Morgunblaðið - 26.10.2012, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 26.10.2012, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. FRÉTTASKÝRING Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Allt að 278% munur var á hæsta og lægsta kostnaði við að hita upp meðalstórt íbúðarhúsnæði á ári á landinu í fyrra. Alls munaði ríflega 133 þúsund krónum á mesta og minnsta kostnaðinum. Í skýrslu starfshóps um breytingar á nið- urgreiðslum til húshitunar, sem frumvarp um jöfnun á húshitunar- kostnaði sem nú liggur fyrir Al- þingi byggist á, eru tekin dæmi um árskostnað við upphitun á húsum. Úr þeim tölum má ráða að kostnaðurinn við að hita upp með- alstóran sveitabæ með rafhitun þar sem húshitunarkostnaðurinn er hæstur var 208.462 krónur árið 2011. Þetta er miðað við að notaðar séu 28.400 kílóvattstundir á ári sem er dæmigerð rafmagnsnotkun til að hita upp meðalstórt einbýlishús. Í þeirri upphæð er búið að reikna með niðurgreiðslu ríkisins á kostn- aðinum. Til samanburðar var kostnaðurinn við sömu orkunotkun til húshitunar lægstur í Reykjavík, þar sem er hitaveita, 74.837 krónur. Í skýrslunni eru áhrif breyting- anna sem lagðar eru til í frumvarp- inu á kostnaðinn reiknuð út. Í dæminu hér að ofan lækkar kostn- aðurinn við rafhitun þar sem hann er hæstur úr rúmum 208 þúsund krónum í rúmar 139 þúsund krónur á ári. Það jafngildir 49,4% lækkun á húshitunarkostnaði fyrir þá sem hafa greitt hvað mest. Ekki borg gegn landsbyggð Töluverðar umræður og deilur hafa skapast um jöfnun húshitunar- kostnaðar síðustu daga. Að sögn Sigurðar Friðleifssonar, fram- kvæmdastjóra Orkuseturs, sem sat í starfshópnum sem vann skýrsl- una, hefur misskilnings gætt í um- ræðum um málið. Því hafi verið haldið fram að um væri að ræða að íbúar á höfuðborgarsvæðinu niður- greiddu húshitun á landsbyggðinni en það sé hins vegar ekki svo ein- falt. „Þetta er munur á milli jarð- varmaveitna og rafhitunar. Við höf- um jarðvarmaveitur úti um allt á landsbyggðinni. Reykjavík er ekki í sérstöðu þar. Munurinn á verði getur verið innan landsbyggðarinn- ar líka,“ segir Sigurður. Þannig var húshitunarkostnaður miðaður við dæmigerða notkun meðalstórs einbýlishúss á Akur- eyri, þar sem er hitaveita, 89.336 krónur í fyrra. Til samanburðar hefði það kostað 190.490 krónur að hita upp sama hús á Seyðisfirði þar sem rafmagn er notað til þess að hita vatn hitaveitunnar og 190.837 krónur í Grundarfirði þar sem er rafhitun.  Munurinn á kostnaði við húshitun ekki bara á milli höfuðborgar og sveitar heldur einnig innan lands- byggðarinnar  Mesti kostnaðurinn lækki um tæpan helming verði nýtt frumvarp um jöfnun samþykkt Gríðarlegur verðmunur á húshitun Árskostnaður við að hita upp meðalstórt íbúðarhús Heimild: Skýrsla starfshóps um breytingar á niðurgreiðsum til húshitunar 2011 Nýtt kerfi 190.837 142.520 207.854 142.520 183.544 139.481 208.462 139.481 74.837 74.837 166.737 135.741 RARIK þéttbýli RARIK dreifbýli Orkubú Vest-fjarða þéttb. Orkubú Vest- fjarða dreifb. Reykjavík Ísafjörður Rafhitun Hitaveita Kynt hitaveita Miðað við 28.400 kWst á ári með sköttum Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það er alltaf gaman að fá góða vinninga í hús, þótt það komi lítið við okkur hér,“ segir Einar Sigurjónsson, að- stoðarverslunarstjóri Hagkaups við Furuvelli á Akur- eyri. Íslenski bónusvinningurinn í Víkingalottóinu, 27,8 milljónir, kom á miða sem þar var keyptur. Áberandi er hversu margir stórir vinningar hafa komið á lottómiða sem keyptir hafa verið á Akureyri á undanförnum árum. Nefna má að í júní kom 73 milljóna króna vinningur á miða sem keyptur var í Leirunesti og hjón fengu 108 milljóna króna vinning í Víkingalottóinu í mars á miða sem keyptur var hjá Olís á Akureyri. Kassinn hjá Hagkaupi á Furuvöllum hefur einnig gefið góða vinninga, meðal annars tvo stóra úr Vík- ingalottóinu. Sá stóri var 105 milljónir á árinu 2007. Þá fengu ung hjón með þrjú börn rúmlega 28 milljóna króna vinning í apríl 2010. Í Hagkaupi hafa verið hengdir upp átta skildir sem vekja athygli á stórum vinningum sem komið hafa á miða úr sölukassanum og sá níundi bætist við eftir þessa viku. Í því tilviki var enginn þátttakandi í Víkingalottóinu með allar tölurnar réttar og því verður tvöfaldur vinningur næst. Alíslenski bónusvinningurinn gefur hins vegar eiganda eins miðans 27,8 milljónir kr. „Við seljum mikið af lottómiðum, það fylgir traffík- inni. Svo spennist fólk meira upp þegar vinningarnir margfaldast,“ segir Einar. Sumir eru heppnari en aðrir Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár, tekur undir þau orð að áberandi sé hversu margir stórir vinningar fari til Akureyrar. Hann segist ekki hafa yfirlit um heppnustu sölustaðina en telur ástæðu til að taka það saman. Lottómiðar eru seldir á um 300 stöðum auk þess sem mikið er selt á netinu. „Á síðasta ári greiddum við út 1,3 milljarða króna í vinninga til lottóspilara, í Lottóinu og Víkingalottóinu. Yfirleitt á að vera meðaldreifing á vinningum en vissu- lega geta sumir staðir verið heppnari en aðrir,“ segir Stefán. Íslensk getspá er í eigu Íþrótta- og ólympíusam- bands Íslands, Öryrkjabandalagsins og Ungmennafélags Íslands. Hluti af andvirði allrar sölu félagsins rennur beint til uppbyggingar æskulýðs- og íþróttastarfs og til málefna öryrkja. Alltaf gaman að fá góða vinninga í hús  Akureyringar virðast heppnir lottóspilarar Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Víkingalottó Aníta Bóel, starfsmaður Hagkaups á Akureyri, hefur að líkindum selt vinningsmiðann. Skúli Hansen skulih@mbl.is Fyrsta áfanga að skráningu Eim- skips lauk í gær þegar hlutafjárút- boð félagsins fyrir fjárfesta fór fram, en tilboðinu lauk í gær klukkan 14 þegar tilboð bárust frá fagfjárfest- um í 20% hlut í Eimskip. Samkvæmt tilkynningu frá Eimskipafélagi Ís- lands hf. var veruleg umframeftir- spurn í útboðinu en samtals bárust tilboð fyrir rúmlega 12 milljarða króna frá fjárfestum en tilboðum var tekið fyrir rúmlega 8,3 milljarða króna á verðinu 208 krónur fyrir hvern hlut. Umboðsaðilar útboðsins voru Straumur fjárfestingarbanki og Íslandsbanki. Í tilkynningunni segir einnig að í framhaldi af móttöku tilboða í hinu lokaða útboði hafi lykilstjórnendur Eimskips ákveðið að falla frá öllum kaupréttum sem félagið hafði úthlut- að þeim frá árinu 2010, þá verði við- auki við lýsingu félagsins sem fjallar um ofangreint efni birtur áður en al- mennt útboð hefst en stefnt er að því að það hefjist 30. október næstkom- andi. Áður en tilkynningin var send út hafði Helgi Magnússon, stjórnarfor- maður Lífeyrissjóðs verzlunar- manna, lýst því yfir í samtali við mbl.is að á reglulegum stjórnarfundi sjóðsins í gær hefði framkvæmda- stjóri sjóðsins fengið símhringingu um að ákveðið hefði verið að falla frá kaupréttunum. Ósáttir með kauprétti Að minnsta kosti þrír lífeyrissjóð- ir, Festi, Gildi og LSR, tóku ekki þátt í útboðinu en þeir tveir síðar- nefndu eru báðir á meðal þriggja stærstu lífeyrissjóða landsins. Ástæðurnar sem stjórnir sjóðanna gáfu fyrir þessum ákvörðunum sín- um voru annars vegar hátt gengi hlutabréfanna og hins vegar kaup- réttir lykilstjórnenda félagsins. Aðspurður hvenær tilkynnt hafi verið um að fallið yrði frá kauprétt- unum, segir Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips, að helstu aðilar félagsins hafi verið á fundum allan gærdaginn en síðan hafi þetta verið tilkynnt með áður- nefndri fréttatilkynningu. Á ekki að hafa nein áhrif Í útboðslýsingunni á umræddu hlutafjárútboði var greint frá kaup- réttum lykilstjórnenda félagsins. „Það kemur fram í fréttatilkynning- unni að það verður sendur út viðauki við lýsinguna. Þannig að það á ekki að hafa nein áhrif á útboðið,“ segir Ólafur, aðspurður hvort sú stað- reynd að fallið hafi verið frá kaup- réttunum hafi ekki áhrif á forsendur hlutafjárútboðsins. Ekki náðist í Gylfa Sigfússon, forstjóra Eimskips, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Stjórnendur Eimskips féllu frá kaupréttum  Viðauki við útboðslýsingu sendur út Umsvif Frá athafnasvæði Eimskips. Hlutafjárútboð Eimskips » Tveir af þremur stærstu líf- eyrissjóðum landsins, Gildi og LSR, tóku ekki þátt í útboðinu. » Vilhjálmur Birgisson, for- maður Verkalýðsfélags Akra- ness, hótaði því að félagsmenn verkalýðsfélagsins myndu jafn- vel skipta um lífeyrissjóð ef líf- eyrissjóðurinn Festi tæki þátt í útboðinu. » Almennt útboð Eimskips hefst næstkomandi þriðjudag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.