litlir karlar sem höfðu Hannes Smárason og hans líka að átrún- aðargoðum. Ómar Sigurðsson Höfundur er skipstjóri. Plastpokamennirnir Nauðungarsala fasteignar er eitt það versta sem hent getur húseigendur í Banda- ríkjum Norður- Ameríku eins og á Ís- landi. Þar sem um- ræðan um nauðungarsölur á Ís- landi hefur verið mikil og margar greinar ritaðar um þetta mál, datt mér í hug að benda á nokkur úrræði sem notuð eru í BNA til þess að forðast nauðungarsölur. Í þessari grein ætla ég að fjalla um 9 algengustu leiðirnar sem notaðar eru til að koma í veg fyrir nauð- ungasölu heimilisins. Fyrsta og auðveldasta leiðin er að koma láninu í skil. Ef ástæðan fyrir vanskilum var tímabundin at- vinnumissir, tímabundin veikindi eða annað þvíumlíkt og lántakand- inn er kominn yfir erfiða hjallann, þá er heimild í lánasamningum hér til að koma lánum í skil einu sinni á lánstímanum. Önnur leiðin er að semja við lánastofnunina um endur- greiðsluáætlun á vanskilunum, það er gert samhliða því að greiða venjulegar afborganir. Þessi leið er oft mjög erfið fyrir lántakand- ann, sem er að greiða sína venju- legu mánaðarlegu afborgun ásamt vanskilunum. Þriðja leiðin er að endur- fjármagna eignina, ef eignin er meira virði heldur en skuldin sem hvílir á eigninni, þá er góð lausn að endurfjármagna eignina á lægri vöxtum. Vextir í dag eru í kringum 3,85% en voru fyrir nokkrum árum í kringum 7%. Fjórða leiðin er að óska eftir lánabreyt- ingu. Þetta er leið sem farin er þegar vandamálið er orðið skuldaranum ofviða. Í boði eru margar leiðir til lánabreytinga, meðal annars vaxta- lækkun, lengja lánið, fella niður hluta af láninu eða aðrar breytingar á lánaskil- málum. Í fimmta lagi þá er möguleg lausn að selja eignina. Ef markaðs- verð eignarinnar er hærra en skuldin þá er það möguleg lausn á fjárhagsvanda að selja eignina og greiða upp lánið. Þessi leið er mik- ið notuð af fjárfestum en er erfið fyrir fjölskyldur sem búa í eign- inni. Í sjötta lagi má leigja út eignina og láta hana afla tekna til þess að greiða af láninu. Þarna þarf að fara virkilega varlega, það er alltaf hætta á að leigjandinn hætti að greiða og það þurfi að láta bera hann út. Útburður kostar peninga og tekur um það bil mánuð þar sem eignin skilar engum tekjum. Í sjöunda lagi er það að selja eignina í skortsölu. Skortsala er ein vinsælasta lausn í dag fyrir húseigendur í fjárhagsvanda. Skortsala gerist þegar lántaki semur við lánastofnun um að heim- ila honum að selja eignina í skort- sölu. Oftast gefa lánastofnanir eft- irstöðvarnar eftir þegar um skortsölu er að ræða, þó eru nokk- ur dæmi um að lánastofnun fari fram á skuldabréf frá lántaka um að hann greiði hluta af tapaða fénu. Þessi skuldabréf eru yfirleitt vaxtalaus og til nokkurra ára með mánaðarlegum greiðslum. Í áttunda lagi er að afsala eign- inni til lánastofnunar, þessu er oft lýst sem vinalegri nauðungarsölu. Þegar eign er afsalað til lánastofn- unar þá gefur lánastofnunin eft- irstöðvarnar oftast eftir. Þessi að- ferð sparar lánastofnuninni lögfræði- og réttarkostnað. Í níunda lagi er mögulegt að lýsa yfir gjaldþroti. Að lýsa yfir gjaldþroti er öfgafyllsta og ör- þrifaríkasta leið heimilanna til þess að verja sig gegn dómi um eftirstöðvar. Þessi leið mun stöðva nauðungarsölumál í réttinum en ekki koma í veg fyrir hana. Gjald- þrot í BNA er líkara greiðslu- stöðvun á Íslandi, þar sem rétt- urinn skipar skiptastjóra sem mun í samráði við alla aðila sjá um að réttlátlega sé greitt sem mest af skuldunum. Stundum fá heimilin að halda fasteigninni og yfirleitt að minnsta kosti einu ökutæki. Nauðungarsöluferlið hefst á því að lánastofnunin hraðar lánaaf- borgunum og gerir veðkall. Næst er lántaka stefnt til greiðslu og síðan ef lántaki getur ekki greitt þá heimilar rétturinn söluna og dæmir lántaka til greiðslu lánsins og innheimtukostnaðar. Næst sel- ur lánastofnunin eignina og hefur þá rétt á að innheimta mismuninn á dóminum og sölutekjunum. Lánastofnunin getur reynt inn- heimtu á eftirstöðvum í allt að 20 ár. Þessi 20 ára ánauð er það sem allir vilja forðast því hún skaðar þjóðfélagið í heild. Níu leiðir til að forðast nauðungarsölu Eftir Pétur Má Sigurðsson » Þær 9 leiðir sem vinsælastar eru í Bandaríkjum Norður- Ameríku til þess að forðast nauðungarsölu heimilis. Pétur Már Sigurðsson Höfundur er fasteignamiðlari í Mið-Flórída og eigandi The Viking Team Realty. Íslensk heimasíða www.Floridahus.is. HERRASKÓR Þú færð SKECHERS herraskó í: Skór.is, Kringlunni og Smáralind Steinar Waage, Kringlunni og Smáralind | OUTLET Fiskislóð 75, Rvk Fjarðarskór, Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi | Blómsturvellir, Hellisandi Hafnarbúðin, Ísafirði | Skóhúsið, Akureyri | Mössuskór, Akureyri Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum | Versluninni Skógum, Egilstöðum | System, Neskaupstað Lónið, Höfn í Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.