Morgunblaðið - 18.10.2012, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 18.10.2012, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2012 ✝ Hjördís Guð-mundsdóttir fæddist í Reykjavík 24. júlí 1920. Hún lést á Dvalarheim- ilinu Skógarbæ 23. september 2012. Foreldrar henn- ar voru Guð- mundur Krist- jánsson, bifreiðarstjóri og sjómaður, og Ingi- björg Ásmundsdóttir húsfrú. Systkini Hjördísar voru Ás- mundur, Ingólfur, Guðmundur, Lúð- vík, Hjörtur, Hjálmar, Pálmi, Haraldur, Kristín og Guðrún, þau eru öll látin. Hjördís á einn eftirlifandi bróður, Aðalstein Kristin, og fóst- ursystur, Ásdísi Önnu. Útför Hjördísar fór fram í kyrrþey frá Fossvogs- kapellu. Hjördís var uppalin í stórum hópi systkina sem öll komust til mennta sem ekki var sjálfgefið á þessum árum. Hjördís var bókhneigð og mikill tónlistar- unnandi. Hjördís stundaði bók- aranám í New York í Banda- ríkjunum á stríðsárunum og var ein af þeim sem komu til Ís- lands í stórri skipalest. Hjördís starfaði alla sína tíð við versl- unar- og skrifstofustörf. Lengst af hjá Ölgerðinni Agli Skalla- grímssyni. Á mína fyrstu sinfóníutón- leika fór ég með Hjördísi frænku minni. Hjördís var barngóð og ófáar útilegur fór- um við í ásamt mömmu og jafn- vel fleiri frændum og frænd- systkinum. Þann 5. júní 1968 um hádeg- isbil kviknaði í húsi móður Hjördísar að Grettisgötu 58, er hún var að elda hádegismat. Húsið varð alelda á örfáum mínútum. Eins og tíðkaðist þá var vani að koma heim í hádegi. Ég (Kristín) var komin fyrst heim í mat, vann þá hjá Lúlla frænda, síðan kom Hjördís og skipti það engum togum að Hjördís óð inn í eldhafið til að bjarga aldraðri móður sinni. Tryggvi sonur Önnu kom í þann mund og stóðum við sem lömuð á bílaplaninu fyrir utan húsið. Hjördís var afar snyrtileg kona og alltaf vel tilhöfð. Hjör- dís bjó lengst af í foreldrahús- um, eftir andlát föður síns ann- aðist Hjördís móður sína til dauðadags. En síðar bjó Hjör- dís með systur sinni Guðrúnu uns hún lést árið 1997. Þær bjuggu sér fallegt heimili og alltaf var allt hreint og strokið. Oft var ég spurð hvort ég ætl- aði ekki að fara að taka laug- ardagsverk, því alltaf var skúr- að út úr dyrum á laugardögum hjá þeim systrum. Hjördís var Guðrúnu (móður minni) mikil stoð og stytta og reyndar voru þær góður stuðningur hvor við aðra. En eftir andlát móður minnar kom töluverður ein- manaleiki að Hjördísi. Bjó Hjördís í stuttan tíma í Árbæj- arhverfinu, síðar í Furugerði uns hún fluttist að dvalarheim- ilinu Skógarbæ og lést þar 23. september síðastliðinn. Ásdís Anna frænka mín ann- aðist systur sína af mikilli alúð og ekki leið sú vika að hún heimsótti ekki systur sína og þá ævinlega með blómvönd, ein- stök umhyggja eins og starfs- fólk Efstabæjar sagði er haldin var minningarathöfn þar um Hjördísi sem var afar hlý og notaleg. Langar mig til að koma á framfæri miklu þakk- læti til starfsfólks Skógarbæjar og þó sérstaklega til deildarinn- ar Efstabæjar, þar sem starfs- fólk hugsaði einstaklega vel um Hjördísi. Einnig vil ég þakka minni kæru frænku Ásdísi Önnu fyrir frábæra umhyggju. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem) Hvíl í friði, kæra frænka. Minning þín lifir. Kristín Gunnarsdóttir (Lilla). Hjördís Guðmundsdóttir ✝ BergþórSmári, læknir, fæddist í Reykja- vík 25. febrúar 1920. Hann lést í Reykjavík 28. september 2012. Foreldrar hans voru Jakob Jó- hannesson Smári, mag. art. í íslensk- um fræðum, yf- irkennari við MR og skáld, f. 9.10. 1889, d. 10.8. 1972, og kona hans Helga Þor- kelsdóttir Smári, kjólameist- ari, f. 20.11. 1884, d. 1.2. 1974. Systir Bergþórs var Katrín J. Smári, f. 22.7. 1911, d. 13.1. 2010. Fyrri kona Bergþórs var Unnur Erlendsdóttir, f. 14.11. 1917, d. 30.8. 1991. Börn þeirra eru: 1) Jakob Smári, prófessor í sálfræði við Há- skóla Íslands, f. 11.1. 1950, d. 19.7. 2010. Hann var kvæntur Malínu Örlygsdóttur, þau slitu samvistir. Börn Jakobs og Mal- ínar eru: Örlygur Smári, f. 30.6. 1971, maki Svava Gunn- arsdóttir, f. 22.12. 1976. Börn þeirra eru Malín, Gunnar Berg og Jakob Þór. Bergþór Smári, f. 20.11. 1974. Dætur hans eru Heba og Hrönn. Unnur Jak- obsdóttir Smári, f. 21.10. 1980, maki Friðrik Magnus, f. 1.6. 1980. Börn þeirra eru Tómas, Davíð og Freyja Malín. Síðar lögfræðingi, skattrannsókn- arstjóra ríkisins, og eiga þau þrjú börn, Steinar Þór, f. 28.7. 2002, Kristínu Önnu, f. 2.5. 2004, og Styrmi Jón, f. 4.12. 2009. Bergþór lauk stúdentsprófi 1939 frá Menntaskólanum í Reykjavík. Um haustið sama ár hóf Bergþór nám í lækn- isfræði við Háskóla Íslands. Hann var í stúdentaráði Há- skóla Íslands í tvö ár og var gjaldkeri lánasjóðs stúdenta í þrjú ár. Hann lauk embættis- prófi í læknisfræði 1946. Með- fram námi í læknadeild rak hann saumastofu og verslun í Reykjavík ásamt öðrum. Hann hóf störf sem kandídat á Landakotsspítala 1946 og síð- ar á fæðingardeild Landspít- alans 1947. Hann var héraðs- læknir í Stykkishólms- og Flateyjarhéruðum 1947-1948 og jafnframt spítalalæknir á St. Franciskusspítalanum í Stykkishólmi. Þaðan lá leiðin í framhaldsnám í lyflæknisfræði til Danmerkur. Á árinu 1951 opnaði hann svo læknastofu í Reykjavík og hóf að starfa sem heimilislæknir og einnig sérfræðingur í lyflæknisfræði. Á tímabilinu 1952-1960 var hann tryggingalæknir hjá Tryggingastofnun ríkisins meðfram öðrum störfum. Hann starfaði alla tíð sem sjálfstætt starfandi læknir. Hann hætti störfum 1. janúar 1999. Útför Bergþórs fór fram í kyrrþey 5. október 2012. kvæntist Jakob Guðbjörgu Gúst- afsdóttur, mennta- skólakennara. 2) Erla Bergþórs- dóttir Smári, f. 4.4. 1953, félagsráð- gjafi. Hún var gift Åge Hanssen, námsstjóra í Osló. Þau slitu samvistir. Börn Erlu og Åge eru Sturla, f. 8.12. 1978, og Helga, f. 26.9. 1982, maki Magnus Gommerud Niel- sen, f. 16.10. 1981. Börn þeirra eru Emanuel og August. Erla giftist síðar Thomas Mathie- sen, prófessor í réttar- þjóðfélagsfræði við lagadeild Oslóarháskóla, f. 5.10. 1933. Börn þeirra eru og Snorre og Sindre. Barn Sindre er Adrian. Seinni kona Bergþórs er Anna Guðrún Júlíusdóttir, f. 27.7. 1929, stúdent frá MR, cand. phil. frá Háskóla Íslands og kennarapróf frá Kenn- araskóla Íslands, síðar fulltrúi hjá Landsvirkjun. Foreldrar hennar voru Rósinkrans Júlíus Rósinkransson, f. 5.7. 1892, d. 4.3. 1978, og Sigríður Jón- atansdóttir, f. 26.4. 1904, d. 22.9. 1992. Sonur þeirra er: 3) Júlíus Smári, lögfræðingur, forstöðumaður hjá yf- irskattanefnd, f. 21.1. 1964. Hann er kvæntur Bryndísi Kristjánsdóttur, f. 17.7. 1968, Tengdafaðir minn, Bergþór Smári læknir, er látinn 92 ára að aldri. Hans er sárt saknað. Berg- þór var sérlega farsæll læknir sem naut mikillar virðingar og vinsældar í öllu sínu starfi. Það má segja að hann hafi sameinað mikla læknisfræðilega kunnáttu með einstakri mannúð. Hann leit á sjúklinginn sem heila mann- eskju, en ekki einungis sem læknisfræðilegt fyrirbæri. Ég kynntist Bergþóri fyrir nær aldarfjórðungi, og þótt fund- ir okkar ekki hafi verið tíðir þar sem við bjuggum hvor í sínu land- inu, þá voru þeir þeim mun ánægjulegri, hvort sem það var í Ósló eða Reykjavík, eða í sum- arbústaðnum við Laugarvatn þar sem trjárækt var höfð í hávegum. Bergþór var mikill fjölskyldu- maður sem bar hag fjölskyldu sinnar mjög fyrir brjósti. Hann var maður skarpgreindur og heil- steyptur, og gæddur sterkri rétt- lætiskennd. Hann var alvarlegur maður, en samtímis lifandi og glaður maður með mikla kímni- gáfu, sannkallaður „húmoristi“ sem gat séð spaugilegu hliðarnar á tilverunni. Bergþór var stál- minnugur um menn og málefni, og hafði meðal annars mikla sagnfræðikunnáttu og áhuga a þjóðfélagsmálum, áhuga sem við deildum og áttum góðar samræð- ur um þegar við hittumst. Bergþór Smári var merkur maður. En fyrst og fremst var hann góður maður. Thomas Mathiesen. Með nokkrum orðum vil ég minnast elskulegs tengdaföður míns, Bergþórs Smára, sem lést föstudaginn 28. september sl. á nítugasta og þriðja aldursári. Allt frá okkar fyrstu kynnum minnist ég ljúflegs viðmóts hans og góðrar nærveru. Honum var fengið gott skaplyndi í vöggugjöf sem fylgdi honum á farsælli ævi í leik og starfi. Var það helst að hann ætti til að kýtast við Katr- ínu systur sína um hina ólíkleg- ustu hluti. Var það þá alltaf gert með bros á vör og með glettni í augum. Bergþór átti gæfu til að eiga góða foreldra sem hann alla tíð minntist af hlýleika. Ævi Berg- þórs var þó snemma mörkuð af veikindum föður hans og var hann strax á ellefta aldursári far- inn að vinna sér inn aura með því að sinna innheimtustörfum við verslun hér í bæ í fullu starfi. Bergþór var góðum gáfum gæddur og lærdómur reyndist honum auðveldur. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um í Reykjavík árið 1939 og emb- ættisprófi í læknisfræði árið 1946, í báðum tilvikum með ágæt- iseinkunn. Læknisferill Bergþórs var afar farsæll og um margt ein- stakur. Eftir að hann opnaði læknastofu árið 1951 var hann um áratuga skeið með stærsta praksis á landinu. Hann var alla tíð eindreginn stuðningsmaður þess að læknar störfuðu undir eigin nafni og á eigin ábyrgð og taldi að þessum grundvallaratrið- um vegið með tilkomu heilsu- gæslustöðva. Var hann svo lán- samur að aldrei voru gerðar athugasemdir við hans verk af heilbrigðisyfirvöldum á hans langa og farsæla ferli. Bergþóri var afar annt um heiður sinn sem læknir og talaði ávallt af mikilli nærgætni og trúmennsku um starf sitt. Bergþór kvæntist árið 1959 seinni konu sinni, Önnu Guðrúnu Júlíusdóttur. Voru þau einkar samrýnd hjón og hún honum mikil stoð, ekki síst undanfarna mánuði, þegar veikindi voru farin að hrjá hann. Hjónin höfðu yndi af ferðalögum og eftir að Bergþór lét af störfum áttu þau góðar stundir í afdrepi fjölskyldunnar austur í Laugardal þar sem þau höfðu ásamt syni sínum byggt upp og sinnt trjárækt af mikilli eljusemi. Bergþór eignaðist þrjú börn. Var hann stoltur af þeim og þeirra verkum og vildi veg þeirra sem farsælastan. Hann hafði mikla gleði af samverustundum með börnum okkar Júlíusar og hafði unun af að fylgjast með og taka þátt í lífi þeirra. Er hans sárt saknað af þeim sem minnast margra góðra stunda með afa sínum. Með þakklæti og virðingu sendi ég elskulegum tengdaföður mínum, Bergþóri Smára, mína síðustu kveðju. Ég ann þér, haust, með hreinleikssvipinn bjarta og heiðan kulda yfir þinni brá, með alvörunnar þrek í þínu hjarta og þýðan bjarma fölum vöngum á. Við sjálfar dauðans dyr þú kannt að skarta og djörfum augum horfir sumri frá. Þú kennir það, að oss ber ei að kvarta, þótt einhvers sé að missa, sakna og þrá. Lát karlmennskunnar djörfung hug minn hita og hjartað veika finna það og vita, að eftir vetri alltaf kemur vor. Að baki lífsins bíður dauðans vetur, – á bak við hann er annað vor, sem getur látið oss ganga aftur æskuspor. (Jakob Jóh. Smári) Bryndís Kristjánsdóttir. Bergþór Smári móðurbróðir minn andaðist þann 27. septem- ber á nítugasta og þriðja aldurs- Bergþór Smári ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, SIGURVEIG BRYNHILDUR SIGURGEIRSDÓTTIR, Gránufélagsgötu 37, Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar laugardaginn 13. október. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 19. október kl. 10.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Heimahlynningu á Akureyri. Páll Jónsson, Sigurgeir Pálsson, Jórunn Agnarsdóttir, Rósa Pálsdóttir, Pálmi Vilhjálmsson, Anna Kristín Pálsdóttir, Jón Frímann Ólafsson, ömmu- og langömmubörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGVELDUR EINARSDÓTTIR, Álfabergi 14, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju föstudaginn 19. október klukkan 13.00. Trausti Sveinbjörnsson, Björn Traustason, Helga Halldórsdóttir, Bjarni Þór Traustason, Sigrún Ögn Sigurðardóttir, Ólafur Sveinn Traustason, Eydís Eyþórsdóttir og barnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, JÓHANNA BJÖRNSDÓTTIR, Álfhólsvegi 155, Kópavogi, lést á Landspítala, Hringbraut, mánudaginn 8. október. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að hennar eigin ósk. Guðrún Hanna Óskarsdóttir, Halldór Mikkaelsson, Sverrir Harðarson, Hörður Óskarsson, Bryndís Óskarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, fósturföður, afa og bróður, ÞRÁINS ÖGMUNDSSONAR stýrimanns, Smyrilshólum 2, Reykjavík. Brynhildur Sigurðardóttir, Hildur Zoëga, Diljá Ámundadóttir, Nína, Edda og Brynhildur. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SESSELJA JÓNSDÓTTIR, Æsufelli 4, lést á heimili sínu að kvöldi mánudagsins 9. október. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju föstudaginn 19. október kl. 15.00. Guðbrandur Gimmel, Ingunn Þórðardóttir, Anna Karlsdóttir, Óskar Elíasson, Karl Jón Karlsson, Winut Somsri, Jón Sigurfinnur Ólafsson, barnabörn og langömmubarn. ✝ Okkar ástkæra móðir, dóttir, tengdamóðir, systir og amma, ERLA SIGURDÍS ARNARDÓTTIR, verður jarðsungin frá Guðríðarkirkju mánudaginn 22. október kl. 15.00. Halla Karen Jónsdóttir, Andri Már Óttarsson, Elín Klara Jónsdóttir, Kolbeinn Lárus Sigurðsson, Hjálmar Gauti Jónsson, Halla Hjálmarsdóttir, Helga Eygló Guðjónsdóttir, Jóna Hlín Guðjónsdóttir, Embla Eir Oddsdóttir, Hekla Andradóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.