Morgunblaðið - 18.10.2012, Síða 44

Morgunblaðið - 18.10.2012, Síða 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2012 Seven Psychopaths, eða Sjöbrjálæðingar, er fyrirmargra hluta sakir óvenju-leg kvikmynd. Hún hefur að geyma kvikmynd í kvikmyndinni þar sem hún fjallar að stórum hluta um kvikmyndarhandrit sem ein af aðalpersónum myndarinnar, hinn drykkfelldi Marty (Farrell), vinnur að. Handritið ber sama titil og kvik- myndin, Sjö brjálæðingar, en Marty á bæði eftir að finna brjálæðingana og sögu að segja. Þá kemur vinur hans honum til hjálpar, leikarinn Billy (Rockwell) sem hefur tekjur af því að ræna hundum, færa þá eig- endum sínum og þiggja fundarlaun. Samverkamaður hans er gæðablóðið Hans (Walken) sem er ekki allur þar sem hann er séður. Billy gerir þau mistök að ræna hundi mafíósa (Harrelson) og hefst þá mikið blóð- bað. Marty lendir í hringiðunni miðri og hittir fyrir furðufuglinn Zach- ariah (Waits) sem færir honum veru- lega safaríkt efni í handritið. Þessi blóðugi grínglæpahasar tek- ur margar óvæntar beygjur og minnir um margt á meistaraverk Tarantinos, Pulp Fiction. Handrits- höfundur og leikstjóri myndarinnar leikur sér að áhorfendum og gaman- glæpamyndaforminu, m.a. með því að láta Marty útlista allar helstu klisjur slíkra mynda sem hann vill fyrir alla muni forðast í Sjö brjál- æðingum. Hvort það tekst, í handrit- inu og kvikmyndinni sjálfri, kemur í ljós. Marty er einnig gagnrýndur af félaga sínum fyrir að gera lítið úr kvenpersónum í handritinu, að þær fái varla að opna munninn og séu all- ar drepnar sem endurspeglast skemmtilega í myndinni sjálfri. Blóðbaðið í Sjö brjálæðingum er allsvakalegt og eitt af mörgum morðum myndarinnar þess eðlis að sá sem hér skrifar átti erfitt með að halda áfram að horfa á myndina. Það virtist ekki þjóna neinum tilgangi í sögunni en vakti þá spurningu hvort myndin væri ádeila á myndir af þessu tagi. Meti hver fyrir sig. Að- alpersónan Marty er friðelskandi og andsnúin ofbeldi en getur ekki fyrir nokkra muni afstýrt hinni ofbeldis- fullu atburðarás. Endar allt vel eða í einu stóru blóðbaði? Kemur í ljós. Sjö brjálæðingar er að mörgu leyti skemmtileg kvikmynd en líka óþægileg, bæði hvað blóðsúthell- ingar varðar og framvindu sög- unnar. Seinni hlutinn gæti valdið áhorfendum vonbrigðum, þar er gír- að niður allrækilega og dregið úr húmornum. Hins vegar má alltaf fagna því þegar farið er út fyrir formúluna, það er ekki svo oft sem það gerist í Hollywood-myndum. Leikararnir eru fantagóðir og fara þar Walken og Rockwell fremstir í flokki og Waits er yndislegur. Leik- konur eru fáar og illa farið með þær, eins og fram hefur komið og þá sér- staklega Bond-skvísuna Olgu Kury- lenko. Brjálæði Brjálæðingarnir eru af ýmsu tagi í Sjö brjálæðingum. Blóðugt brjál- æðingagrín Laugarásbíó og Borgarbíó Seven Psychopaths bbbmn Leikstjóri og handritshöfundur: Martin McDonaugh. Aðalleikarar: Christopher Walken, Colin Farrell, Sam Rockwell, Tom Waits og Woody Harrelson. Banda- ríkin, Bretland 2012. 110 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Tónlistarkonan Lára Rúnars blæs til teiti í kvöld kl. 20.30 á skemmtistaðnum Faktorý. Gestum gefst þá kostur á að hlusta á vænt- anlega hljóm- plötu hennar, Moment, sem kemur út eftir rúma viku. Platan verður leikin og kverkar gesta vættar. Fimm gestir verða svo heppnir að hljóta eintak af plötunni þegar hún kemur til landsins. Eitt af lögum plötunnar er farið í spilun í útvarpi, lagið „BEAST“ sem er nú í 11. sæti Vinsældalista Rásar 2. Það hefur verið á listanum í tvær vikur og er eitt þeirra laga sem hvað hæst hafa stokkið upp listann milli vikna. Hlustunarteiti Láru á Faktorý Lára Rúnarsdóttir Heimildarmyndin Sundið eftir Jón Karl Helgason verður frumsýnd í dag í Bíó Paradís. Í myndinni er fjallað um tilraunir Íslendinga til þess að synda yfir Ermarsund og þá sérstaklega Benedikts Lafleur og nafna hans Hjartarsonar en þeim síðarnefnda tókst að ljúka sundinu árið 2008 og var fyrstur Íslendinga til þess. Inn í þá frásögn er fléttað fróðleik um íslenska sundkennslu og þekkt sjósund í Íslandssögunni, m.a. Helgusund, Drangeyjarsund og Guðlaugssund. Jón Karl er höfundur handrits myndarinnar, kvikmyndatökumað- ur og leikstjóri. Um tónlist sá Ing- ólfur Sv. Guðjónsson, leikmynd Ólafur Jónasson og búninga Mar- grét Einarsdóttir, en sundbúninga Freydís Jónsdóttir. Þulur myndar- innar er leikarinn Ólafur Darri Ólafsson. Frekari upplýsingar um myndina má finna á Facebook-síðu hennar, facebook.com/Ermarsund. Sund Jón Karl í sundklæðum í sjó. Ermarsund og íslensk sundsaga Morgunblaðið/RAX Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is Þar sem að gervihnattabúnaðurinn fæst NÚNA M EÐ 20% AFSL ÆTTI VERÐ Á HÁSKERPU- BÚNAÐI FRÁ 35.440,- VERÐ ÁÐUR FRÁ 44.300,- ÓTRÚLEGT EN SATT - EKKERT MÁNAÐARGJALD Fáðu yfir 100 fríar sjónvarps stöðvar með gervihnattabúnaði frá okkur - Þ.Þ., FRÉTTATÍMINN - J.I., EYJAFRÉTTIR -H.G., RÁS 2 - K.G., DV - H.S.S., MORGUNBLAÐIÐ- H.V.A., FRÉTTABLAÐIÐ TRYGGÐU Þ ÉR MIÐA Á “LJÚFSÁR OG BRÁÐSKEMMTILEG.” - FRÉTTABLAÐIÐ SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS AUKASÝNING ÖRFÁIR MIÐAR EFTIR! LOVE IS ALL YOU NEED KL. 5.30 - 8 - 10.30 L LOVE IS ALL YOU NEED LÚXUS KL. 5.30 - 8 L FUGLABORGIN 3D ÍSL.TAL KL. 3.30 - 6 L TAKEN 2 KL. 5.40 - 8 - 10.10 16 TAKEN 2 LÚXUS KL. 10.30 16 DJÚPIÐ KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 10 DREDD 3D ÓTEXTUÐ KL. 10.20 16 ÁVAXTAKARFAN KL. 3.30 L THE EXPENDABLES 2 KL. 8 16 ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 3.40 L SEVEN PSYCHOPATHS KL. 8 - 10.10 16 BLÓÐHEFND KL. 6 16 DJÚPIÐ KL. 6 - 8 10 TAKEN 2 KL. 10 16 LED ZEPPELIN KL. 8 L LOVE IS ALL YOU NEED KL. 5.30 - 8 - 10.30 L BLÓÐHEFND KL. 8 - 10.10 16 DJÚPIÐ KL. 5.50 - 8 - 10.15 10 THE DEEP ENSKUR TEXTI KL. 5.50 10 INTOUCHABLES KL. 5.30 - 10.30 L NÁNAR Á MIÐI.IS SEVEN PSYCHOPATHS Sýnd kl. 5:45 - 8 - 10:20 TAKEN 2 Sýnd kl. 8 - 10 FUGLABORGIN 3D Sýnd kl. 6 DJÚPIÐ Sýnd kl. 6 - 8 - 10 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar HHHH -Þ.Þ., Fréttatíminn HHHHH - J.I., Eyjafréttir.is HHHHH - H.H., Rás 2 HHHHH - H.S.S., Morgunblaðið HHHH - H.V.A., Fréttablaðið HHHH - K.G., DV -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is 10 16 16 L

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.