Morgunblaðið - 26.10.2012, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 26.10.2012, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2012 Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Veturinn 2009 lýsti atvinnuvegaráðherra því yfir á fundi með okkur útvegsmönnum að ef hann fengi einhverju ráðið eftir kosningarnar yrði veiðigjaldið ekki hækkað. Í frumvarpi ríkisstjórnarinnar vorið 2011 var miðað við að tvöfalda veiðigjaldið og þótti flestum nóg um. Við framlagningu fjárlagafrumvarpsins haustið 2011 var miðað við þreföldun. Niður- staðan vorið 2012 er fimmföldun,“ sagði Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, í setningar- ræðu á aðalfundi sambandsins í gær. Mun leiða til átaka á vinnumarkaði „Útgerðin og sjómenn deila kjörum í hlutaskiptakerfi. Ljóst er að hlutaskiptakerf- ið getur ekki staðið óbreytt með þessari skattlagningu. Verði henni ekki breytt stefn- ir í átök á vinnumarkaði með tilheyrandi af- leiðingum og tjóni. Stjórnvöld halda því fram að skattlagningin muni ekki hafa áhrif á launakjör sjómanna. Hvernig má það vera, að ef ríkið tekur 10-20% af tekjunum sé útgerð- um ætlað að greiða um 40% í laun og launa- tengd gjöld af þeim fjármunum sem fyrir- tækin hafa ekki?“ spurði Adolf en fram kom í máli hans að áætlað sé að veiðigjöld fisk- veiðiársins 2012/2013 verði 14-15 milljarðar. Adolf gagnrýndi að samningsafstaða Íslands í sjávarúvegsmálum við ESB væri enn óljós. Vitnar um mikilvægi fullveldisins „Makrílmálið er lýsandi dæmi um það hversu mikilvægur fullveldisréttur okkar er. Ef við værum aðilar að Evrópusambandinu er ljóst að staða okkar væri veik. Íslensk stjórnvöld hafa staðið fast á rétti okkar sem strandríkis og ég hvet þau til að gera það áfram, þrátt fyrir aðildarumsóknina. Það er umhugsunarvert af hverju íslensk stjórnvöld hafa ekki enn mótað samningsafstöðu Íslands í sjávarútvegsmálum og hafið samninga- viðræður um þetta mikilvæga mál. Ég minni á að nú eru meira en þrjú ár liðin frá því að sótt var um aðild að sambandinu. Þrátt fyrir að því hafi verið haldið fram að makrílmálið hafi ekki áhrif á aðildarviðræður Íslands og ESB er ég ekki í vafa um að svo sé.“ Framlegðin mismunandi Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- ráðherra sagðist á fundinum ekki telja að veiðigjöldin muni ýta undir samþjöppun. Þorvarður Gunnarsson, forstjóri Delo- itte, segir gjöldin byrjuð að hafa slík áhrif. „Ég er algjörlega ósammála honum. Ég tel að veiðigjöldin muni einmitt leiða til sam- þjöppunar og ég tel að það sé nú þegar farið að gerast. Við sjáum merki þess. Það er meðal annars vegna þess að bolfiskfyrirtæki, lítil og meðalstór fyrirtæki í veiðum og vinnslu, eða hrein útgerðarfyrirtæki, hafa minni framlegð hlutfallslega heldur en stóru og blönduðu fyrirtækin,“ sagði hann. Niðurstaðan varð fimmföldun  Formaður LÍÚ rifjar upp fyrirheit atvinnuvegaráðherra árið 2009  Hlutaskiptakerfið getur ekki staðið óbreytt  Spáir deilum á vinnumarkaði  Deloitte telur merki um samþjöppunaráhrif Morgunblaðið/Ómar Blikur á lofti Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, við upphaf aðalfundarins í Reykjavík. FRÉTTASKÝRING Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Auðvitað er þetta áróðursstríð og kannski er það rétt að byrja. Ef svo fer að það verða undirbúnar við- skiptaþvinganir gegn okkur og ásök- unarleikurinn stigmagnast, sem við höfum enga tryggingu fyrir að ekki gerist, þá er vandinn ekki bara spurn- ingin um makríl … heldur hvaða áhrif hann getur haft á okkur og okkar út- flutningshagsmuni,“ sagði Steingrím- ur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra á fundi LÍÚ í gær. Flestir markaðir að gefa eftir Steingrímur tók sem dæmi hvernig Norðmenn gætu fært sér einangrun Íslands í deilunni í nyt. „Það eru auðvitað blikur á lofti í þessum efnum sem við þurfum öll að taka alvarlega. Staðan í Evrópu hefur mikil áhrif hér. Það eru flestir mark- aðir farnir að gefa eftir … Við vitum að í vændum er mikið framboð af þorski úr Barentshafinu og makríl- deilan getur spilað inn í þetta. Til dæmis þannig að vinir okkar Norð- menn komi þeim skilaboðum á fram- færi í Bretlandi að Bretar þurfi ekki að hafa miklar áhyggjur af því að loka fyrir íslenskan fisk vegna þess að þeir bjóðist til að fylla í skarðið með þorski úr Barentshafi. Við þurfum að sameinast um að standa eins vel að þessu og við mögu- lega getum og búa okkur einfaldlega undir það að Ísland verði í nokkuð kröppum dansi hvað varðar umhverf- ið fyrir þessi mál á komandi mánuð- um og misserum.“ Slátri ekki mjólkurkúnni Að lokinni ræðu sinni tók Stein- grímur þátt í pallborðsumræðu. Svar- aði hann þar einni spurningunni á þá leið að hann vissi vel sem bóndasonur að ekki borgaði sig að slátra mjólkur- kúnni og átti þá við sjávarútveginn sem væri undirstöðugrein. Steingrímur hóf ræðuna á að rifja upp mikinn hallarekstur hins opin- bera frá efnahagshruninu og hvernig útgerðin yrði að axla sínar byrðar á miklu blómaskeiði í greininni. Varði hann með því nýju veiðigjöldin og að- ferðafræði auðlindarentunnar. Á síðustu fimm árum hefði fram- legð útgerða slagað upp í þriðjung af veltu þegar best lætur. „Þær eru margar atvinnugreinarnar, ekki bara á Íslandi heldur víðar um heim, sem gjarnan vildu skipta,“ sagði Stein- grímur og horfði út í salinn. Hann tiltók svo hvernig „drama- tískur viðsnúningur“ hefði orðið í eiginfjárstöðu útgerðarinnar síðan 2008. „Ég verð að segja alveg eins og er að ef það þarf að vera jarðarfara- svipur á aðalfundi LÍÚ núna undir lok árs 2012 hvernig var þá mórallinn 2004, 2005, 2007? Ég bara spyr.“ Steingrímur gaf einnig í skyn að í framtíðinni yrðu veiðigjöld meira sniðin að einstökum útgerðum. Það skref kallaði þó á betri gögn. Hann sagði að á næsta ári kynni atvinnu- vegafjárfesting að fara yfir lands- meðaltalið á tímabilinu 1990-2012. Ísland stefni í ólguskeið  Atvinnuvegaráðherra segir næstu mánuði geta orðið erfiða fyrir Ísland  Makríldeilan kalli á samstillt viðbrögð  Slæmar horfur á fiskmörkuðum Morgunblaðið/Ómar Fjölmenni Salurinn var þéttsetinn á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna í Reykjavík í gær. Boðið var upp á ræður og pallborðsumræður. „Fyrst ýsan er að minnka er það nú svo að þorskur getur komið í hennar stað að vissu marki. Við þurfum að nota okkur það strax að framboð á ýsu er að minnka í löndunum í kring- um okkur í miklu meira mæli en hjá okkur,“ segir dr. Alda Möller matvælafræðingur um sóknarfæri í útflutningi á þorski frá Íslandi. „Þessi staða kallar á að menn hafi góða yfirsýn og hugsi vel um viðskiptavini sína og vinni með þeim,“ segir Alda og bendir á að vinnslan á Íslandi skapi íslenskum framleiðendum ágæta vígstöðu í Evrópu á tímum efnahagserfiðleika. Styrkur í hefðinni „Þegar á móti blæs á mörkuðum og efnahagsástandið er ekki gott eru frystar vörur sterkari en aðrar. Frystihúsa- og sjófrystivinnsla okk- ar er því líkleg til þess að standa sig á þessum tímum,“ segir Alda sem var meðal framsögumanna á aðal- fundi Landssambands íslenskra út- vegsmanna í Reykjavík í gær. Hún vék að þeim tækifærum sem væru að skapast í Kína vegna upp- gangs skyndibitastaða. „Líklega verða það fyrst ódýrar botnfisk- afurðir, t.d. úr alaskaufsa, sem not- aðar verða á skyndibitastöðum en það skapar hugsanlega rými fyrir dýrari vörur eins og okkar annars staðar, t.d. í Evrópu.“ Þorskur komi í stað ýsu Alda Möller  Telur tækifæri liggja í sérhæfingu Slysavarnafélagið Landsbjörg fékk í gær hvatningarverðlaun LÍÚ. Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, afhenti Guðmundi Erni Jó- hannssyni, framkvæmdastjóra Landsbjargar, verðlaunin sem eru þriggja milljóna króna styrkur, sem notaður verður til reksturs og viðhalds björgunarskipa félagsins. Slysavarnafélagið Landsbjörg starfrækir 15 björgunarskip hring- inn í kringum landið. Skipin eru veigamikill þáttur í starfsemi félagsins en árlega sinnir Landsbjörg um 100 neyðartilvikum á hafi úti. Landsbjörg fékk þrjár milljónir Steingrímur vék í ræðu sinni að þörfinni fyrir að stoppa upp í fjár- lagagatið og tiltók hvernig ýmsar skattahækkanir hefðu mælst illa fyrir, þótt réttlætanlegar væru að mati ríkisstjórnarinnar. „Við lögðum auðlegðarskatt á ríkasta fólkið í landinu og það eru ekki allir ánægðir með það … Við þurftum að leggja virðisaukaskatt á ferðaþjónustuna. Af hverju? Jú, af því að hún eins og sjávarútveg- urinn nýtur góðs af hagstæðu gengi krónunnar. Það eru ekki góð og gild rök fyrir því að hún borgi bara 7% virðisaukaskatt … Af hverju á að veita sérstakan skatta- afslátt, svona eins og á mat og menningu, þegar forríkur Amerík- ani gistir á Hótel Holti í júlí?“ spurði Steingrímur. Sem kunnugt er stefna stjórnvöld að því að hækka virðisaukaskatt á gistingu úr 7% í 25,5%. Afsláttur fyrir ríka Ameríkana RÁÐHERRA RÆÐIR SKATTA Í FERÐAÞJÓNUSTUNNI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.