Morgunblaðið - 18.10.2012, Page 26

Morgunblaðið - 18.10.2012, Page 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2012 Framundan eru kosningar um samein- ingu Garðbæjar við Álftanes. Upplýs- ingagjöf og umræða hefur verið einhliða og forsvarsmenn Garða- bæjar forðast gagn- rýnar spurningar. Hér eru nokkrar tölur og staðreyndir sem gera Garðbæingum kleift að ganga upplýstari til kosninga. Kröfuhafar Álftaness hafa mest- an hag af sameiningu og samein- ingarhugmyndirnar taka fyrst og fremst mið af þeirra hagsmunum. Álftanesbær er í raun gjaldþrota og skuldar tæpa 6 milljarða í dag en ekki 2-3 eins og gefið er í skyn. Skuldageta Álftaness er 1 millj- arður og kröfuhafar þurfa að finna aðra til að greiða tæpa 5 milljarða. Með sameiningu sveitarfélaganna munu Garðbæingar greiða 3,3 milljarða af skuldum Álftaness og skattborgarar landsins aðra 1,2 milljarða í gegnum Jöfnunarsjóð. Kröfuhafar gefa eftir samtals 0,3 milljarða ef af sameiningu verður. Eftirgjöf krafna er því ekki 32% eins og fullyrt er. Fasteign ehf. sel- ur sundlaugina frægu á 1,5 millj- arða núvirt í stað þess að eiga framvirka 2,2 milljarða leigukröfu. Ekkert faglegt eignamat hefur farið fram til þess að meta raun- verulega stöðu eigna Álftaness. Í málflutningi sameining- armanna eru mannvirki Álftaness metin á 3,3 milljarða, þar af sund- laugin á 1,5 milljarða. Samskonar mannvirki Garðabæjar eru í dag vannýtt með um 70% nýtingarhlut- fall. Ráðast þarf í umfangsmiklar framkvæmdir vegna viðhalds gatna, fasteigna og fráveitna á Álftanesi. Áætlaður kostnaður nemur hundruðum milljóna. Greiðsla skulda Álftaness, fjár- magnskostnaður og nauðsynlegar framkvæmdir taka um 3,5-4,5 millj- arða úr sjóðum og af framtíð- artekjum Garðbæinga. Sú fjárhæð verður því ekki notuð til fram- kvæmda og eflingar þjónustu í Garðabæ á næstu árum. Nýting þessara fjármuna í fram- kvæmdir og þjónustu í Garðabæ myndi stórbæta núverandi sam- félag okkar: lækka skuldir, opna möguleika á lækkun skatta og þjónustugjalda, bæta lánshæfismat Garðabæjar, auka verðmæti eigna og hagkvæmni í rekstri. Ábyrgðir Álftaness og óútkljáð dómsmál geta aukið 6 miljarða skuldir Álftnesinga um hundruð milljóna, sömuleiðis mun rekstr- artap Álftaness að meðtöldum fjár- magnskostnaði 2011 og 2012 þýða hundraða milljóna skuldaaukningu. Hugmyndin er að Garðbæingar borgi. Álftanes er 7% af sameiginlegu sveitarfélagi, að hluta í einkaeigu, og búið er að skipuleggja að mestu landsvæði sem Álftanes á. Álfta- neshverfið í sameinuðu bæjarfélagi er óhagkvæm rekstrareining og yrði áfram. Kostnaður við rekstur þess hverfis mun stóraukast á næstu árum. Álftnesingar yrðu 17% íbúa í sameinuðu sveitarfélagi en stæðu undir 13% af tekjum þess. Fáir ef nokkrir langtímakostir eru í spil- unum við áformaða sameiningu. Skammtímakostir eru engir. Ekkert faglegt mat hefur farið fram á samhæfingu málaflokka, réttindum íbúa og starfsmanna, öðrum sameiningarmöguleikum eða valkostinum að sameina ekki. Tökum varfærna upplýsta ákvörðun. Skuldir Álftaness = Icesave Garðbæinga? Eftir Jón Árna Bragason og Braga Þ. Bragason » Greinin fjallar um sannleikann um mögulega sam- einingu Garðabæjar og Álftaness Jón Árni Bragason Jón Árni er verkfræðingur. Bragi er rekstrarhagfræðingur. Báðir íbúar í Garðabæ. Bragi Þ. Bragason Eitt aðalsmerki hinnar hreinu vinstri- stjórnar er hvernig henni tekst að sundra þjóðinni í flestum málum. Hún hefur skapað deilur um seðlabankamálið, sjávarútvegsmálið, ESB-málið og fleiri mál. Ekki tókst henni þó að sundra þjóðinni í Icesave-málinu, og þó var allt til þess gert. Nú er allt gert til að skapa sundrungu um stjórn- arskrána. Lýðskrum- arar reyna að telja okkur trú um að skríllinn, sem beitti Alþingi og lögreglu ofbeldi, hafi verið að krefjast nýrrar stjórnarskrár. Þetta er rangt. Fólkið lýsti óánægju sinni og áhyggjum vegna hrunsins, en mest áberandi var skríllinn, sem kom til að skemmta sér með grjót- og eggja- kasti. Sömu skrumarar reyna að telja okkur trú um að stjórnarskráin sé úrelt dönsk stjórnarskrá. Þetta er rangt. Stjórnarskráin hefur þróast eftir kröfum tímans og breyttum aðstæðum. Hún var samþykkt við stofnun lýðveldisins 1944 af sam- taka þjóð. Síðan hafa verið gerðar lagfæringar á henni af samtaka þjóð. Hún þarfnast enn lagfæringa en ekki byltingar. Stjórnarskráin verður ekki betri þó greinum hennar fjölgi. Stjórn- arskráin verður ekki betri þó henni fylgi 150-200 blaðsíður af skýringum. Stjórnarskráin verður ekki betri þó 1.000 manns hafi komið að gerð hennar. Gæði nefndastarfa eru oftast í öfugu hlutfalli við fjölda nefndarmanna. Fela á fáum hæfum mönnum, sem ekki eru háðir skrumurum né of- stæki götunnar, að gera tillögur um endurskoðun stjórnar- skrárinnar. Höfum að leiðarljósi orð Ólafs Pá, þegar einn félaga hans lagði til, að fleiri menn yrðu kallaðir til ráða: Það ætla ég að oss reynist þeim mun verr … manna ráð sem þau koma fleiri saman. Þær spurningar sem nú eru lagðar fyrir þjóðina eru óskýrar og vekja fleiri spurningar. Kjósendur, sem eiga að svara þessum spurn- ingum, skilja þær ekki og geta því ekki svarað þeim. Ekki get ég það. Fyrsta spurningin er þó full- komlega skýr. Ekki þarf að svara seinni spurningunum. Aðeins þarf að svara fyrstu spurningunni með Nei. Stjórnarskráin Eftir Axel Kristjánsson Axel Kristjánsson » Lýðskrumarar reyna að telja okkur trú um að skríllinn, sem beitti Alþingi og lögreglu ofbeldi, hafi verið að krefjast nýrrar stjórnarskrár. Höfundur er lögmaður Nú liggja fyrir drög að heilbrigðisáætlun til ársins 2020 og eru þau aðgengileg á vef velferð- arráðuneytisins. Hér er um ágætis áætlun að ræða og í mörgu má finna ákvæði sem munu koma langveikum til góða, þar á meðal fólki með gigtarsjúkdóma og annan stoðkerfisvanda. Gefin eru fyrirheit um aðgengi, jöfn- uð, fólki verði ekki mismunað eftir efnahag, sjúkdómaflokkum eða sjúk- dómum, búsetu eða öðrum þáttum. Það er full ástæða til að hafa áhyggjur af aðgengi. Í dag er að- gengi háð efnahag, búsetu og fólki er mismunað í ljósi sjúkdómaflokka, má þar nefna greiðsluþátttöku í lyfjum, heilbrigðisþjónustu við langveik börn, aðgengi að sérfræðingum á landsbyggðinni, ofl. Jöfnuður er grunnhugtak sem verður að taka alvarlega, en ekki ein- ungis varðandi aðgengi, heldur með- ferð líka og kostnaðarþátttöku. Til að mynda verða allir líkamspartar að heyra undir heilbrigðis- og velferð- arkerfið. Þegar gigtarsjúkdómar eru annars vegar eru engin líffæri eða líkamshlutar óhultir, því er nú verr. En þegar greiðsluþátttaka er skoð- uð, ekki bara í dag, heldur und- anfarna áratugi, þá velkist enginn í vafa um það að háls, munnhol og augu teljast ekki til líkamans. Einn stærsti kostur áætlunarinnar er þó tenging félagslegra þátta og heil- brigðis. Forvarnasjónarmið í áætluninni eru skýr og er það vel. Mark- mið og aðgerðir er varða hreyfingu og mataræði vel útfærð- ar. Samræmd sjúkra- skrá er framtíðin, auð- vitað að öllum skilyrðum uppfylltum varðandi persónu- vernd, en í þeirri um- ræðu gleymist oft það lykilatriði að fólkið sjálft, sjúklingarnir, eiga að hafa raf- rænan aðgang að sínum upplýs- ingum og því hverjir í þau gögn leita. Það á ekki að vera neitt launung- armál. Á heildina litið er ég nokkuð sátt- ur við áætlunina, en þó verulega ósáttur varðandi kafla þann sem snýr að lífsgæðum. Kafla „A.4 – Lífs- gæði fólks með sjúkdóma“. Ekki það að ég vilji ekki auka lífsgæði lang- veikra. Heldur því að í kaflanum er skautað fram hjá öðrum stærsta sjúklingahópi í landinu, gigtarfólki og samtökum þess. Kannski má af því má ráða að ekki sé þörf fyrir aukna þekkingu almennings á áhættuþáttum og einkennum gigt- arsjúkdóma, eins og er fyrir hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki, krabba- mein og lungnasjúkdóma. Hvers á gigtarfólk að gjalda? Hreyfing og mataræði skilar sér vissulega í aukn- um lífsgæðum, en þessi hópur þarf aukinn skilning, fræðslu um sína sjúkdóma eins og aðrir þeir sjúk- dómaflokkar sem hér hafa verið nefndir. Við hljótum að gera þá kröfu til stjórnvalda að vandi fólks með gigt og annan stoðkerfisvanda verði við- urkenndur, sem og árangur fræðslu og ráðgjafar. Hópurinn sem „plager flest og koster mest“ segja Norð- menn. Ég skora því á íslensk stjórn- völd að taka áskorun fræða- samfélagsins (gigtar) í Evrópu, áskorun fulltrúa gigtarfélaga í álf- unni og fulltrúa stjórnvalda, (Bruss- el 2010) að viðurkenna nauðsyn stefnumarkandi aðgerða á sviði gigt- arvarna. Í áskorun þeirra var fyrsta aðgerð í upptalningu af sex að „Gigt- arsjúkdómar og annar stoðkerf- isvandi verði forgangsmál við mörk- un heilbrigðisstefnu.“ Við verðum að gera þá kröfu að okkar. Hlutirnir verði nefndir á nafn, þar sem við á, í heilbrigðisáætlun sem standa á til ársins 2020. Drög að heilbrigðis- áætlun til ársins 2020 Eftir Emil Thoroddsen » Við hljótum að gera þá kröfu til stjórn- valda að vandi fólks með gigt og annan stoðkerf- isvanda verði viður- kenndur, sem og árang- ur fræðslu og ráðgjafar. Emil Thoroddsen Höfundur er framkvæmdastjóri Gigtarfélagsins. Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - Sími 551 6646 Opið virka daga frá 10 -18 og laugardaga frá 11-15

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.